HOTT HOTT BJÖRGVIN!!!

polotik

Sit og horfi út um stofugluggann og velti fyrir mér morgundeginum. Vörubílarnir á leið upp í námur keyra sína leið fram hjá húsinu sem ég bý í og rykið leggst eins og dula yfir allt bæði innandyra og utan. Sjálfstraustið er á sömu leið, líður eftir Fellinu og eitthvað langt í burtu. Ég er að reyna að hlaupa á eftir því og koma því á sinn stað en það er alveg sama hversu hratt ég hleyp alltaf er ég í humátt á eftir. Svei mér þá, mér líður eins og ég sé að fara fyrir dómara eða um það bil að fara að gera eitthvað hræðilegt af mér. Að ég, kelling úr Hvalfjarðarsveit, ætli að fara og hitta háæruverðugan viðskiptaráðherra. Þoli ekki þessa gríðarlegu óttablöndu virðingu sem ég hef alla tíð borið fyrir yfirvaldinu, hvort sem það voru skólastjórinn minn í barnaskóla, lögregla eða Björgvin. Ætli Björgvin sé að taka á móti mér af einhverri alvöru eða bara til að friða lýðinn og gerir svo aldrei neitt meira með þetta. Andsk. veit að ég má ekki hugsa svona en kvíðahnúturinn í maganum fer sístækkandi, dugar sem máltíð alveg þangað til á morgun ef ég þekki sjálfa mig rétt. En ég er búin að taka saman þá pappíra sem ég ætla að hafa með mér sem eru úrskurðirnir frá TM og úrskurðarnefnd almannatrygginga og skrifa niður punkta sem ég svo örugglega hiksta á og stama út úr mér eins og bjáni. En það verður þá bara að vera svo. Ég ætla að fara og ég ætla að gera mitt besta til þess að koma okkur Íslendingum framar á merina í sambandi við úrræði gagnvart myglusvepp. Óþarfi að við séum svona aftarlega þar eins og á svo mörgum öðrum sviðum. HOTT HOTT Björgvin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Bylgja!!! Björgvin er maður eins og ég og þú. Hann sinnir jú embætti sem er talið vera gott,flott og allt það. Enn Björgvin er ljúfur og góður drengur, sem tekur á móti þér fagnandi. Og vittu til á ákveðnum tímapunkti fundarins kemur þessi tilfinning yfir þig : hér líður mér vel,  hér vil ég helst vera í allan dag og ræða málin )

Í stuttu máli sagt,,, Það eru engu að kvíða.

Baráttukveðjur og hafðu það

Kjartan Pálmarsson, 22.4.2008 kl. 10:24

2 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Æi, þú ert frábær. Vona einmitt að svona verði fílingurinn þegar á staðinn er komið.

Bylgja Hafþórsdóttir, 22.4.2008 kl. 10:30

3 identicon

Kannski er ég of seinn, en ég vil óska þér góðs gengis í viðtalinu við Björgvin. Kærar kveðjur úr norðri!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 13:25

4 identicon

Ég hef alltaf fylgst með blogginu þínu en er voða löt við að kvitta! Ég vildi bara segja... Gangi þér ofsalega vel á morgun. Ég mun hugsa hlýtt til þín :)

Sóley Anna (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 14:51

5 identicon

hæ hér  er slóð sem þú skalt skoða. veit ekki hvort þetta er orðið að lögum http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/838.

didda (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 12:55

6 identicon

didda (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 13:03

7 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Skil ekkert í þessum fyrningalögum. Hvað með t.d. 2.greinina. Ætli ég geti eitthvað notað hana.

Bylgja Hafþórsdóttir, 23.4.2008 kl. 13:46

8 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Eru engin tíðindi af fundi dagsins?

Kjartan Pálmarsson, 23.4.2008 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband