27.1.2009 | 08:40
Jæja, þá liggjum við enn dýpra í því.....
.... ég bara er í losti. Hvað er að þessu fólki hjá Samfylkingunni. Hvar innan raða Vinstri grænna ætla þeir að finna fólk með jafn góða menntun, reynslu af stjórnun og rekstri eins og t.d. Þorgerði Katrínu, Guðfinnu Bjarnadóttur og Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Ég sagði það í gær og sagði það aftur MISTÖK, MISTÖK, MISTÖK, að slíta þessu stjórnarsamstarfi. Enn og aftur eyðileggja gömlu papparúllurnar fyrir þeim yngri og betur menntaðri. Enn og aftur er sjálfhverfa, valdagræðgi og eiginhagsmunasemi látin ráða för.
Okay, í hvaða ráðherrastól lendir Steingrímur ef að þeirri stjórnarmyndun verður sem oftast er nú í umræðunni. Úff, get ekki ímyndað mér hann sem forsætis- eða utanríkisráðherra. Finnst hann bara ekki traustvekjandi eða nógu agaður til að standa undir svo ábyrgðamiklum embættum.
*****************************************************************************
Á gamla óskalistanum voru eftirfarandi sjálfstæðismenn:
FORSÆTISRÁÐHERRA: ÞORGERÐUR KATRÍN - Rök-Menntaður lögfræðingur með víðtæka reynslu á mörgum sviðum þjóðfélagsins. Treystandi til að setja þjóðina í fyrsta sæti en ekki sjálfa sig og sitt fólk
FJÁRMÁLARÁÐHERRA: GUÐFINNA S. BJARNADÓTTIR - Rök-Góð alhliða menntun. Vanur stjórnandi og og þekkir vel inn á ríkisreksturinn.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA: RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR - Rök- Hefur þá menntun sem best hæfir þessu embætti. Reynslu sem stjórnandi og brautryðjandi í skólamálum.
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA: BJARNI BEN - Lögfræðingur með mikla reynslu, reynslubolti með einlægan áhuga á heilbrigðismálum og íþróttum.
******************************************************************************
Innan raða Vinstri grænna sé ég TVÆR manneskju sem ÉG. gæti treyst fyrir ráðherrastóli með tilliti til menntunar, reynslu og fyrri starfa og það eru:
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR sem MENNTAMÁLARÁÐHERRA.
ÞURÍÐUR BACKMAN sem HEILBRIGÐISRÁÐHERRA.
Vill fólk í alvörunni setja landið okkar og stjórn þess í hendurnar á Steingrími J., Jóni Bjarna og/eða Ögmundi Jónassyni. Halló hvað er að. Framsókn segist ekki tilbúin í ríkisstjórn, vill bara vera súkkó á hliðarlínunni og það er þeirra að meta hvort er rétt ákvörðun.
Það er ekki ásættanlegt að breyta bara til að breyta. Það verður að vera til fólk sem GETUR, SKILUR OG KANN til að taka við og axla þá ábyrgð sem breytingunum fylgir.
Sjálfstæðismenn, þið berið þá byrði núna að hafa ekki haft vilja eða áhuga til að gera þær hrókeringar sem nauðsynlegar voru til að koma ykkar hæfasta fólki að. Brenglað stoltið var látið ráða för og hroki sem lýsti sér í að þið vilduð ekki hrókera neitt fyrr en eftir landsfund. Dýrt hikið það!!!
Darn, hvað ég er svekkt hér norður á Siglufirði kl. 8.41 að morgni annars yndislegs þriðjudags.
Samfylkingin bugaðist" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þu vissir að Bjarni ben er strákur?
Jónas Jónasson, 27.1.2009 kl. 09:03
Amm, he he. Konur eru bara svoooooo miklu hæfari.
Bylgja Hafþórsdóttir, 27.1.2009 kl. 09:21
Ísland lengi lifi! HÚRRA,HÚRRA,HÚRRA,HÚRRAAAAA!
Kjartan Pálmarsson, 27.1.2009 kl. 11:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.