8.4.2008 | 08:47
Siglufjörður, hér kem ég!!!
Ef maður gefur sér ekki tíma til að hlaða batteríin endar það bara á einn veg þannig að.....
.... ég er farin til Siglufjarðar í afslöppun hjá mömmu. Er komin hátt á fimmtugsaldur en samt er alltaf best að skríða til hennar þegar orkan er búin. Svo í gær hringdi ég og fékk frí fyrir fermingarbarnið mitt í skólanum út þessa viku, redaði pössun fyrir hundana , og nú skal haldið norður á bóginn. Ætla að vera fram á föstudag og ekki gera neitt nema það sem mér finnst skemmtilegt. Göngutúrar framundan, heimsækja vini og ættingja og bara chilla. Síðustu vikur hafa verið viðburðaríkar svo ekki sé meira sagt og ég er hlaupin. Fermingin gekk frábærlega og er ég nú sú eina af systkinunum sem er búin að ferma öll börnin. Hí hí. Allir voru boðnir og búnir til að hjálpa til og ein bróðurdóttirin sá til þess að allt gekk eins og smurt í veislunni. Algjör hetja, vann á við fjóra. En er búin að setja inn nokkrar myndir sem ég fékk sendar frá tengdamömmu. Eins og mín er von og vísa þá finn ég ekki myndavélina, nú þegar ég ætlaði að demba inn slatta af myndum. En það kemur bara síðar.
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flott hjá þér að skella þér í sveitasæluna, já og innilega til hamingju með skvísuna. Rosa flottar myndir :-)
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 8.4.2008 kl. 10:36
Kæra vinkona.
Til hamingju með dömuna og njóttu þess að vera á Sigló. Alltaf gott að koma heim.
Kveðja úr hinum hluta Fjallabyggðar
Bjarkey (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 13:50
Til hamingju með fermingarbarnið,,,,,,, ég á eftir að ferma 1 barn ...næsta ár :) Síðust af mínum systrum he he he. Vona að þú hafir það gott á Sigló, það er svo gott að koma í svona sveitarþorp he he he svipað og ég bý í, hef reyndar ekki heimsótt Sigló frá því ég var unglingur :( Bestu kveðjur
Erna Friðriksdóttir, 8.4.2008 kl. 16:09
Hafðu það gott á Siglufirði. Ég held uppteknum hætti við að minna á söfnunina.
Markús frá Djúpalæk, 8.4.2008 kl. 19:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.