Myglusveppur-Algjört úrræðaleysi???

husid 026Þar til fyrir þremur dögum síðan áttum ég og fjölskylda mín þetta hús. Heimili okkar sl. 7 ár og þar sem ég hafði hugsað mér að vera um ókomna tíð. En þá fékk ég gesti, gesti sem fór svo lítið fyrir að enginn varð var við neitt. Þeir hreiðruðu um sig í skriðkjallara sem var undir öllu húsinu og enginn vissi af þeim. Veikindum mínum sem höfðu staðið í á annað ár fannst engin skýring á þrátt fyrir allan þann fjölda lækna sem var leitað til. Ég var farin að halda að ég væri móðursjúk, og hve þreytandi þetta var orðið fyrir aðra fjölskyldumeðlimi.. Húsmóðirin alltaf lasin og varð veikari og veikari. En loks fannst skýringin, gríðarlegur myglusveppur hafði myndast í skriðkjallaranum og við eftirgrennslan og skoðun á teikningum hússins kom í ljós að hann var alls ekki byggður rétt. Ég fann á netinu fyrirtæki sem heitir Hús og heilsa, sem stofnað var af hugsjónafólki sem hafði sjálft lent í þessum vágesti með slæmum afleiðingum og blöskraði að ekkert væri til á landinu sem aðstoðaði fólk við þessar aðstæður. Niðurstaðan var skýr, húsið mitt var gegnsýrt og ekkert fyrir mig að gera nema flytja út með það sama. Ég fékk inni, ásamt dóttur minni, hjá bróður mínum og innan tíðar fór heilsan að lagast. En sveppurinn hafði þegar haft þau áhrif að ég sá mig tilneydda til að segja upp góðu starfi þar sem ég fékk tækifæri á að mennta mig við Viðskiptaháskólann á Bifröst, námi sem ég neyddist einnig til að hætta er ég átti einungis eina önn eftir, vegna sífelldra veikinda. Gat hreinlega ekki boðið vinnuveitendum mínum upp á að sitja uppi með starfskraft sem var sífellt fjarverandi vegna veikinda. Við vorum, að við töldum, vel tryggð og treystum á að fá tjón okkar bætt en sú var ekki raunin. Tryggingfélagið okkar sá sér ekki skylt að bæta tjón af þessu tagi. Var ekki í skilmálunum. Ég verð enn reið þegar ég sé auglýsinguna þeirra sem dynur á manni á hverjum degi: "Ef þú ert tryggður, þá færðu það bætt." Og nú eru þeir líka farnir að bjóða upp á áfallahjálp hjá sálfræðing. Held ég verði að þiggja hana, er í áfalli yfir að fá ekki tjón mitt bætt að neinu leyti hjá þeim. Ég er allslaus, húsið mitt farið, húsgögnin og annað sem ég hafði eignast í gegnum árin. Ég hef ekki einu sinni færi á að byrja upp á nýtt, þar sem ég sit uppi með lán með veði í húsi sem ekki er til lengur. Hvernig á bankinn minn að gæta sinna hagsmuna ef við hættum að borga af láninu með veð í sama húsi. En að sjálfsögðu getum við ekki bara hætt að borga ef við ætlum að eiga einhverja möguleika á að fjármagna annað hús, sem við höfum  hugsað okkur að reisa á grunni þess gamla. En við erum venjuleg fjölskylda með meðaltekjur og hvernig eigum við að fá greiðslumat með lánið af ónýta húsinu á bakinu. Elskulegur eigandi sveitabæjar hér í sveitinni minni sá aumur á okkur og nú búum við þar með húsgögnin sem þar voru fyrir en það er ekki endanleg lausn. Það eiga allir rétt á að eiga sitt heimili og þar með talin dóttir mín. Ég vil geta tekið á móti eldri börnunum mínum þremur ef þau vilja koma og gista með fjölskyldur sínar á mínu heimili. Ekki þar sem ég þarf að vera með rúm í stofunni, rúm sem einhver annar á. Ég skrifaði umhverfisráðherra til að reyna að vekja athygli á þeim skaðvaldi sem myglusveppurinn er en hún hefur enn ekki séð ástæðu til að svara bréfinu mínu. Ég talaði við lögfræðinga, húseigendafélagið og alla sem mér mögulega datt í hug en fékk engar lausnir. Leyndur galli, vissulega, en húsið er byggt árið 1986 og því allar kröfur sem mögulega væri hægt að gera á húsbyggjandann löngu fyrndar. Það er líka bara hrikalegt að neyðast til að leita að einhverjum sökudólgi til að taka á sig tjónið. Sá sem seldi okkur húsið, jú, er mögulega bótaskyldur en þegar maður veit að málsókn honum á hendur hefði ekkert upp á sig sökum bágrar fjárhagsstöðu hans, þá væri það bara að henda peningunum út um gluggann. Íslenskt samfélag virðist  mér bara ekki vera tilbúið til að takast á við þennan vanda. Hagsmunir fólks eru varðir með skyldutryggingu ef það kviknar í húseign þeirra, húsið mitt er jafn ónýtt og ef það hefði brunnið til grunna en það sit ég uppi með ein. Erlendis er fólk orðið mun meðvitaðra um hversu hættulegur myglusveppurinn er og í Morgunblaðinu sá ég að í Bandaríkjunum grípa stjórnvöld inní og rífa hús sem ekki hefur verið sinnt um eftir Katarínu til að koma í veg fyrir myglusveppamyndun í þeim. Það kemur í öllum fréttatímum ef fólk missir eignir sínar í bruna en fjölmiðlar hér hafa engan áhuga á að fjalla um tjón af þessu tagi. Það er ömurleg tilfinning að horfa upp á heimili sitt rifið til grunna og sjá ekkert framundan. Samt gat ég ekki farið, sat bara í bílnum og horfði og horfði. Þarna fór sófasettið, stofuhúsgögnin, allt kurlað niður í ekki neitt og keyrt á tipp. Að hreinsa upp eftir niðurrifið er eitthvað sem ég hef enn ekki treyst mér í. Verð að fara og sópa upp af götunni og hreinsa upp það sem fauk þegar húsið mitt fór í kurlarann. Get ekki farið þarna niðureftir. Myglusveppur er stór alvarlegt mál og löngu orðið tímabært að stjórnvöld, tryggingafélögin og samfélagið allt fari að líta á hann sem þann skaðvald sem hann er.

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Mér finnst þetta hroðalegt að heyra. þetta er vandamál um öll Norðurlönd og það viðgengst svindl og svínarí bæði hjá fasteingasölum sem eru í raun ábyrgir, og tryggingarfyrirtæki. ég get gefið þér tvö ráð þó ég geti ekki ábyrgst að þó virki. Í fyrsta lagi að kæra til lögreglu bæði húseiganda, fasteignasala og tryggingarfélag. Þeir munu eflaust benda þér á að tala við lögfræðing, en segðu þá eins og er. Allt bendir til að einhversstaðar hafi þú verið svikinn, og af því að þetta eru óvenjuleg mál á Íslandi, geturðu líka fengið gjafsókn hjá lögfræðingi og stefnt Félagi Íslenskra Tryggingarfélaga. Í versta falli er að einfaldlega  hefja styrktarsöfnun í gegn um t.d. dagblað og gera þetta mál opinbert til að hjálpa þér og öðrum að falla ekki í þessa gryfju.

það er líka til lög um þetta hjá Alþjóðadómstól og þú ættir að kynna þér þær reglur eða fá einhvern sem kann þær reglur um að hjálpa þér. Ekki gefast upp, því þú ert í fullum rétti, kannski ekki gagnvart loðnum reglum og skilyrðum tryggingarfélaga, en alla vega áttu rétt út frá mannúðarsjónarmiði og á jafnréttisgrundvelli sem líka eru til lög um á Íslandi.

Ég þekki svolítið til þessara mála og varð sjálfur fyrir skaða af myglu, en sem betur fer lánaðist mér að laga það án þess að verða gjaldþrota. Ekki gefast upp á þessu máli.

Ég skal leggja mitt af mörkum til að leita ráða, enda hef ég ekkert að gera eins og er, og vinn gjarna ókeypis í allskonar málum sem strandar í óréttlátu kerfi.

Óskar Arnórsson, 14.3.2008 kl. 10:52

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Takk fyrir góð orð á gestabókarfærlunni þinni Bylgja mín! Það eru margir búnir að lenda í svona málum og orðið gjaldþrota fyrir vikið. En ég þekki þessi mál eingöngu frá Svíþjóð og þar er verið að taka alvarlega á þessum málum.

Óskar Arnórsson, 14.3.2008 kl. 12:26

3 identicon

Bara það sem mér finnst. Sendi grein í Morgunblaðið í þeirra von að það opni umræðu um þennan fjanda. Löngu orðið tímabært  að farið sé að taka á þessum málum og opna augu fólks fyrir hversu alvarlegt þetta getur verið. Ég hef ekki kennt mér meins síðan ég flutti út en kannski ekki allir svo heppnir.

Kv. Bylgja

Bylgja Hafþórsdóttir (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 145505

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband