Sá fyrirspurn áðan inni á athugasemdunum hjá mér sem fékk mig til að hugsa um allt það sem ég er búin að reyna til að fá einhverstaðar einhverja lausn okkar mála með húsið. Og að ég hef lítið minnst á hversu mikill léttir það var að fá loksins að vita hvað væri að mér. Þakka guði fyrir fyrirtæki Sylgju og Pálma, Húsum og heilsu, fyrir að vera til. Annars væri ég örugglega ennþá fárveik á Myglumelnum hafandi ekki hugmynd um af hverju. Þetta var orðið gríðarlega lýjandi ástand og mikið álag á allt og alla í kringum mig. Samviskubit kvaldi mig sífellt fyrir að vera svona mikill aumingi, ég sem hafði alltaf verið frísk og spræk og full af orku var nú orðin gangandi brak og fannst ég vera byrði á öllum. Ég var sífellt að rembast við að vera hressari en ég var og gera hluti sem ég réð ekkert við þar til ég gafst upp á því líka. Það er ekki gaman að kvíða því að vakna á morgnana til að sjá hvort dagurinn í dag yrði góður eða slæmur. Ég var lögð inn á sjúkrahús í nokkra daga því læknarnir vildu fylgjast með mér og að sjálfsögðu byrjaði ég að lagast, ekki lengur í húsinu en samt tengdi enginn, ekki einu sinni ég, þetta nokkru sinni eða á nokkurn hátt við húsið. Og að vera að fá heilsuna aftur, að verða gamla ég, það er yndislegt og algerlega ómetanlegt. En svo þegar við fórum að athuga möguleika fólks í okkar stöðu, þá kom enn eitt kjaftshöggið. Fórum fyrst í tryggingarnar-NEI-ekki einu sinni innbúið. Viðlagasjóður-NEI-ekki náttúruhamfarir. Bjargráðasjóður-NEI-Hættir öllu slíku. Og samkvæmt áliti lögfræðingsins okkar: Fasteignasalinn-NEI. Sveitarfélagið(byggingafulltrúi)-NEI. Húsbyggjandi-NEI. Seljandinn-EF TIL VILL EN HÉLT ÞAÐ YRÐI VONLAUST. Svo ef einhver getur bent okkur á einhverja leið sem okkur hefur yfirsést þá please, látið mig vita.
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta virðist vera vonlaus staða, vonandi að það safnist eitthvað fyrir ykkur, en seljandinn, afhverju er það vonlaust og af hverju er það vonlaust með byggingaraðilann, hann byggði þetta ónýta hús, hvað með hreppinn - byggingarfulltrúinn, ef húsið hefur ekki verið tekið löglega út ? Svoldið margar spurningar veit
Anna Gréta (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 17:46
Byggingaraðilinn er þriðji aðili, ekki hægt, segir lögfræðingurinn. Byggingafulltrúi, er/var ekki skyldugur til að gera úttekt ef hann var ekki kallaður til af byggingaraðila, byggt árið 1986 og þágildandi byggingareglugerð sem gildir. Getum bara lögsótt seljanda v.leynds galla en vegna persónulegra aðstæðna hans er það vonlaust. . Tryggingar-Búið að fara fyrir tjónanefnd, fengum Nei þar einnig.
Bylgja Hafþórsdóttir, 30.3.2008 kl. 07:35
Hvernig er byggingaraðilinn 3 aðili, byggði hann ekki húsið sjálfur og bjó þar í mörg ár ? Og ertu að meina að sá sem seldi ykkur húsið hafi vitað af þessum galla í húsinu þegar hann seldi ykkur það ?
Mikið finn ég til með ykkur
kv Anna Gréta
Anna Gréta (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 09:24
Einhvern veginn ekki hægt að hoppa fram hjá þeim sem við keyptum af og keypti af honum, sagði lögfræðingurinn, þekki ekki alveg nógu vel af hverju. Það er nefnilega það sem við vitum ekki og vonlaust er að sanna.
Kv. Bylgja H
Bylgja Hafþórsdóttir, 30.3.2008 kl. 12:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.