24.6.2008 | 06:51
Allir í mat á Hótel Hellissand!!!
Eins og þeim sem lesa bloggið mitt reglulega er orðið ljóst kom maðurinn minn heim í gærkvöld eftir 2ja vikna úthald fyrir Hlaðbæ-Colas. Þeir malbikuðu frá því eldsnemma á morgnana og eins lengi og hægt var. Menn sem vinna svona mikið þurfa MAT, góðan mat og í góðri trú var samið við hótelið á Hellisandi um að það sæi bæði bílstjórunum og starfsmönnum malbikunarstöðvarinnar fyrir mat og kaffi. Hóst hóst. Veit ekki alveg hvernig ég á að orða þetta en maturinn-kaffið var, við getum sagt ólýsanlegt. Þið ráðið hvernig þið túlkið það en hér koma nokkur dæmi svo að hver geti dæmt fyrir sig: Einn daginn fengu þeir hitaðar Ora fiskibollur úr dós og braglausa kartöflumús með. Kallagreyin bruddu molasykur með til að gera músina sæta. Eitt skipti fengu þeir lax, sem í sjálfu sér var ágætt en meðlætið: sojasósa og hrísgrjón. Namm, namm eða þannig. Og kaffibrauðið það var "stórfenglegt". Einn daginn var boðið upp á brauð með SKINKU, OSTI OG KOKTEILSÓSU. Annan daginn var það kaffikannan og BANANAR Í POKA. Svo um kvöldið þegar þeir komu út í stöð til að fá nú eitthvað að borða, ja, þá beið þeirra eitthvað sem ég veit ekki alveg hvað var en eftir lýsingunni að dæma var þetta INNBÖKUÐ LIFRARPYLSA. Múhaha eða eitthvað. Allavega var þetta risastór deigklessa sem þegar skorin var í sneiðar innihélt lifrarpylsu. Aumingja mennirnar reyndu en þetta bara gátu þeir ekki borðað. Erum farin að velta fyrir okkur hvort hugsast geti að á hótelinu á Hellissandi sé í gangi umfangsmikil rannsókn á hvað geimverurnar sem einhvern tíma munu lenda á Snæfellsjökli borði og hvort þeir hafi verið svo óheppnir að vera tilraunadýr. Það er eina rökrétta skýringin á stórfurðulegri eldamennsku kokksins þarna og vonandi verð ég aldrei svo óheppin að þurfa að fara þarna inn til að borða.
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Segi nú bara ojjjjjjjjjjjj. Svei mér þá eins og það er auðvelt að hafa kostgangara sem alla jafna er ánægðir með næstum allt sem á borð er borið fyrir þá þ.e. af venjulegum heimilismat. Erum einmitt búnar að vera með nokkra slíka hér og matseðillinn er ja svolítið mikið öðruvísi.
Kveðja,
Bjarkey
Bjarkey Gunnarsdóttir, 24.6.2008 kl. 10:21
Kjartan Pálmarsson, 26.6.2008 kl. 01:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.