27.5.2008 | 10:37
Er barátta mín eitthvað að hafa áhrif???
Núna ætla ég að trúa því og treysta sjálfri mér til hvatningar og uppörvunar í baráttunni við að koma myglusvepp á kortið sem raunverulegu og alvarlegur heilsufarsvandamáli að mín saga og reynsla eigi kannski einhvern smáþátt í því að verið sé að skoða af fullri alvöru hvort myglusveppur geti verið orsök veikinda læknanna. Veit það eitt að þegar ég flakkaði á milli lækna á sínum tíma til að reyna að fá heilsu aftur að þá virtist þetta ekki vera til í læknabókum þeirra sem ég leitaði til. Alla vega datt engum þessi möguleiki í hug. Ekki að sakast við neinn ekki hvarflaði það að mér sjálfri fyrr en ég sá greinina góðu í Vikunni. En kannski verður mál heilsugæslustöðvarinnar til þess að læknar verði fljótari að átta sig þegar sjúklingur kemur til þeirra með eitrunareinkenni af völdum sveppsins og að þeir fari að trúa því að þetta sé raunverulegt vandamál og vinni út frá því. Það þarf að upplýsa fólk og ég vil benda öllum á að lesa bloggið hennar Andreu um þessa frétt. Segir allt sem segja þarf. Hringið í Hús og heilsu ef langvarandi óútskýrð veikindi hafa hrjáð einhvern fjölskyldumeðlim því fólk er misviðkvæmt fyrir áhrifunum og alls ekki allir sem finna fyrir þeim í fyrstu.
Fleiri læknar með einkenni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl, ég var að spá í hvort við ættum að fylgja málinu þínu eftir í Rödd Alþýðunnar fljótlega? kveðja,
Markús frá Djúpalæk, 27.5.2008 kl. 11:00
hér er bloggið hennar Andreu :)
http://andreaolafs.blog.is/blog/andreaolafs/entry/551970/
Andrea J. Ólafsdóttir, 27.5.2008 kl. 11:07
Setti svar inn á þínar athugasemdir Markús.
Bylgja Hafþórsdóttir, 27.5.2008 kl. 11:53
Takk fyrir þetta Andrea, ekki fattaði ég að gera þetta he he.
Bylgja Hafþórsdóttir, 27.5.2008 kl. 11:54
Já hún er það Bylgja! Ekki hafði ég hugmynd um að ekki væri búið að finna upp hjólið í þessu einfalda máli...þú hefur reynslunna Bylgja! Það væri nú ekki vitlaus hugmynd að láta þetta málefni daglega á blogginu! Svo alvarlegt er þetta mál. hvað er Rödd Alþýðunnar Markús?
Óskar Arnórsson, 27.5.2008 kl. 14:38
Éhg er nú bara að reyna að giska á hvað margir hafi dáið af þessum völdum...
Óskar Arnórsson, 27.5.2008 kl. 14:39
Rödd Alþýðunnar er bloggþáttur á Útvarpi Sögu á mánudags- og miðvikudagsmorgnum...
Markús frá Djúpalæk, 27.5.2008 kl. 15:03
"Sumir" vilja nú meina að myglusveppur sé bara "nýjasta bólan" ásamt rafsegulsviði s.b. blogg um þessa frétt. He He. Hefði nú miku frekar viljað það en að þurfa að rífa húsið mitt og vera veik í tæp 2 ár. Langlíf bólan sú.
Bylgja Hafþórsdóttir, 27.5.2008 kl. 16:57
Já, ég efast ekki um að rödd þín hefur haft mikið að segja. Fólk virðist almennt vera að opna augun fyrir þessum vágesti. Því miður þá er ég ánægð með að læknarnir fundu fyrir þessu, það er svo auðvelt fyrir þá að segja "móðursýki" þar til þeir eða einhver í þeirra stétt lendir í þessu. Myglusveppir eru ekkert grín og það er engin óskastaða að missa allt sitt... fólk leikur sér ekki að slíku.
Svandís Rós, 27.5.2008 kl. 18:34
Ókei þetta líst mér vel á ,fólk er ekki á þeim buxunum að láta þetta kyrrt liggja,tökum nú höndum saman og hjálpum Bylgju og ívari að rétta úr kútnum og sínum hvað í okkur býr,ekkert af þessu yfirvaldspakki eins og ég vil kalla það hefur ekki rétt þeim hjónum svo mikið sem litla putta í þeirra málum............kær kveðja ..hlíðarbæjarliðiðá 20
Gauti Halldórsson, 27.5.2008 kl. 20:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.