Úrskurðarnefnd segir líka NEI við MYGLUSVEPP

Jæja, þá er okkar mál búið að fara allan hringinn hjá tryggingunum. Fengum risaumslag merkt fjármálaeftirlitinu í gær, umslag sem innihélt það sem við vissulega bjuggumst við. NEITUN. Svo þar höfum við  það, tryggingafélagið okkar er á engan hátt bótaskylt. Fasteignatryggingin til einskis, innbústryggingin til einskis. Skyldutryggingin nær ekki yfir svona tjón heldur, hefði átt að kveikja í helv. kofanum. Hvar er jafnræðisreglan í svona tilfellum, sömu aðstæður eiga að fá sömu málsmeðferð, segir í henni. Greinilega ekki í mínu tilfelli. Á enga peninga til að spandera í málsókn svo ég er lens, segi pass. Ætla bara að fara að einbeita mér að fermingarundirbúningi og ferma dótturina með stæl um næstu helgi. Er hvort sem er farin á hausinn og alveg eins gott að gera það með glans. Svo bloggvinir góðir og aðrir, veit ekki hvað ég kem til með að gefa mér mikinn tíma til að blogga þessa vikuna en ég er samt ekki farin. Nú er bara að fara og hringja og panta viðtöl hjá ráðamönnum og skella sér í þessi mál af enn meiri krafti.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Ef að það hjálpar eitthvað, þá verð ég að segja það að meðan maður hefur fjölskylduna sína hjá sér, og með sér þá mega öll fjármála og tryggingakerfi hrynja í kringum mann.

Gangi þér vel með fermingarundirbúninginn, það er nett vinna.

Svo vona ég að margt smátt sé að skila sér til ykkar sem vonandi verður af einhverju stóru.

Baráttukveðjur úr Kópavoginum.

Kjartan Pálmarsson, 1.4.2008 kl. 09:23

3 identicon

Leitt að heyra, en kemur þó ekki á óvart því miður. Svona virðist alltof oft fara, það er þetta með smáa letrið. Ég vona að þið njótið fermingar í faðmi fjölskyldunnar. Dýrmætustu hlutirnir í lífi okkar eru nefnilega ekki hlutir.

Dísa Gests (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 145523

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband