28.3.2008 | 13:44
Ótrúlega mikill hlýhugur frá öllum....
... ókunnugu fólki sem þekkir okkur ekki neitt en er allt af vilja gert til að leggja okkur lið. Og að ég tali nú ekki um viðtökurnar og viðbrögðin við þessu bloggi mínu og allan þann stuðning sem ég hef fengið. Það er m.a.s. búið að stofna söfnunarreikning og elskulegt fólk, fullt af náungakærleik, hefur sett eitthvað inn á síðurnar sínur um þetta allt saman. Maðurinn minn er búinn að vera á haus niðrí grunni, keyra úr honum og í hann aftur og í morgun kom valtari frá fyrirtæki neðan af Skaga og valtaði grunninn og getið þið hvað hann tók fyrir það??? Heilar 10.000 krónur sem er náttúrulega ekki neitt. Ég var eins og kleina, kann þetta ekki, og þaðan af síður maðurinn minn sem alltaf reddar öllu. Ef ég væri í sambúð með einhverjum öðrum, þá er sko ekki víst að ég væri svona róleg yfir þessu öllu saman. Trúi honum og treysti, sama hvað hann tekur sér fyrir hendur, þá reddar hann því. Og nú er minn ákveðinn í að koma þaki yfir höfuðið á okkur aftur og ég veit að hann myndi fyrr drepast við að reyna en að gefast upp. Það stappar í mig stálinu og ýtir mér áfram. Var að koma heim, fór á eftir honum áðan þegar hann fór með valtarann á vélavagninum aftur niðrá Skaga. Ástæðan, jú, hann skar sig illa upp úr kl. 10 í morgun og þurfti að sauma saman á honum tvo fingur, en hann gaf sér ekki tíma fyrr en nú, til að fara niðrá Slysó, því að fyrst þurfti sko að koma lyftaranum niðureftir. Þannig að vörubíllinn með vélavagninum var skilinn eftir þar sem valtarinn fór af og ég kom svo og skutlaði honum á mínum gamla Subaru á sjúkrahúsið. En nú verð ég að fara að leggja mig, svaf lítið í nótt af persónulegum ástæðum og er uppgefin. Varð bara aðeins að tjá mig fyrst til að róa hugann. Kærar þakkir elskulegu bloggvinir og aðrir sem nenna að kíkja á síðuna mína fyrir allt og allt.
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott að heyra að þú og þið fyllist bjartsýni og jákvæðni. Eins samgleðst ég viðtökunum og viðbröðunum sem þið hafið fengið í kjölfar myglusveppsins. Það þarf að opna umræðuna um þetta, held að alltof fáir geri sér grein fyrir alvarleika málsins.
Treysti því að yfirvöld fari að vakna svo ekki sé minnst á tryggingarfélögin!
Svandís Rós, 28.3.2008 kl. 13:57
Hæ kæra vinkona.
Þú varst flott á stöð 2 ég var að vinna en sá þetta á plúsnum eftir á. Sagði einmitt að stofna þyrfti söfnunareikning. Endilega láttu vita hér hvaða reikningsnúmer er svo allir geti lagt ykkur lið.
Kveðja úr Ólafsfirði
Bjarkey og co
Bjarkey Gunnarsdóttir, 28.3.2008 kl. 14:12
Þið eruð frábær... sé Ívar í anda með hendina í "fatla" en redda öllu áður en forgangsröðin kemur af honum :-)
Bjarkey hér kemur reikningsnúmerið 1102-15-9217 Kt. 2410645149
Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 28.3.2008 kl. 23:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.