23.6.2008 | 16:00
Að meta einfaldleika hversdagsins!!!
Jamm og jájá. Þá er lífið aftur að falla í sínar gömlu skorður hér á "Heimsenda". Krakkarnir mínir, Skotta og Tása fóru heim í gær. Ívar kom heim í gærkvöld eftir 2ja vikna veru á Grundarfirði og þar í kring við akstur á malbiki. Sandra Karen og Kamilla Rún voru að fara eftir að hafa verið hjá frænku í sveitinni síðan á fimmtudag. Foreldrarnir skelltu sér til Glasgow til að fara á tónleika með Jon Bon eða Bon Jon eða eitthvað Jovi. He he. Hlustaði ekki mikið á þess háttar músík á mínum yngri árum frekar en í dag. Dótturinni finnst mamman hafa glataðan tónlistarsmekk. Alltaf að láta mig hlusta á eitthvert "gegt" lag á YouTube, birr, fæ bara hroll. Gæti aftur á móti sungið fjöldann allan af gömlu íslensku dægurlagatextunum og jafnvel þeim nýrri líka. Veljum íslenskt. Brimkló, Lúdó og Stefán, Dúmbó og Steini, Upplyfting, Geirmundur, Bjöggi, Pálmi, Vilhjálmur, Siglufjarðarlögin. Jamm, það líkar minni. Og svo Elvis, hann er yndið mitt. Sven Ingvars elskaði ég þegar ég var stelpa. Gatt eytt heilu dögunum á stofugólfinu heima hjá ömmu og afa og spilað plöturnar þeirra. Sven Ingvars, Ómar Ragnars. með Botníuvísur og allt það og svo margt margt annað. Top of the Pops plöturnar átti ég samt nokkrar. átti plötu með Miriam Makeba og á henni spilaði ég alltaf sama lagið aftur og aftur. Nennirinn. Dolly Parton var til líka og svo sienna Queen og Megas. Mamma elskaði þá.
En nú er ég heldur betur komin út fyrir efnið. Úbs. Ætlaði að blogga um hversdagsleika tilverunnar og að kunna að meta hann. Því þrátt fyrir gríðarlega skemmtilega helgi þá var hún líka erfið og nú er ég hér bara ein með tölvunni minni, ja, fyrir utan hundana og það er hvílíkt næs ef ég má sletta.
Er annars nýkomin neðan af Myglumel þar sem ég hitti Katrínu fréttamann hjá Stöð 2 ásamt sama myndarlega myndatökumanni og kom hér síðast. Hún hafði hringt í mig í morgun og langaði að fá að heyra hvernig gengi. Og ég var sko alveg til í það. Því meiri umræða um þennan "#$%##" myglusvepp því betra. En þarna spjölluðum við aðeins um það sem framundan er í húsamálum, núverandi stöðu hjá okkur og heilsufar mitt. Hjalti bróðir var mér til halds og trausts og þau tóku viðtal við hann líka. Held að þetta komi í fréttunum í kvöld, gleymdi alveg að spyrja að því. Ívar var í Hvalfirðinum. Hann er að ná í fyrsta gáminn, jíbbí jibbí. Tveir eftir. Vorum að vonast eftir honum á meðan viðtalinu stóð en þetta gekk svo hægt og hann þurfti að fara fyrir fjörð þar sem gámurinn er svo hár. En núna er hann rétt ókominn niðrá Mel og ég ætla að renna og hitta hann þar. Er svo farin suður að ná í Sæju Pæju. Svo heyrumst síðar.
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fyrirgefðu seinkunina en myndin þín kemue von bráðar.
Bergur Thorberg, 23.6.2008 kl. 23:42
He he ekki málið. Er þolinmóð manneskja.
Bylgja Hafþórsdóttir, 24.6.2008 kl. 06:53
VEI ! ég er pæja ! (aulabroskall)
en mamma? svona fyrst þú situr hliðiná mér... nenniru að sækja f. mig capri sonne?? ^^
mwahahahahah:D smooth move !
Sæunn (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 07:39
Þú varst flott á stöðinni í gær. Tek undir með þér meiri umfjöllun verður vonandi til þess að einhverntímann gerist eitthvað jákvætt í þessum málum.
kveðja,
Bjarkey
Bjarkey Gunnarsdóttir, 24.6.2008 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.