Er barátta mín eitthvað að hafa áhrif???

 husid 026

Núna ætla ég að trúa því og treysta sjálfri mér til hvatningar og uppörvunar í baráttunni við að koma myglusvepp á kortið sem raunverulegu og alvarlegur heilsufarsvandamáli að mín saga og reynsla eigi kannski einhvern smáþátt í  því að verið sé að skoða af fullri alvöru hvort myglusveppur geti verið orsök veikinda læknanna. Veit það eitt að þegar ég flakkaði á milli lækna á sínum tíma til að reyna að fá heilsu aftur að þá virtist þetta ekki vera til í læknabókum þeirra sem ég leitaði til. Alla vega datt engum þessi möguleiki í hug. Ekki að sakast við neinn ekki hvarflaði það að mér sjálfri fyrr en ég sá greinina góðu í Vikunni. En kannski verður mál heilsugæslustöðvarinnar til þess að læknar verði fljótari að átta sig þegar sjúklingur kemur til þeirra með eitrunareinkenni af völdum sveppsins og að þeir fari að trúa því að þetta sé raunverulegt vandamál og vinni út frá því. Það þarf að upplýsa fólk og ég vil benda öllum á að lesa bloggið hennar Andreu um þessa frétt. Segir allt sem segja þarf. Hringið í Hús og heilsu ef langvarandi óútskýrð veikindi hafa hrjáð einhvern fjölskyldumeðlim því fólk er misviðkvæmt fyrir áhrifunum og alls ekki allir sem finna fyrir þeim í fyrstu.


mbl.is Fleiri læknar með einkenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Sæl, ég var að spá í hvort við ættum að fylgja málinu þínu eftir í Rödd Alþýðunnar fljótlega? kveðja,

Markús frá Djúpalæk, 27.5.2008 kl. 11:00

2 Smámynd: Andrea J. Ólafsdóttir

hér er bloggið hennar Andreu :)

http://andreaolafs.blog.is/blog/andreaolafs/entry/551970/

Andrea J. Ólafsdóttir, 27.5.2008 kl. 11:07

3 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Setti svar inn á þínar athugasemdir Markús.

Bylgja Hafþórsdóttir, 27.5.2008 kl. 11:53

4 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Takk fyrir þetta Andrea, ekki fattaði ég að gera þetta he he.

Bylgja Hafþórsdóttir, 27.5.2008 kl. 11:54

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Já hún er það Bylgja! Ekki hafði ég hugmynd um að ekki væri búið að finna upp hjólið í þessu einfalda máli...þú hefur reynslunna Bylgja! Það væri nú ekki vitlaus hugmynd að láta þetta málefni daglega á blogginu! Svo alvarlegt er þetta mál. hvað er Rödd Alþýðunnar Markús?

Óskar Arnórsson, 27.5.2008 kl. 14:38

6 Smámynd: Óskar Arnórsson

Éhg er nú bara að reyna að giska á hvað margir hafi dáið af þessum völdum...

Óskar Arnórsson, 27.5.2008 kl. 14:39

7 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Rödd Alþýðunnar er bloggþáttur á Útvarpi Sögu á mánudags- og miðvikudagsmorgnum...

Markús frá Djúpalæk, 27.5.2008 kl. 15:03

8 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

"Sumir" vilja nú meina að myglusveppur sé bara "nýjasta bólan" ásamt rafsegulsviði s.b. blogg um þessa frétt. He He. Hefði nú miku frekar viljað það en að þurfa að rífa húsið mitt og vera veik í tæp 2 ár. Langlíf bólan sú.

Bylgja Hafþórsdóttir, 27.5.2008 kl. 16:57

9 Smámynd: Svandís Rós

Já, ég efast ekki um að rödd þín hefur haft mikið að segja. Fólk virðist almennt vera að opna augun fyrir þessum vágesti. Því miður þá er ég ánægð með að læknarnir fundu fyrir þessu, það er svo auðvelt fyrir þá að segja "móðursýki" þar til þeir eða einhver í þeirra stétt lendir í þessu. Myglusveppir eru ekkert grín og það er engin óskastaða að missa allt sitt... fólk leikur sér ekki að slíku.

Svandís Rós, 27.5.2008 kl. 18:34

10 Smámynd: Gauti Halldórsson

Ókei þetta líst mér vel á ,fólk er ekki á þeim buxunum að láta þetta kyrrt liggja,tökum nú höndum saman og hjálpum Bylgju og ívari að rétta úr kútnum og sínum hvað í okkur býr,ekkert af þessu yfirvaldspakki eins og ég vil kalla það hefur ekki rétt þeim hjónum svo mikið sem litla putta í þeirra málum............kær kveðja ..hlíðarbæjarliðiðá 20

Gauti Halldórsson, 27.5.2008 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband