Bloggheimur! Lesið og miðlið til bloggvina

Bloggheimurinn er orðinn stór, svo stór að ég trúi ekki öðru en hann geti haft áhrif á fleiri vegu en bara með orðum. Þá er ég að tala um umferðaröryggið. Undanfarnir dagar og vikur hafa verið með eindæmum  og hvert slysið á fætur öðru. Ég er handviss um að flest okkar hér inni þekkja einhvern sem annaðhvort hefur látist í bílslysi eða slasast alvarlega. Mér blöskraði í dag þegar ég átti leið til Reykjavíkur og sá að jafnvel lögreglan virðir ekki hámarkshraða. Fyrir hvern er eiginlega hámarkshraðinn og af hverju þurfum við alltaf að keyra "aðeins" yfir hámarkshraða til að líða sæmilega undir stýri. Hámarkshraði hverju sinni er miðaður við bestu hugsanlegu aðstæður en ekki ætlaður til þess eins að vera brotinn. Hundruðir eru teknir í einu í átökum lögreglu á hinum og þessum götum og ég er sannfærð um að stór hluti bílstjóranna sem dæmast ólöglegir sjá sig tilneydda til að keyra of hratt til að fylgja umferðinni. Því ef þú gerir það ekki er flautað á þig, steytt framan í þig hnefanum og það sem verra er, fólk treður sér framúr þótt aðstæður leyfi það engan veginn og skapar þannig stórhættu í umferðinni fyrir sjálfa sig og aðra. Það virðist engu máli skipta þótt heil lína sé á milli akreina sem allir vita að þýðir framúrakstur bannaður þá er það bara ein ein reglan til að brjóta. Skil ekki þetta viðhorf til umferðarlaganna. Það myndi eitthvað heyrast ef önnur lög væru brotin af jafn miklum ásetningi og jafn oft og umferðarlögin. Þarna þarf viðhorfsbreytingu til og þar geta bloggarar átt upphafið. Tökum okkur saman, hvetjum þá sem við þekkjum til að virða hámarkshraða og aka eftir aðstæðum og það sem mikilvægara er gerum það sjálf. Látum ekki lengur nægja að blogga um slysin, gerum eitthvað, leggjum okkar af mörkum til að koma í veg fyrir þau.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Svo satt hjá þér!! Gleðilegt sumar og hafðu ljúfa helgi ps held að stelpan þín og guttinn minn séu í sama bekk í Heiðarskóla 8 bekk sem sagt passar það ekki?

Brynja skordal, 25.4.2008 kl. 00:46

2 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Í alvöru, jú hún er þar. Hvað heitir strákurinn þinn. Ætli ég hafi þá ekki oft séð þig uppí í skóla he, he. Endilega kíktu í kaffi á Fellsenda. Er alltaf heima.

Bylgja Hafþórsdóttir, 25.4.2008 kl. 07:27

3 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Ætla að birta þessa færslu einu sinni á dag í viku. Hætt að vera ein af þeim sem situr á rassinum og bíður eftir að hlutirnir breytist af sjálfu sér eða láta aðra um að breyta þeim.

Bylgja Hafþórsdóttir, 25.4.2008 kl. 07:35

4 Smámynd: Brynja skordal

Hann heitir Ingimundur....já takk kannski ég geri það einhvern daginn það væri gaman að hittast

Brynja skordal, 25.4.2008 kl. 09:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband