Datt niður í djúpan pytt, enn einu sinni....

... en er smám saman að skríða upp úr honum aftur. Mér var fleygt út í af þvílíku afli að ég hélt að ég myndi ekki hafa það af, allavega þá stundina leið mér eins og mig langaði ekki til að lifa það af. En það er eigingirni, finnst mér, og ekkert annað svo ekki annað að gera en setja í lága drifið og druslast upp úr. Hjartað mitt brotnaði einu sinni enn, og enn einu sinni þurfti ég að ná í súper glúið og líma það saman á ný. Þegar eitthvað svona gerist þá verð ég að vera ein, ekkispyrja mig af hverju. Þannig að ég tók sængina mína og koddann og svo brúnó mnn og við keyrðum um og fundum okkur góðan nætursta og sváfum í Súbbanum, svona meðan ég var að ná áttum. Þeir sem þurfa, vita hvað gerðist og virðingarleysi við viðkomandi aðila að fara eitthvað að tala um það hér. En þetta er semsagt ástæðan fyrir bloggleysi undanfarinna daga.

En annars gengur rífandi vel með húsið, þakskífurnar næstum klárar og einnig lekturnar fyrir utanhúsklæðingu. Hér er því oft ansi fjölmennt í litla sæta eldhúsinu á Fellsenda og hér glymur pólska, enska og íslenska í bland. Þeir eru yfirmáta ánægðir með matinn og grínast með það að aðaltilhlökkunatefni dagsins sé að koma á Fellsenda í hádeginu og borða. Hí hí, ég verð að standa undir nafni. Svo hef ég fært þeim kaffibrauð og eitthvað kalt að drekka í kaffitímanum.

 Annars fer líka mikill tími hjá mér í að dekstra við kallinn, held við höfum ekki verið svona mikið og oft saman síðan við kynntumst sem er bara æði. Þvílík vítamínsprauta fyrir sambandið. Nú er hann kominn í göngugifs og á aðeins betra með að staulast um. Svo höfum við verið svo mikið bara tvö heima og höfum sko nýtt okkur það vel. Hí Hí.

Tókum einn af okkar frægu bíltúrin, skoðuðum Hvanneyri, fórum yfir gömlu Borgarfjarðarbrúna, ég keyrði að sjálfsögðu. Beygðum svo eins og við værum að fara til Búðardal, yfir Heydalina, fundum þar fjallaslóða inn í lítið sætt dalverpi og lögðum okkur þar með teppi og næs. Því næst var keyrt sem leið lá í Stykkishólm og þar bauð þessi elska mér í mat á "Fimm fiskum". Hvílkt nammi nammi hef ég sjaldan smakkað. Fengum okkur fiskisúpu í forrétt og humar framreiddan á teini í aðalrétt. OMG, borðaði svo mikið. Meira en minn 100 kílóa maður, he he, kláraði mun meir af súpunni og át svo restina af humrinum  hans þegar hann var sprunginn. Tí hí. Hann sagðist ætla að fara með mig út bakdyramegin. En krakkarnir sem voru að vinna þarna voru líka alveg yndisleg, kammó og skemmtileg og þjónustan snör og flott. Skora á alla sem kunna að meta fiskmeta að fara þarna, er heldur alls ekki dýrt.

En heimkoman endaði í algerri vitleysu, einn af þessum atburðum þar sem eitt lítið korn fyllti mælinn og kornið það var dýrt í þetta skiptið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ææiææ elsku vina send ykkur fallega strauma

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 13.7.2008 kl. 00:23

2 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Skil þig vel að þurfa stundum að vera ein.     Ég þarf þess líka .....  Sumir geta ekki skilið það að maður vill vera einn með sjálfum sér    :(        Vona að allt gangi sem allra best hjá þér  

Erna Friðriksdóttir, 15.7.2008 kl. 09:27

3 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons

Kjartan Pálmarsson, 15.7.2008 kl. 13:18

4 identicon

úff, vona að þér sé farið að líða betur...þessi litlu korn maaaaaaður...þau eru ansi kraftmikil stundum...fjúúúú...

alva (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 03:26

5 Smámynd: egvania

Bylgja mín, þessi litlu korn eru svo sterk að aðeins þarf eitt til að gera lífið vonlaust, þau eru því miður oft of mörg í okkar lífi og þörf okkar á því að vilja vera einar er oft vanmetin.

Að detta djúft niður og klóra sig upp aftur er merki um dugnað þinn og kjark til að lifa lengur og njóta barna og barnabarna.

Og eitt enn Bylgja mín, þú ert í ættinni eins og þín börn.

Kærleiks kveðja

                           Ásgerður

egvania, 20.7.2008 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband