9.4.2008 | 18:54
Jú, endilega bíða þar til fleiri eru fallnir!
Finnst þetta vægast sagt óheppilegt orðaval hjá virðulegum Einari og kannski lýsandi fyrir hugsunarhátt þann sem viðgengst hjá þeim sem eitthvað hafa með vegamál að gera. Og ekki bara þeim, eins og ég hef áður sagt þá virðist aldrei vera hægt að gera neitt til að byrgja brunninn fyrr en alla vega tugir eru dottnir ofan í hann. Þessi reddingafyrirhornhugsunarháttur er eitthvað sem alltof lengi hefur viðgengist á Ísalandinu við allt og allt. Nú er mál að rífa hausinn úr sandhrúgunni, horfa til framtíðar og hætta þessum smásmugu og nánansarhætti við það sem kostar einhverja peninga. Það er alltof dýrt að hugsa svona, við erum ekki lengur þjóð skorts og fátæktar. Segjum stopp við fátæktarhugsunarhætti vegagerðarinnar. Þeir verða að fara að opna augun fyrir því að Ísland er Ísland nútímans en ekki gamalt örbirgðarsamfélag þar sem hægt er að bjóða fólki upp á allt.
Fleiri slys og óhöpp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kæra Bylgja. Það kemur ekki fram í þessari frétt að Umferðarstofa hefur mánuðum saman komið ábendingum, kvörtunum og áhyggjum til Vegagerðarinnar og lögregllu vegna þess hvernig málum hefur verið háttað á Reykjanesbrautinni. Við höfum átt fundi með fulltrúum Vegagerðarinnar vegna þessara mála þar sem við höfum farið vandlega yfir þessi mál með óskum um úrbætur. Umferðarstofa er ekki eftirlitsaðili hvað þessi mál varðar en lætur sig þetta þó vitanlega varða, sbr. framan sagt þar sem þetta varðar umferðaröryggi þeirra sem um Reykjanesbrautina fara. Vona að þetta leiðrétti augljósan misskilning.
Einar Magnús Magnússon (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 19:33
Það er ekki eftir neinu að bíða, en bíðum samt aðeins, saggði kerlingin forðum.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 9.4.2008 kl. 23:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.