24.3.2008 | 11:15
Hvað þarf til til þess að Vegagerðin átti sig???
Mér er nú bara orðið nóg boðið af sinnuleysi Vegagerðarinn. Af hverju í ósköpunum hafa þeir ekki manndóm í sér til að fullklára Reykjanesbrautina áður en hún annað hvort slasar fleiri eða leggi að velli. Það kostar þjóðarbúið líka mikla peninga að hafa hana í ástandi sem þessu. Að fjöldinn allur af fólki slasist eða látist vegna aðgerðarleysis og slóðaháttar stjórnvalda. Það verður bara að rubba þessu af þó það kosti peninga. Mannslíf og heilsa fólks verður aldrei metin til fjár. Hættið þessum afturkreistings- og nánasarhætti og farið að leggja peninga í undirstöðu íslensks samfélags, vegina. Það byggir enginn hús á sandi nema sá heimski og maður byrjar ekki á þakinu. Tónlistarhús og annað þvíumlíkt getur beðið en ekki vegirnar.
Fimm á slysadeild eftir umferðarslys | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað þarf til þess að menn keyri eftir aðstæðum
VIGDÍS HULDA KRISTJÁNSDÓTTIR (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 12:02
þið þarna fyrir sunnan þið kunnið alls ekki að keyra eftir aðstæðum punkur
VIGDÍS HULDA KRISTJÁNSDÓTTIR (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 12:04
Þetta eins og allir hinir árekstrarnir og útafkeyrslurnar á Reykjanesbrautinni skrifast á kennitölubraskarana í Reykjanesbæ í minni bók sem settu Jarðvélar á hausinn eins og allt annað sem þeir koma nálægt...
Valbjörn Júlíus Þorláksson, 24.3.2008 kl. 14:02
..Vigdís mín! Ég er líka búin að búa í sveit þar sem maður verður að keyra traktorinn eftir aðstæðum. Við erum að tala um vegi fyrir, þ.e. ákveðinn fjölda fólks sem þarf að komast á milli. Þú skilur þetta betur þegar þú kemur til Reykjavíkur og sérð að það er ekki mikið af traktorum á ferðinni hér..ég skal sýna þér bíl ef þú hefur aldrei séð svoleiðis faratæki, en ég get fullvissað þig um að þér á eftir að líka við að keyra þá..það vita allir hér sem eru með bílpróf að það á að keyra eftir aðstæðum...hvar býrðu annars? ..á eyju í Breiðafirði?..fallegur staðurr..en þar ferðast ég oftast með bát og verða að haga mér eftir vindum og straumum..passaðu þig á frostinu í sveitinni og ekki lenda æi neinum vanræðum með veðrið Vigdís mín...maður verður að haga rér eftir aðstæðum....
Óskar Arnórsson, 25.3.2008 kl. 06:09
He, he Góður´Óskar. Æi, ég nennti ekki að svara þessu. Svo fáránlegt þegar fólk er að tjá sig um eitthvað án þess að hafa vit á. Ef hún hefði aðeins litið í kringum sig þá hefði hún séð að af rúmlega 40 ára ævi þá hef ég einungis búið hér í Hvalfirðinum í 7 ár. Annars alla tíð á Siglufirði, Ólafsfirði og Akureyri. Og flestar manneskjur með einhverju vita hvernig vegirnir eru til og frá Sigló og Ólafsfjarðarmúlinn var nú ekkert lamb að leika sér við. Norðlenskur sjór og norðlenskir vegir eru það sem mín akstursreynsla byggist á, sem betur fer.
Bylgja Hafþórsdóttir, 25.3.2008 kl. 08:20
He he góður. Held að þetta hljóti að vera einhver krakkaræfill sem aldrei hefur farið Reykjanesbrautina.
Bylgja Hafþórsdóttir, 26.3.2008 kl. 08:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.