Nýr sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar!!!

Orð að engu gjörð. Ég gat ekki stillt mig um að senda háttvirtri sveitarstýru bréf í tölvupósti í morgun, þrátt fyrir að hafa lýst því yfir að ég ætlaði aldrei að tala við hana meir. Ég bara verð sífellt gramari og gramari yfir móttökum hennar á fundi okkar um daginn og meira og meira hissa. Áðurgefin munnleg loforð kýs hún að láta sem vind um eyrun þjóta og að hafa þannig að engu heiður og æru forvera hennar. Það er eins og hún haldi að við séum einhver óþjóðalýður sem ætlar sér bara að lifa á hreppnum eða ég veit ekki hvað það er. En hér fyrrum voru munnleg loforð engu minna marktæk en skrifleg. Fólk settir æru sína að veði og þótti skömm og ærumissir að ganga á bak orða sinna. Þannig að ég spurði hana bara að því hvar hennar æra væri. Ég meina, hún er þarna að taka við hlutverki sveitarstjóra og ætti að höndla málið samkvæmt þvi, finnst mér en ekki eftir geðþóttaákvörðun byggða á persónulegu áliti hennar á okkar stöðu sem ég leyfi mér að efast um að hún hafi kynnt sér til hlítar fyrir títtnefndan fund. Það vita allir sem vilja, að bréfið sem ég skrifaði sveitarstjórn á sínum tíma þar sem ég óskaði eftir aðstoð þeirra var skrifað að beiðni starfandi sveitarstjóra þá, svo að þeir hefðu eitthvað haldbært í höndunum til að geta fjallað um okkar mál á fundi að því að þeir voru allir af vilja gerðir til að aðstoða okkur en svo hefur hún störf og gerir að engu allt sem búið er að vinna og bara með orðum. Þar gilda þau sem gullinn gjaldmiðill. Skyldi ég fá eitthvert svar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gauti Halldórsson

Hæ Bylgja ,mikið er ég þér sammála,en þá spyr ég þig að einu, þar sem þetta mál var komið í  einhvern farveg hjá fyrrverandi sveitastjóra,hefur sveitastjórnin þá ekkert um það að segja hvernig nýr sveitastjóri höndlar málið, nei ég bara spyr???????

Gauti Halldórsson, 27.5.2008 kl. 08:44

2 identicon

didda (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 10:22

3 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Veit það svei mér ekki, var að senda sveitarstjóra tölvupóst þar sem ég óska eftir formlegri neitun frá þeim og upplýsingum um hvort og hvenær þá félagsmálanefnd hefur fjallað um okkar mál þar sem ég finn ekkert um það á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar og formaður félagsmálanefndar sagði mér sjálf að þau hefðu ekkert getað fjallað um þetta þar sem þau vissu ekkert hvernig þau ættu að gera það. Vil fá betri rökstuðning fyrir neitun en munnlega neitun og að við föllum ekki inn í einhvern ramma og séum með of háar tekjur.

Bylgja Hafþórsdóttir, 27.5.2008 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 145501

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband