Færsluflokkur: Sjónvarp
20.4.2008 | 10:45
Spaugstofumenn sýna enn og aftur snilldartakta
Held að alþingi ætti að leiða í lög að áhöfnin á þjóðarskútunni verði skyldug til að horfa á spaugstofuna á laugardagskvöldum. Glöð myndi ég greiða laun þeirra við áhorfið það. Enn einu sinni tókst þeim spaugstofumönnum á sinn einstaka hátt að draga saman og gera hæfilega mikið grín að ástandinu í þjóðfélaginu þessa dagana. Björgvin Franz var svo rjóminn á kökuna í hverju gervinu á fætur öðru eins og honum einum er lagið. Það þarf einstaka hæfileika til að gera eins alvarlega hluti jafnfyndna eins og þeim tókst í gær að gera og í leiðinni halda manni við efnið að það sé eitthvað mikið að. Okkur Íslendingum hættir nefnilega til að gleyma, það er svo helvíti hentug leið til að forðast það að gera eitthvað sjálfur í málunum. Gott að þykjast bara ekki muna og láta aðra um að vinna vinnuna. Hversu lengi ætla Reykvíkingar t.d. að horfa í hina áttina varðandi stjórnunina á höfuðborginni okkar í von um að hlutirnir leysist án þess að þeir þurfi að hafa eitthvað fyrir því. Það er löngu orðið tímabært að þeir sem þykjast vera að stjórna borginni viðurkenni fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir hafi reist sér hurðarás um öxl og fari og finni sér starf sem hæfir þeirra kunnáttu. Kjartan, sagnfræðingur gæti kennt mannkynssögu, Gísli getur farið í sjónvarpið og brosað þar sínu sakleysilega brosi framan í landsmenn. Það virkaði þar en því miður, Gísli minn, þá virkar það ekki í borgarstjórn. Vilhjálmur, vilt þú ekki bara skella þér á eftirlaun, Ólafur gæti stundað huglækningar. Þessir fjórir sérstaklega finnst mér að ættu að láta sig hverfa, leyfið Hönnu Birnu, Júlíusi og þeim sem eitthvað hafa í kollinum um stjórnunarhætti að sanna sig. Þau gætu þá fengið til liðs við sig fólk sem veit hvað það er að gera og hugsar ekki bara um rassinn á sjálfum sér. Takið Björn Inga til fyrirmyndar og látið ykkur hverfa ef þið getið ekki farið eftir litlu gullkorni úr Dýrunum í Hálsaskógi. ,,Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir".
Enn aftur að spaugstofunni. Múmíur sem hagfræðingar Seðlabankans, Bónus grísinn eina sem unnið gat á greifanum, snilld, snilld og aftur snilld. Áfram svona Spaugstofumenn.
Varð að skella þessu myndbandi hérna inn, lýsandi fyrir????
http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&ba=leita&leit=gíraffi%20í%20kviksyndi&id=2711
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar