OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....

 led_light_bulbshttp://www.joliet-europe.com/

...upp á ljósdíóðuperur hér á Íslandi. Perurnar sem þeir bjóða upp á eru frá hinu virta franska fyrirtæki JOLIET sem hefur um árabil verið leiðandi fyrirtæki í þróun, hönnun og framleiðslu ljósgjafa. allt frá ljósaperum til að nota heima og ljósastaura.

Það verður að segjast að þessar perur eru algjör bylting. Endingartími þeirra er gefinn upp: 50.000 klst. og orkunotkun er bara brotabrot af því sem venjulegar og/eða sparperur nota. Talað er um að munurinn sé allt að 80%.

Ef þróunin í ljósgjöfum fyrir heimili verður eins og fram horfir, líður ekki á löngu að venjulegar perur verði bannaðar eins og nú þegar er að gerast á hinum Norðurlöndunum og LED perur eru frábær lausn.

Heimasíða Obex lausna er hér til vinstri á síðunni minni og hefur verið það lengi þar sem mér finnst þetta fyrirtæki alveg einstakt. Það hefur einbeitt sér að því að flytja inn og markaðsetja lausnir fyrir heimili og fyrirtæki sem á engan sinn líka hér á Fróni og er ekkert að flýta sér að verða eitthvert risagróðafyrirtæki. Þarna finna hestamenn líka frábærar girðingalausnir fyrir hestana sína, lausnir sem henta í alvörunni íslenskum aðstæðum, eru umhverfisvænar, viðhaldslitlar og auðveldar í uppsetningu. En nóg er sagt. Endilega kíkið á heimasíðuna þeirra, svo þið sjáið að ég er ekkert bara að bulla.

www.obex.is

Það verða sko svona perur á nýja heimilinu mínu þegar þar að kemur. Ójá.

http://www.joliet-europe.com/

Skora á ykkur að kynna ykkur perurnar og hafa samband við snillingana í Obex sem fyrst. Síma og annað má finna á heimasíðunni og netföng einnig. 

LOVE Bylgja


mbl.is Boða tilkomu eilífðarperu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 145494

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband