Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???

Fjandinn fjarri mér, mikið þætti mér gaman að sjá inn á hausinn á þeim ,,heiðursmenn-konum" sem að frumvarpinu standa. Hvenær ætla þeir að hætta að koma fram við fólkið í landinu eins og það sé hálfvitar eða nýkomið út úr leikskóla. OK, mátt fá milljón en á 6-9 mánuðum. Hvaða andskotans gagn gerir það. Af hverju í ósköpunum er fólki ekki treyst fyrir eigin fjármunum. Halda þeir að þeir sem eru það illa staddir að þeir sjá sig tilneydda til að taka út séreignasparnaðinn sinn eyði honum í utanlandsferð síðan eða hvað. Ef þessir peningar fara út eiga þeir að fara í innborgun á höfuðstólinn ekki til að greiða uppsafnaða vexti og dráttarvexti og eftir situr fólk í sömu súpunni með höfuðstól sem sífellt vindur upp á sig og eftir örfáa mánuði verður fólk bara sokkið niður að mitti eins og það var. Og hvað á að bjarga þeim þá upp úr pyttinum. Garg. Ég meina það hvernig getið þið leyft ykkur að fleygja út trosnuðu, fúnu reipi fólki til björgunar. Takið frekar eitthvað af þessum vöxtum í burtu.


mbl.is Geti tekið 1 milljón úr séreignasjóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig líst þér þá á fumvarpið um þá sem eru í greiðsluerfiðleikum. það nær bara yfir þá sem skulda íbúðalánasjóð og stóru bankana þrjá (þá sem fóru á hausinn) baa. Það nær ekki yfir fólk sem skuldar lífeyrissjóðslán eða í sparisjóðum. HMMM

didda (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 16:33

2 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

já, þetta er orðið svo fáránlegt að það er ekki einu sinni fyndið. Maður getur heldur ekki annað en hugsað um hvað býr að baki. Ég meina þeir hirði af þessu skatt, fólk missir bæturnar ef það er atvinnulaust og þeir fá peninga í ríkiskassann á auðveldan máta. Svo reyna þeir að telja fólki trú um að þetta allt gert í þeirra þágu. Kjaftæði algert kjaftæði. Guð hvað ég ætla ekki að kjósa.

Bylgja Hafþórsdóttir, 16.2.2009 kl. 18:47

3 identicon

Sæl Bylgja,

Verð að byrja á því að segja hvað þú lítur rosalega vel út,  vááaá.  Eflaust er það norðlenska fjalla- og sjávarloftið sem þar á hlut að máli. 

Ég bara öfunda þig fyrir að verða flutt á gamla góða Norðurlandið.  Hafðu það sem allra best, átt það svo sannarlega skilið.

Kveðja af Skaganum, Þyrí (og Brynjar líka)

Þyrí (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 18:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 145506

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband