Nýtt albúm með myndum af húsinu!!!

Jæja, þá eru komnar inn myndir af slotinu og af hetjunum mínum sem púluðu við að reisa það í dag. Eins og sjá má þá er eiginmaðurinn ekki til stórræðanna þessa dagana en ekkert við því að gera. Fer samt í pirrurnar á honum að vera svona, ekki alveg hann. Hef alveg gleymt að minnast á hvaðan húsið er. Það er sænskt frá fyrirtæki sem heitir Borohus og það er fyrirtækið ÁSVÍK sem flytur þau inn. Aðal koppurinn í búri þar er Viggó Sigurðsson, handboltaþjálfari og hann hefur verið yndislegur við að eiga. Það verður að segjast.

www.asvik.is

Þarna inni er húsið mitt og heitir HALLAND 130


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

frábært að sjá húsið vera að rísa, vonandi gengur allt vel hjá ykkur

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 28.6.2008 kl. 23:20

2 identicon

Hæ Bylgja.

Sá athugasemdina frá þér á blogginu mínu, ég veit voðalega lítið um hvað er sett á þetta þarna uppfrá. Langbest að láta þau bara hringja í beint í Gunna hann fær alveg að ráða þessu :)

Eva Lind Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 11:25

3 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Ok, geri það, vildi ekki láta þau hafa númerið hans nema fá leyfi fyrst. :)

Ívar vill líka ólmur skipta við ykkur eða eitthvað. He he. Þegar það er komið vatn, þá er ég til. Hí hí.

Bylgja Hafþórsdóttir, 29.6.2008 kl. 11:36

4 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

frábært hve vel gengur, til lukku stelpa

Guðrún Jóhannesdóttir, 30.6.2008 kl. 11:57

5 identicon

Innilega til hamingju með þetta!! Það er kraftur í ykkur!!

alva (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 00:18

6 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Upgrade your email with 1000's of emoticon iconsUpgrade your email with 1000's of emoticon iconsUpgrade your email with 1000's of emoticon icons Gangi ykkur vel

Kjartan Pálmarsson, 2.7.2008 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband