26.3.2008 | 08:49
Myglumelurinn minn vonandi til þess að ýta eitthvað við stjórnvöldum og öðrum sem hafa með svona mál að gera.
Eins og kannski einhverjir hafa séð þá birtist frétt á Stöð 2 í gærkvöld um hvernig fór fyrir veraldlegum eigum okkar hjóna. Það voru blendnar tilfi.nningar sem bærðust með mér þegar Lára Ómarsdóttir hafði samband við mig í gærmorgun og vildi fá að gera þessa frétt. Aðallega vegna þess að ég er ekki mjög framfærin eftir öll þessi ósköp, dreg mig í hlé við svona áföll. Veit ekkert af hverju, örugglega bara mín leið til að fá tíma til að vinna úr hlutunum. Var rétt að skríða út úr gömlu skelinni, eins og einsetukrabbarnar, eftir síðasta áfall þegar þetta dundi yfir. Var komin af stað í sveitapólitíkina við síðustu sveitarstjórnakosningar, var í umhverfisnefnd sveitarfélagsins og 3ja manna stýrihópi um staðardagskrá og hvað eina. Hætti þessu öllu saman og lagðist í hýði hér uppi á Fellsenda. Get bara ekki hugsað mér að vera byrði á einhverjum og ef ég tek eitthvað að mér þá vil ég geta sinnt því 120%. Hvernig á það að vera hægt þegar maður stendur ekki einu sinni undir sjálfum sér og getur einungis sinnt brotabroti af heimillisstörfunum. En hægt og hægt er ég að skríða úr þessari skel einnig og er það ekki síst blogginu að þakka. Góð viðbrögð ykkar sem lesið bloggið mitt voru líka hvatning til mín í að láta vaða og fara í þetta viðtal. Með því var hluta þess tilgangs náð sem ég hafði upphaflega með stofnun bloggsins sem var að reyna einhvern veginn að vekja athygli á þessum skaðvaldi sem myglusveppurinn er. Og nú er hlaupið kapp í mína. Ég er búin að einsetja mér að trúa því að ég sé fær um að knýja fram viðhorfsbreytingu í samfélaginu gagnvart þessum fjanda. Háleitt markmið.... og ofursjálfstraust, það verður ég næstu vikur og mánuði eða eins lengi og þarf. Skora á alla sem sjá þetta pár mitt að fara inn á heimasíðu Húsa og heilsu og lesa sér til um myglusvepp, skaðsemi hans, sjúkdómseinkenni og annað sem þar er. Frábær upplýsandi síða hjá þeim Sylgju og Pálma: www.husogheilsa.is
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég vona svo heitt og innilega að frétt Stöðvar 2 veki einhvern til ábyrgðar þó ekki sé nema gagnvart náunganum.
Annars verð ég að segja það að ég er í sjokki ykkar vegna og vona að einhver komi með útrétta hönd ykkur til aðstoðar.
Hvernig fór svipað mál hjá fólki í Hafnarfirði um árið? Ég man bara eftir því máli en ekki hvernig málin þróuðust hjá því fólki. Hefurðu kannað það eitthvað?
Kjartan Pálmarsson, 26.3.2008 kl. 09:16
Takk fyrir athugasemdina Kjartan. Held þú sért að meina veggjatítluhúsið fræga í Hafnarfirði. Það fór þannig að bjargráðasjóður, sjóður sem sveitarfélögin eiga, greiddi þeim einhverjar bætur en þegar ég hafði samband við þá, þá vöru svörin þau að þeir væru hættir öllu þess háttar. Engar ástæður gefnar eða neitt. Hah, takk fyrir að spyrja, nú verður mín að blogga um þetta, var búin að gleyma þessu. Er að verða eins og þessi í áramótaskaupinu hí hí.
Bylgja Hafþórsdóttir, 26.3.2008 kl. 09:33
Er þá ekki best að láta Þórhall REKA málið. hahaha.
Gangi þér og þínum bara svakalega vel í þessu flækjumáli.
Kveðja úr Kópavoginum
Kjartan Pálmarsson, 26.3.2008 kl. 09:44
Þú varst flott í sjónvarpinu. Ég er óendanlega stollt af ykkur að geta þetta en ég er að velta fyrir mér hvort þú viljir ekki setja reikningnsnúmerið ykkar hérna inni því margt smátt safnast saman og ég veit að það hefur sýnt sig að þegar svona stendur á þá geta Íslendingar hjálpað. En ég er líka sammála þér að það á að fá einhvern til ábyrgðar á þessu, alveg fáránlegt að vera með allar tryggingar o.s.frv. en vera svo ekki tryggður
Gangi ykkur vel elskurnar
kveðja Elísabet
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 26.3.2008 kl. 09:55
Gat ekki annað en glott þegar ég sá fréttina fyrir ofan fréttina af mygluhúsinu mínu inni á Vísi.is. VAARRÐÐ að commenta á hana. Bwahaha.
Bylgja Hafþórsdóttir, 26.3.2008 kl. 10:27
Já þeim er misskipt lífsinngæðum
Kjartan Pálmarsson, 26.3.2008 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.