17.3.2008 | 15:48
Myglukellingin komin á kreik.
Ég vildi að ég væri þannig gerð að ég gæti haft sambank við fjölmiðlana, sjónvarpið blöðin og útvarpið til að vekja athygli á minum málum. Finnst þetta hreinlega mannréttindabrot gagnvart dóttur minni að geta ekki boðið henni upp á það öryggið sem eigið heimili býður. Mér finnst ég hafa fórnað alltof miklu en dýrunum mínum ætla ég ekki að fórna sem ég þyrfti sennilegast að gera ef ég hefði ekki fengið inni á Fellsenda. Ég á 2 hunda, kött, naggrís og 2 froska og eftir því sem ég hef heyrt þá finnst leigusölum það ekki aufúsugestir. Dóttir mín er 14 ára, unglingur sem sagt og auðveld í samskiptum sem betur fer. Henni finnst jafn leiðinlegt að eiga ekkert heimili og mér en sættir sig við hlutina eins og þeir eru, þó hún hafi þurft að flytja lengra í burtu frá vinum og vinkonum. Hefur einangrað sig að vísu en hér er sem betur fer frábær skóli og frábærir krakkar og það er orðið hennar aðal tilhlökkunarefni að komast í skólann á morgnana. Mér gremst alveg gríðarlega að finna hvergi neina stofnun innan íslenska sjtórnkerfisins sem eitthvað veit um myglusveppi og viðbrögð við honum. Samskipti mín við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hjá voru bara fyndin. Aðalmálið hjá blessuðum heilbrigðisfulltrúanum var að ég er reykingamanneskja. Hann vildi ekki einu sinni skoða skriðkjallarann þar sem hann mætti á blankskónum sínum. Það sem varð til þess að myglusveppurinn fékk að grassera svona lengi án þess að uppgötvast var staðsetning hans. Skriðkjallari sem ekki nokkur maður fór niður í. Motta yfir lúgunni og eina fólkið sem nokkru sinni fór niður voru þeir sem komu að lesa af hitanum sem var 1-2 á ári. Einskis varð vart í íbúðinni sjálfri, hvorki lykt né annað þar sem ég var mikið með opið út af hundunum og þarf að hafa ferskt loft í kringum mig. En í aðeins einu sýni, átti ekki pening fyrir fleirum, sem tekið var þarna niðri og sent í rannsókn voru 4 teg. myglusveppa og því alls ekki hægt að útiloka að fleiri tegundir væru til staðar.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.