Miðvikudagur og lífið gengur sinn gang!!!

Góðan dag, bloggvinir kærir. Í dag er dagurinn eftir 17. júní og ég hugsaði mér gott til glóðarinnar og ætlaði nú bara að lúra frameftir í morgun. En það eru víst takmörk fyrir því hversu mikið maður getur sofið. Varð, held ég, eitthvað spennufall hjá mér í gær eftir að Aron og Særún voru búin að sækja litlu Emilíu Ólöfu svo að kl.20 var ég dottin í rúminu hér inni í stofu. Rumskaði við símann kl. 22.30 en eiginmaðurinn var að hringja til að heyra í konunni sinni. Er orðinn ansi langur tími sem hann er búinn að vera í burtu og Sæunn er alltaf í borginni að vinna svo við erum bara hér tvö, ég og pabbi gamli, he he. Nei, hann er rétt 65 ára, kornungur maðurinn.  Á hverjum morgni hellir þessi elska upp á kaffi handa mér, svo ég drattist nú á lappir og ég veit ekkert betra en að geta gengið að splunkunýjum uppáhellingi að morgni dags.

Svo eru það blessaðir hundarnir, það er meira en að segja það að ætla að reyna að lúra með 3 hunda. Skotta lá á bakinu á mér, Moli sleikti á mér tærnar og Brúnó krafsaði í rúmið og bað um að verða tekinn upp í líka. Auðvitað lét ég það eftir honum og hann vildi nú fá sitt dekur. Þegar hann vill klapp þá nefnilega krafsar hann í mann með framloppunni og þá á maður að klóra honum.  Og maður má ekkert hætta sko fyrr en honum þóknast. Síðan datt Skottu í hug að fara í flugueltingaleik við eitt flugugrey  sem sveimaði hér yfir okkur og þá gafst ég upp, náði í tölvuna og settist við að skrifa þetta blogg. Allir hundarnir búnir að fara út að pissa og eru steinsofnaðir aftur pah. Ætla að fara að ryksuga og gera fínt áður en Kamilla og Sandra koma á morgun. Ekki veitir af. Eins gott að þeim sem hingað koma sé ekki illa við hundahár, já og kattarhár. Þetta er alls staðar. Pirrar mig stundum að moka hér upp hárunum dag eftir dag en það líður hjá, bara ná í ryksuguna eða moppuna.

En, ég er komin með nýjan nágranna eða þannig. Hún er hávær og segir ekki ÚÚ'Ú eins og í bíómyndunum heldur gargar hún og það gekk svo langt að eina nóttina stökk ég hreinlega út og rak hana í burtu. Þarna sat þessi fallega ugla á ljósastaurnum hér fyrir nóttina og "söng" mig í vöknun. Hún er sífellt að flækjast hér í grenndinni og mér dýrasjúklingnum finnst það yndislegt, allavega þegar ég er vakandi.

Annar froskurinn er hættur að éta, eiga það víst til, svo í gærmorgun náði mín í ánamaðk út í garð, bútaði hann niður í 3 parta og fékk hann til að borða þá. Eitthvert ráð sem Sæunn fann á netinu. Örugglega orðnir hundleiðir á  lirfum greyið froskarnir. Hinn er að springa úr spiki og er sæll og glaður. En blessaðar lirfurnar breytast í bjöllur svo mín er með Machintoshdollu inni á baði sem inniheldur lirfur og bjöllur. Ekki mjög geðslegt finnst sumum , he he.  Já, þetta er hálfgerður dýragarður hér hjá mér og nú er blómatími naggríssins. Ferskt gras, fíflablöð og hundasúrur á hverjum degi. Hann elskar hundasúrur. Svo þegar það er nógu gott veður þá fær hann að vera úti í grasinu. Hef bara grindina af búrinu yfir svo hann fari sér ekki að voða. Hann er nú að verða dálítið gamall blessaður en ég vona að hann tóri í 2-3 ár í viðbót. Maðurinn minn er guðs lifandi feginn yfir að ekki séu til krókódílar á Íslandi, segir hann. Að ég væri þá örugglega með einn á milli okkar í bælinu. He,  he. En svona er ég bara og ætla mér ekkert að breyta því. Núna er ég t.d. með bakstuðning sem heitir Skotta. Hversu mikil forréttindi eru það.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 145520

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband