Klukkan farin að ganga í miðnætti og hugurinn ekki tilbúinn að fara í hvíld.

Næturnar  við undirspil fjórfaldans skammts af hrotum eru samt ekki ástæðan. Þær gefa mér bara öryggistilfinningu og sýna mér að ég er ekki ein, Nei, það er hugurinn sem segir stopp. Er orðin svo þreytt eftir erilsaman dag en langar ekki að skríða inn í rúm og velta mér þar og bylta af því að ég get ekki stoppað hausinn á mér. Ég er föst í þeim vítahring að heilinn tekur af mér völdin og fer að hugsa um allt það sem ég vil ekki hugsa um, það sem það heldur fyrir mér vöku. Sama hvað ég reyni að einbeita mér að einhverju öðru og jákvæðara þá bara gengur það aldrei. Maðurinn minn þarf ekki annað en að sjá koddann sinn þá er hans eins og skotinn. Hef bara verið svona frá því ég man eftir mér og það eru jafnvel ótrúlegustu hlutir úr fortíðinni sem láta á sér kræla, svona rétt til að minna á sig. En eins og góður vinnufélagi minn sagði alltaf þegar hann var þreyttur og geisparnir tóku völdin: ,,Ja, nú held ég að ég sé að geispa golunni" Held  ég vitni í hann og skríði í bælið, sakar ekki að reyna, alltaf hægt að fara fram aftur, Góða nótt, kæru bloggvinir og aðrir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Ohhh hvað ég skil þig, þetta er nánast daglegt brauð hjá mér.  Hausinn á þvílíkri rússibanaferð og ég hugsa og hugsa og velti mér uppúr hlutum, sem kannski skipta engu máli???  Það nýjasta er að taka fartölvuna UPPÍ R'UM til að læra AÐEINS meira sjáðu til  en nei nei mín fer í einskonar rannsóknarleiðandur á facebook eða veraldavefnum í leit af ótrúlegasta fólki hvort sem ég þekki það eða ekki haha KLIKKUÐ ég veit  

Við ættum að fara að skella okkur ó joga og athuga hvort við náum einhverjum tökum á þessum blessaða haus okkar, er þetta ekki bara bullandi athyglisbrestur??

knús og kram Elísabet

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 20.4.2008 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband