Myglusveppur virðist ekki til hjá íslenskum ráðamönnum eða tryggingafélögunum!

Sá fyrirspurn áðan inni á athugasemdunum hjá mér sem fékk mig til að hugsa um allt það sem ég er búin að reyna til að fá einhverstaðar einhverja lausn okkar mála með húsið. Og að ég hef lítið minnst á hversu mikill léttir það var að fá loksins að vita hvað væri að mér. Þakka guði fyrir fyrirtæki Sylgju og Pálma, Húsum og heilsu, fyrir að vera til. Annars væri ég örugglega ennþá fárveik á Myglumelnum hafandi ekki hugmynd um af hverju. Þetta var orðið gríðarlega lýjandi ástand og mikið álag á allt og alla í kringum mig. Samviskubit kvaldi mig sífellt fyrir að vera svona mikill aumingi, ég sem hafði alltaf verið frísk og spræk og full af orku var nú orðin gangandi brak og fannst ég vera byrði á öllum. Ég var sífellt að rembast við að vera hressari en ég var og gera hluti sem ég réð ekkert við þar til ég gafst upp á því líka. Það er ekki gaman að kvíða því að vakna á morgnana til að sjá hvort dagurinn í dag yrði góður eða slæmur. Ég var lögð inn á sjúkrahús í nokkra daga því læknarnir vildu fylgjast með mér og að sjálfsögðu byrjaði ég að lagast, ekki lengur í húsinu en samt tengdi enginn, ekki einu sinni ég, þetta nokkru sinni eða á nokkurn hátt við húsið. Og að vera að fá heilsuna aftur, að verða gamla ég, það er yndislegt og algerlega ómetanlegt. En svo þegar við fórum að athuga möguleika fólks í okkar stöðu, þá kom enn eitt kjaftshöggið. Fórum fyrst í tryggingarnar-NEI-ekki einu sinni innbúið. Viðlagasjóður-NEI-ekki náttúruhamfarir. Bjargráðasjóður-NEI-Hættir öllu slíku. Og samkvæmt áliti lögfræðingsins okkar: Fasteignasalinn-NEI. Sveitarfélagið(byggingafulltrúi)-NEI. Húsbyggjandi-NEI. Seljandinn-EF TIL VILL EN HÉLT ÞAÐ YRÐI VONLAUST. Svo ef einhver getur bent okkur á einhverja leið sem okkur hefur yfirsést þá please, látið mig vita.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta virðist vera vonlaus staða, vonandi að það safnist eitthvað fyrir ykkur, en seljandinn, afhverju er það vonlaust og af hverju er það vonlaust með byggingaraðilann, hann byggði þetta ónýta hús, hvað með hreppinn - byggingarfulltrúinn, ef húsið hefur ekki verið tekið löglega út ? Svoldið margar spurningar veit

Anna Gréta (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 17:46

2 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Byggingaraðilinn er þriðji aðili, ekki hægt, segir lögfræðingurinn. Byggingafulltrúi, er/var ekki skyldugur til að gera úttekt ef hann var ekki kallaður til af byggingaraðila, byggt árið 1986 og þágildandi byggingareglugerð sem gildir. Getum bara lögsótt seljanda v.leynds galla en vegna persónulegra aðstæðna hans er það vonlaust. . Tryggingar-Búið að fara fyrir tjónanefnd, fengum Nei þar einnig.

Bylgja Hafþórsdóttir, 30.3.2008 kl. 07:35

3 identicon

Hvernig er byggingaraðilinn 3 aðili, byggði hann ekki húsið sjálfur og bjó þar í mörg ár ?  Og ertu að meina að sá sem seldi ykkur húsið hafi vitað af þessum galla í húsinu þegar hann seldi ykkur það ?

Mikið finn ég til  með ykkur

kv Anna Gréta

Anna Gréta (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 09:24

4 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Einhvern veginn ekki hægt að hoppa fram hjá þeim sem við keyptum af og keypti af honum, sagði lögfræðingurinn, þekki ekki alveg nógu vel af hverju. Það er nefnilega það sem við vitum ekki og vonlaust er að sanna.

 Kv. Bylgja H

Bylgja Hafþórsdóttir, 30.3.2008 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 145507

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband