4.7.2008 | 09:23
Hvenær flyt ég-Getraun mánaðarins!!!
He he, hér koma nokkrar myndir sem teknar voru í gær af húsbyggingunni. Svei mér þá húsið fýkur uppi, þessir drengir eru með rakettu í rahóinu, svei mér þá bara. Hjalti, pabbi, Hemmi, Brynja og Aron minn eru eins og vélmenni svo hratt gengur þetta. Tilkynnti Hjalta í gær að ég ætlaði að flytja inn um helgina. Ne þetta er yndislegt eins og sjá má af meðfylgjandi myndum, held það verði slatti af liði í mat í hádeginu svo eins gott að fara að undirbúa eitthvað gott. Engginn Hótel Hellisands matseðill hér, bara gammeldags kjarngóður heimilismatur. Held að Rabbi sé líka í dag með 1-2 Pólvera með sér svo steiktur fiskur verður það heillin. Elska mína ótæmandi frystik istu já og þann sem sér um að fylla á hana, he he.
Veðrið er meira en dásamlegt, ætla sko að setjast út og þykjast vera að raða pappírum í bókhaldið. Mappan bíður og slatti af pappír svo hvað gæti verið betra en að steikja sig aðeins í leiðinni.
Já sko og meira af getrauninni, sá sem verður næst réttum tíma fær að vera grillmeistari í reisugillinu, he he. og fær kannski 1 bjór að launum líka. Nei, grín. Hvenær haldiði að ég flytji. Vil annars fara að komast í að mála utanhússklæðinguna, er fín í því þó ég viti varla hvað snýr fram og aftur á hömrum og öðru verkfærum. SÍLSAÞJAPPAN SKO!!. Þegar maður á svona marga handlagna bræður að ég tali nú ekki um snillinginn hann föður minn, ja þá til hvers að vera að læra eitthvað þess háttar. Er líka ein af þeim sem á erfitt með skrúfganga, veit aldrei í hvaða átt á að skrúfa, he he, algjör ljóska. HENTU Í MIG HAMRINUM, NEI PENSLINUM!!.
LOVE YOU ALL.
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Æ ég er ekki góð í að grilla svo ég ætla ekki að inna þessa etraun hehehehehe, en vonandi kemstu inn sem allara allra fyrst í fallega húsið þitt.
Góða og viðburðaríka helgi
Guðrún Jóhannesdóttir, 4.7.2008 kl. 10:39
vá hef ekkert kíkt á bloggið þitt og þið bara að fara flytja í nýtt hús æðislegt til lukku með það öll ætla að skoða myndirnar hafið góða helgi mín kæra
Brynja skordal, 4.7.2008 kl. 14:24
Takk kærlega fyrir kveðjurnar elskurnar mínar. Já, þeir eru ótrúlegir, pappinn og lekturnar komnar á fyrir þakskífurnar sem ef ég þekki mína menn rétt fara á í næstu viku. Þá vantar bara utanhússklæðninguna hí hí. Inni þarf að flota og setja upp milliveggi og bara þetta er ótrúlegt. Sýnist stefna í að október sé vanáætlað hjá mér verður örugglega ágúst með þessu áframhaldi he he. Útveggirnir eru klárir til spörslunar og málningar að innan, allar rafmagnsdósir í og ekkert eftir nema að draga í þær. Veit ekki hvað þarf að gera við loftin. Eru upptekin þar sem á við og allt.
Bylgja Hafþórsdóttir, 4.7.2008 kl. 21:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.