Laun og og lúsarlaun.

"Regluleg laun fullvinnandi launamanna voru lægst í atvinnugreininni byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 298 þúsund krónur."

Bein tilvísun úr fréttinni. Hvernig skyldi standa á þessu Haaaa????. Getur verið að ástæðan sé að stærstur hluti starfsmanna í þessarri atvinnugrein undanfarið eru ekki Íslendingar og blessaðir atvinnurekendurnir séu að notfæra sér varnarleysi þeirra og að þeir geti ekki staðið fyrir máli sínu. Nei, bara spyr. Nóg hár er taxtinn sem eigendur fyrirtækja í þessum bransa setja upp.


mbl.is Laun á almennum vinnumarkaði 368 þúsund á síðasta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johnny Bravo

eigum við þá ekki bara að leyfa þeim að vera atvinnulausum í pólandi, ekki vera að koma hingað í uppgrip og fara heim með peninga til að bæta stöðu fjölskildu þeirra.

Þetta er ómenntað fólk, sem engin veit hvort kann eitthvað eða getur eitthvað. Bæði Íslendingar og útlendingar.

Það eru 250þúss á mánuði í boði, taktu tilboðinu eða slepptu því. Það er alveg frjálst val. 

Johnny Bravo, 16.4.2008 kl. 11:49

2 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Það er lítil hætta á að þeir verði atvinnulausir í Póllandi þar sem ríkir alger skortur á iðnaðarmönnum. Finnst þetta dálítið fordómafullt að tala um þetta sé ómenntað fólk. Það er bara jafn misjafnt og er hjá okkur. Eini munurinn er sá að þeir eiga erfiðara með að nýta sér sína menntun og fá borgað samkvæmt henni þar sem þeir geta ekki tjáð sig. Af hverju eiga þeir að vera á lægri launum í íslendingar í sambærilegri stöðu, sé ekki mikið réttlæti í því. En það er eins og þú segir. Þeir hafa frjálst val en þrátt fyrir það ber þetta keim af misrétti, samkvæmt mínu mati og nóg er af því fyrir í þjóðfélaginu. Takk fyrir að deila með mér þinni skoðun

Bylgja Hafþórsdóttir, 16.4.2008 kl. 13:15

3 identicon

Ófagmenntaðir iðnaðarmenn geta bara verið mjög sáttir með 300þús á mánuði

Arnar (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 13:26

4 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Arnar, heldurðu að það sé ekki líklegra þar sem um meðatalstölur er að ræða að stjórnendur þessarra fyrirtækja sem eru með þessa "ómenntuðu" menn í vinnu séu að hala upp meðaltalið. Þeir eru líka á launaskrá. Miðað við fréttir í fjölmiðlum þá er nú ansi stór hluti okkar erlenda vinnuafls enn að fá borgað undir lágmarkstöxtum. En takk annars fyrir kommentið.

Bylgja Hafþórsdóttir, 16.4.2008 kl. 13:56

5 Smámynd: Johnny Bravo

það er ekkert fordómafullt við að segja ómenntað fólk hefur lág laun og vel menntað há laun, spurning hvort maður vill dansa í kringum hlutina eða segja þá eins og þeir eru.

Pólland hefur verið með 18%-9% atvinnuleysi og þeir hafa verið að flýja til allra landa í Evrópu, þú ert með fordómana gagnvart atvinnurekendum sem þú segir að misnoti fólk, en ég segi að þeir sjái þeim fyrir vinnu.

Ég held að maður renni meira blint í sjóinn með pólskan vinnumann eða borgar þeim sem maður veit að getur og hægt er að tala við.

Johnny Bravo, 16.4.2008 kl. 16:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 145543

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband