15.3.2008 | 09:08
Myglusveppur-Ósýnilegur skaðvaldur
Ég ætla að að þráast við og halda áfram að skrifa um myglusveppinn. Systir mín er bókasafnsfræðingur ogaðstoðaði mig við leit á Internetinu að íslenskum greinum um myglusveppi en okkur til mikillar furðu þá fundum við nær ekkert. Kannski lýsandi fyrir hversu skammt á veg umræða og aðgerðir gagnvart þessum óþverra hérlendis. Eina greinin sem við fundum sem teljast mátti upplýsandi er inni á vef Náttúrufræðistofnunar og er slóðin af henni eftirfarandi: http://www.ni.is/grodur/Flora/Sveppir/sveppatidindi/greinar//nr/458 Fyrirtækið Hús og heilsa er eina fyrirtækið sem ég fann hér á landi sem eitthvað lætur sig þessi mál varða. Það fyrirtæki var stofnað að hjónum sem sjálf lentu í baráttu við myglusveppi og blöskraði úrræðaleysi landans í þessum málum. Hún er líffræðingur og án vafa sú manneskja hér á landi sem mest veit um myglusveppi. Þau eru með heimasíðu og er slóðin á hana: www.husogheilsa.is Á síðunni þeirra má finna fræðslu og tengingar á góðar heimasíður. Erlendis hefur orðið mikil vakning og þá vil ég sérstaklega tiltaka Svíþjóð og Bandaríkin, um skaðsemi þessa ósýnilega gests og þar taka stjórnvöld hart á þessum málum. Fjöldinn allur er til af heimasíðum um áhrif sveppanna á heilsu fólks, einkennum lýst, viðbrögðum og ráðum og til gamans má geta þess að síðasti þáttur um Doc. Martin á RÚV gekk einmitt út á veikindi af völdum myglusveppa. Gerðar hafa verið heimildarmyndir og myndir og held það væri heillaráð fyrir sjónvarpsstöðvarnar að taka eitthvað að þeim til sýninga og opna þannig augu almennings fyrir þessari vá. Einnig mættu læknar þessa lands fara að kynna sér þessa hluti betur. Þá kannski þarf maður ekki sjálfur að sjúkdómsgreina sig og tilkynna þeim hvað er að manni. Það er erfitt að finna þetta í venjulegum rannsóknum, kemur einungis fram í blóðprufum í 50% tilfella segir á netinu. En ég held að flestir viti hvað það er lýjandi að ganga á milli lækna til að reyna að fá bót meina sinna og fá engin svör.
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.