Hvenær flyt ég-Getraun mánaðarins!!!

He he, hér koma nokkrar myndir sem teknar voru í gær af húsbyggingunni. Svei mér þá húsið fýkur uppi, þessir drengir eru með rakettu í rahóinu, svei mér þá bara. Hjalti, pabbi, Hemmi, Brynja og Aron minn eru eins og vélmenni svo hratt gengur þetta. Tilkynnti Hjalta í gær að ég ætlaði að flytja inn um helgina.Tounge Ne þetta er yndislegt eins og sjá má af meðfylgjandi myndum, held það verði slatti af liði í mat í hádeginu svo eins gott að fara að undirbúa eitthvað gott. Engginn Hótel Hellisands matseðill hér, bara gammeldags kjarngóður heimilismatur. Held að Rabbi sé líka í dag með 1-2 Pólvera með sér svo steiktur fiskur verður það heillin. Elska mína ótæmandi frystik istu já og þann sem sér um að fylla á hana, he he.

 Veðrið er meira en dásamlegt, ætla sko að setjast út og þykjast vera að raða pappírum í bókhaldið. Mappan bíður og slatti af pappír svo hvað gæti verið betra en að steikja sig aðeins í leiðinni.

Já sko og meira af getrauninni, sá sem verður næst réttum tíma fær að vera grillmeistari í reisugillinu, he he. Devil og fær kannski 1 bjór að launum líka. Nei, grín. Hvenær haldiði að ég flytji. Vil annars fara að komast í að mála utanhússklæðinguna, er fín í því þó ég viti varla hvað snýr fram og aftur á hömrum og öðru verkfærum. SÍLSAÞJAPPAN SKO!!. Þegar maður á svona marga handlagna bræður að ég tali nú ekki um snillinginn hann föður minn, ja þá til hvers að vera að læra eitthvað þess háttar. Er líka ein af þeim sem á erfitt með skrúfganga, veit aldrei í hvaða átt á að skrúfa, he he, algjör ljóska. HENTU Í MIG HAMRINUM, NEI PENSLINUM!!.

LOVE YOU ALL.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Æ ég er ekki góð í að grilla svo ég ætla ekki að inna þessa etraun hehehehehe, en vonandi kemstu inn sem allara allra fyrst í fallega húsið þitt.

Góða og viðburðaríka helgi

Guðrún Jóhannesdóttir, 4.7.2008 kl. 10:39

2 Smámynd: Brynja skordal

vá hef ekkert kíkt á bloggið þitt og þið bara að fara flytja í nýtt hús æðislegt til lukku með það öll ætla að skoða myndirnar hafið góða helgi mín kæra

Brynja skordal, 4.7.2008 kl. 14:24

3 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Takk kærlega fyrir kveðjurnar elskurnar mínar. Já, þeir eru ótrúlegir, pappinn og lekturnar komnar á fyrir þakskífurnar sem ef ég þekki mína menn rétt fara á í næstu viku. Þá vantar bara utanhússklæðninguna hí hí. Inni þarf að flota og setja upp milliveggi og bara þetta er ótrúlegt. Sýnist stefna í að október sé vanáætlað hjá mér verður örugglega ágúst með þessu áframhaldi he he. Útveggirnir eru klárir til spörslunar og málningar að innan, allar rafmagnsdósir í og ekkert eftir nema að draga í þær. Veit ekki hvað þarf að gera við loftin. Eru upptekin þar sem á við og allt. 

Bylgja Hafþórsdóttir, 4.7.2008 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband