Staldraðu við!!!

Staldraðu við,

ástin mín.

Fyrir mig.

Stoppaðu

Líttu til himins,

sjáðu stjörnurnar

sem blika á bláum næturhimni

Staldraðu við

 

Stjörnur,

kjaftæði.

Ég sé bara ský

dökkgrá ský

 

Staldraðu við,

yndið mitt.

Sjáðu baldursbrána

sem svo stolt

svo stolt

rífur sig upp úr óræktinni

Gerðu það,

staldraðu við.

 

Hvar sérð þú Baldursbrá,

ég sá bara arfa

illgresi,

segir þú.

 

Og þú treður

á fallegu stoltu baldursbránni.

Treður hana niður í svaðið

á skítugum skóm,

með stáltá.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæ Stóra systir, takk fyrir afmæliskveðjurnar hér að neðan:) fer annað slagið á netrúnt og tek mér alltaf góðan tíma í að lesa þessar færslur þínar, alltaf jafn gaman af þeim góðar pælingar:)

Ljóðið hér að ofan er gott:-)stórgott:)

kv.

örverpið:-)

Snævar (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 12:47

2 identicon

Æi, takk elsku krúsílíusinn minn. Sakna þín krúsilíus, á ekkert að skella sér á KS þorrablót á Sigló.

Knúsaðu Karen frá mér.

 BH

Bylgja Hafþórsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 14:52

3 identicon

Sæl Bylgja - við úr 69 árgangnum stefnum að endurfundum á Siglufirði komandi páska - við höfum ekki haft uppá Hafþóri til að láta hann vita og því datt mér í hug að nota þessa leið og biða þig um að koma til mín símanúmeri og netfangi hans.

Kærar þakkir og bestu kveðjur, Vigdis Arna

vigdis@vasaljos.net

Vigdís Arna (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband