Dæmigerð skítredding sem kemur alltof seint

Það þurfti þekktan einstakling til , sjálfur Björgvin Halldórsson steig fram þar sem dóttir hans var ein þeirra sem slösuðust á Reykjanesbrautinni. Alveg dæmigert fyrir hugsunarhátt  vegagerðarbossanna. Ekkert gert fyrr en einhver mikils metinn í þjóðfélaginu lætur í sér heyra. Nákvæmlega sama sagan og þegar þingmaður vænn og grænn keyrði út af á Vatnsskarðinu. Þá var hætt við að afnema NMT símakerfið um stundarsakir. Af hverju í andsk. þarf þetta sífellt að vera svona. Af hverju þurfti svona marga til að stórslasa sig áður en gripið var til viðeigandi ráðstafana. Hvar er virðing þessara manna fyrir mannslífum og fela sig svo á bak við einhverja verktaka er bara barnalegt. Ekki eru það þeir sem stjórna, ja nema þegar vegagerðarmönnum hentar eins og í þessu tilviki. Sá tími sem þeir hafa gefið sér til að taka ákvörðun um framhald Reykjanessbrautarinnar er orðinn alltof langur og hreinlega tími sem ekki var ráðrúm til að taka sér eins og dæmin augljóslega sanna. Spýtið í lófana og látið verkin tala, það er það eina sem komið getur til bjargar og forðað fleirum frá að stórslasa sig þarna. Hættið þessu bölv. hálfkáki, reynið að sýna fólki þá virðingu sem það á skilið og lagið þennan flöskuháls strax.


mbl.is Úrbætur á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Svo innilega sammála þér,,,,, alltaf gert eitthvað ef að þekktur einstaklingur slasast eða lætur lífið í slysi en ef það er einhver nágranni okkar er þeim skítsama.   grrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr

Erna Friðriksdóttir, 10.4.2008 kl. 20:14

2 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Bara drífa í því að semja við lægst bjóðendur svo hægt sé að fara byrja á þessu,og koma í almennilegt horf áður enn allt fer í dellu.

Kjartan Pálmarsson, 15.4.2008 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 145594

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband