Birkir J.Jónsson þingmaður er maður framkvæmda!!!

 takk

Ég  fékk símtal í dag og konan sem í símanum var sagðist vera að hringja frá Alþingi. Eitt augnablik flaug mér í hug að einhver væri að gera at í mér en þegar hún hélt áfram og sagði að Birkir J.Jónsson alþingismaður vildi gjarnan tala við mig þá vissi ég að svo var ekki. Eins og eflaust einhverjir hafa rekist á þá hefur hann á vinsælli bloggsíðu sinni séð ástæðu til að fjalla um okkar mál og kann ég honum bestu þakkir fyrir. Hann er allur af vilja gerður til að hjálpa okkur í baráttunni við að vekja athygli á myglusvepp og mögulegum afleiðingum hans og það sem hann afrekaði í dag. Ja, ég varð bara kjaftstopp. Hann hringdi í háttvirtan viðskiptaráðherra, alla leið til Kína þar sem hann er víst staddur núna og ræddi okkar mál við  hann. Og ekki nóg með það. Á morgun mun ritari Björgvins hringja í mig og ég á að fá fund með honum strax n.k. mánudag. Ef þetta er ekki frábærara en frábært þá er ekkert það. Jibbí húrra hei. Elsku Birkir, þú ert góður maður. Og nú er eins gott að undirbúa sig vel fyrir fyrirhugaðan fund og ná í sjálfstraustið sem er geymt í innsta horni fataskápsins þessa dagana. Ætti ég að fá einhvern til að fara með mér.???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Bylgja, ég held að það verði ekki vandamál hjá þér að finna sjálfstraustið fyrir fundinn, þú veist að þú getur verið ótrúlega dugleg og sterk. Vona að það gangi allt rosalega vel hjá þér.

Kv. Helga

H Helga Gunnarsd. (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 19:21

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Frábært - loksins framkvæmdir!

Markús frá Djúpalæk, 16.4.2008 kl. 19:28

3 identicon

Gott ad heyra thetta. Og eg vona ad thu mun bradum finna lausn fyrir thessi svep-vandamal.

Notardu enntha sama posfang fra "hotmail"?

Ubaldo.

Ubaldo (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 21:17

4 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Ubaldo, Nei, er með bylgjahaf@simnet.is

Bylgja Hafþórsdóttir, 16.4.2008 kl. 21:52

5 Smámynd: Svandís Rós

Flott hjá þér Bylgja! Drifkrafturinn í þér Ekkert smá mikið sem þú ert búin að áorka! Ég dáist að þér og ég hef fulla trú á því að þér gangi vel á þessum fundi.

Ætli staðreyndin sé ekki sú að þú veist meira um myglusveppi og skaðsemi þeirra en þeir sem munu sitja þennan fund... þannig þú verður þarna í hlutverki kennara ;)

Gangi þér rosalega vel! 

Svandís Rós, 17.4.2008 kl. 09:07

6 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons        Frrrrááábærtttt

Kjartan Pálmarsson, 17.4.2008 kl. 23:49

7 Smámynd: Eybjór

Gott að heyra. Það þarf að setja þessi mál í betri farveg. Spái því að á næstu árum munu þessi mál verða meira upp á pallborðinu.

kveðja
Eyþór

Eybjór, 20.4.2008 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 145544

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband