Hvíldartíminn og vegagerðin.

Málið  með hvíldartímann er að það er ekkert svigrúm. Finnst ykkur í alvörunni almenningi bjóðandi að alls staðar í vegköntum séu vörubílar sem á okkar mjóu vegum getur skapað gríðarlega hættu. Í þessari sömu reglugerð og hvíldartíminn er tekinn úr er nefnilega ákvæði sem segir að vegagerðin eigi að skapa nauðsynlegt svigrúm til að hægt sé að framfylgja þessari reglu úr bákninu með því að búa til hvíldarplön og aðstöðu fyrir bílstjórana til að hvíla sig. En þeir bara kjósa að horfa fram hjá þeim hluta reglugerðarinnar sem snýr að þeim. Og það vita það allir að á Íslandi getur hver mínúta skipt máli um hvort þú kemst á áfangastað áður en verður ófært. Myndi ykkur langa til að hanga uppi á einhverri heiði fyrir vestan í þrjú korter í vitlausu veðri til þess eins að framfylgja reglugerð sem er gerð af hvítflibbakörlum sem aldrei hafa til Íslands komið  eða stigið upp í vörubíl. . Gera sér enga grein fyrir íslenskri veðráttu og aðstæðum eða  að hér er ekki verið að keyra eftir hraðbrautum hundruðir eða þúsundir kílómetra . Hreinlega efast um að þeir fatti að til séu þjóðvegir eins og okkur er boðið upp á hér á Íslandi og er líka bara skítsama.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Mar Gunnlaugsson

Eflaust margt til í þessu hjá þér.

Þorsteinn Mar Gunnlaugsson, 25.4.2008 kl. 08:18

2 Smámynd: Ólafur Þór Gunnarsson

Þetta er nú ljóta bullið í þér kona. Lestu reglugerðina um hvíldartíma, sérstaklega 13. greinina. Það er ekkert í reglugerðinni sem gæti orðið til þess að það bílar væru lagt út um allt.

http://us.is/scripts/WebObjects.dll/US.woa/swdocument/415/Regluger%C3%B0+um+aksturs-+og+hv%C3%ADldat%C3%ADma+%C3%B6kumanna+o.fl.,+nr.+662_2006.pdf

Í Alvöru talað! 

Ólafur Þór Gunnarsson, 25.4.2008 kl. 08:31

3 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 27.4.2008 kl. 17:06

4 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Sæl ..... Maðurnn minn er flutningabílstjóri, þar af leiðandi veit ég um ýmiss mál.   Hann má keyra x tíma á sínum bíl og búið.......... en hann getur sest upp í okkar einkabíl og keyrt kanski í 10 tíma  ósofin og má þá aftur fara á flutningabílinn ??  Tek svona öfgadæmi en er þetta í lagi ????????

Erna Friðriksdóttir, 29.4.2008 kl. 18:01

5 Smámynd: Brynja skordal

innlitskvitt hafðu ljúfa viku

Brynja skordal, 6.5.2008 kl. 11:57

6 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Kjartan Pálmarsson, 6.5.2008 kl. 13:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 145485

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband