Samviskuleysi eiturlyfjaneytenda

Er virkilega slegin yfir hverju fólki dettur í hug nú orðið. Annað hvort sér til gamans eða til að ná sér í peninga fyrir dópi. Að hóta fólki með sprautunálum til að ná sér í smáaura. Ég meina hvað er að. Skil bara ekki hvernig hægt er að koma svona fram við náungann. Systursonur minn sem er 18 ára lenti í því að verða viðskila við vini sína niðrí bæ eina nóttina og þar sem klukkan var orðin margt ákvað hann að labba bara heim þar sem hann bjó ekki langt frá miðbænum. Þótt drukkinn væri þá varð hann þess var að einhverjir voru að elta hann og er hann leit við sá hann fjóra menn koma í humátt á eftir sér. Hann tók það til bragðs að hlaupa af stað þar sem hann átti stutt eftir heim. En þér náðu honum við útidyrnar þar sem 3 héldu honum niðri og 1 skar hann með hnífi. Einhverjum vikum áður hafði hann lent í útistöðum við þá þegar þeir voru að níðast á kærustunni hans og nú átti aldeilis að hefna sín. Er þetta lið algerlega samviskulaust, skil ekki hvernig þeir geta lagst til svefns að kveldi með svona á samviskunni. Eins og myndirnar sýna ber hann  merki þessa eina kvölds um alla framtíð. Eiturlyf eru ein ömurlegasta uppfinning allra tíma og hefur skilið marga fjölskylduna eftir í sárum. Velti oft fyrir mér hvort það séu ekki margir sem eru orðnir góðir og gegnir Þjóðfélagsþegnar í dag sem eru með eitthvað svona á samviskunni og þurfa að lifa með því alla tíð. Ekki vildi ég vera þeir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Eiturlyfjaneytendur eru með samvisku eins og allir aðrir. málið er bara að þeir aftengjast samvisku sinni undir áhrifum vímuefna..að öðru lyuti eru þeir bara fólk eins og allir aðrir..

Óskar Arnórsson, 22.3.2008 kl. 06:49

2 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Nákvæmlega, skilur það sennilega bara sá sem hefur reynt hvernig hægt er að pakka henni bara saman og henda inn í skáp og fara svo og fremja ódæði sem þetta og sækja samvisku sína eftir á inn í skápinn eins og ekkert hafi í skorist.

Bylgja Hafþórsdóttir, 22.3.2008 kl. 10:33

3 identicon

Flest allir eiturlyfjaneitendur samvisku, en their sem hafa enga samvisku eru adilarnir sem fjármagna og flytja inn eiturlyfinn..  . I augum okkar a Islandi (eins og annars stadar) eru adilarnir sem fjármagna kaupinn bara frabærir, skemtilegir og snidugir bissness menn (ad vid höldum) en i raun aumingjar og an allrar samvisku.

Baldur Gudnason (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 145586

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband