Megi þau ganga aftur!!!

Fer best á því að jarðsett loforð okkar heittelskuðu ríksisstjórnar gangi aftur allt kjörtímabilið og ásæki þau í draumum sínum til að minna þau á að svona gerir maður bara ekki. Ef þau færu og kitluðu olíufélögin einnig þá væri það flott. Kominn tími til að þau hækki sína smánarlegu afslætti til viðskiptavina sinna í stað þess að stinga krónunum í eigin vasa sem þau græða á að hafa ekki breytt honum í samræmi við hækkanirnar á olíuverðinu. Vona að bílstjórar taki sig saman sem fyrst og fari allir sem einn í eins og viku veikindaleyfi, hvað verður um þjóðfélagið  þá.


mbl.is Táknræn útför á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Ég verð líklega fyrr kominn á hið háa Alþingi áður enn við sjáum vörubílstjóra alla sem einn gera eitthvað saman.

Svo var þetta líklega skemmtilegasta útför sem ég hef verið viðstaddur, skrýtið! 

Kjartan Pálmarsson, 29.5.2008 kl. 18:44

2 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Já ætli það ekki. Því miður. Ætli blessuð ríkisstjórnin sé ekki fegin að fá eitt stykki jarðskjálfta til að draga athyglina frá mótmælunum. He he. Var að hugsa um að bruna suður en tímdi því ekki. Alger nánös þessa dagana.

Bylgja Hafþórsdóttir, 29.5.2008 kl. 20:14

3 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Helv............. jarðskjálftinn........................   ég held að fólk sem eigi nóg af peningum sé alveg shitt sama hvað bensín eða olía kostar.........og það á einmitt við okkar menn á Alþingi , amk flesta sem að við kusum...........

Við kusum þetta fólk ...... og meirihlutinn ræður...... það er aftur á móti spurning hvort ekki ætti að fara fram lýðræðisleg kosning um kaup og kjör Ráðherra og alþingismanna, þá á ég við að við sem að höfum kosningarrétt,  höfum einnig tök á launum þessara einstaklinga  og erinda þeirra í ferðalög. Það hlýtur að skipta okkur máli ?? eða hvað finst ykkur ??????

Erna Friðriksdóttir, 29.5.2008 kl. 23:04

4 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Bæti svo við því ég er ekki kunnug því. Hver ræður þessum launum ??? eru sér kjarasamningar fyrir Ráðherra og alþingismenn ? spyr bara af fávisku minni ???

Erna Friðriksdóttir, 29.5.2008 kl. 23:06

5 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Það er þessi blessaða kjaranefnd svo kallaða sem ákveður laun ráðherra og alþingismanna, forsetans,hæstaréttardómar og sjálfsagt fyrir einhverja fleiri pabbarassa.

En þá vaknar spurningin, hver velur eða ræður í þessa kjaranefnd?

Kjartan Pálmarsson, 29.5.2008 kl. 23:13

6 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Eru það kannski pabbarnir?

Kjartan Pálmarsson, 29.5.2008 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband