Greyið hann Ögmundur!!!

RudePassengers 

Mikið óskaplega kenni ég í brjósti um fólk eins og Ögmund Jónasson sem lendir í þeirri aðstöðu að eiga ekkert val. Að geta ekki valið um hvort maður ferðast á Saga Class eða almennu farrými hlýtur að vera alger áþján. Aumingja maðurinn þarf ábyggilega á áfallahjálp að halda þegar heim er komið.

Að geta látið svona nokkuð út úr sér án þess að roðna eða blikna hlýtur að krefjast einstakra hæfileika. Auðvitað hefur maðurinn val eins og í flestu öðru í lífinu. Hann gæti t.d. valið að fara fram á að láta bóka fyrir sig á almennu farrými svo hann losni nú við heitu handklæðin, kampavínið og önnur álíka pyntingartæki ræfillinn. Eða hann gæti einfaldlega boðið öðrum farþega, gamalli konu eða einhverjum upp á að skipta við sig um sæti svo það fari nú sæmilega um viðkomandi á ferðalaginu. Ég hef ekki mikla trú á að flugáhöfnin setti sig mikið upp á móti því. Guð hjálpi honum ef hann einn daginn stendur frammi fyrir því að þurfa að taka stærri ákvörðun en þetta, ákvörðun sem gæti skilið á milli lífs og dauða. Hann lætur kannski ritarann sinn taka ákvörðunina fyrir sig og segir svo að hann hafi ekki haft neitt val.

Í sömu grein lætur hann vaða á súðum um Björgólf og aðgerðir hans í þágu almennings. Ekki getur hann unnt neinum að sýna sjálfstætt framtak og að láta sér þannig annt um náungann. Nei, hann vill sjálfur fá vald yfir peningunum sem Björgólfur hefur eignast með vinnu og eljusemi og ráðstafa þeim að eigin vild. Peningum sem Björgólfi er bæði i ljúft og skylt að úthluta vegna þess að hann býr yfir metnaði fyrir landið sitt og framþróun þess. Hann hefur það sem íslensk yfirvöld hafa ekki, skýra  framtíðarsýn á í hvernig landi hann vill búa og er tilbúinn að leggja sitt af mörkum til að svo geti orðið. En það finnst Ögmundi ekki boðlegt, hann vill hjakka í sama gamla farinu sem er löngu orðið augljóst að virkar engan veginn og finnst að ríkið eigi að vera með puttana í öllu. Af hverju flytur hann ekki bara til Rússlands eða Kína. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Sammála þér, hvað er Ögmundur að góla??

Erna Friðriksdóttir, 14.4.2008 kl. 17:50

2 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

He he, þú grímuklæddi maður. Ætlaði að kíkja á bloggið þitt en það innihélt ekki nógu mikið til að það héldi athygli minni. Bwahaha.

Bylgja Hafþórsdóttir, 14.4.2008 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband