Áttu barn sem er sífellt lasið - Gæti heimilið verið sýkt af myglusveppum???

Ástæðan fyrir skrifum mínum í dag er sú að í gær kom tvíburasystir mín í heimsókn og sagði mér þær fréttir að stöðug veikindi  lítilla tvíbura sem búa á neðri hæð húss þar sem hún leigði tímabundið er nú búið að rekja til myglusvepps. Og maður er alltaf svo vitur eftir á, þrátt fyrir að hafa komið þarna nokkrum sinnum, og hafa sjálf verið veik af þeirra völdum, þá áttaði ég mig ekki á af hverju mér leið alltaf svona illa þegar ég kom inn í þetta hús. Lyktin í forstofunni hefði átt að kveikja á viðvörunarbjöllum hjá mér en hugurinn var einhvern veginn svo fastur í að fyrst ég væri farin úr húsinu þá gæti þessi fjandi ekki skaðað mig lengur. En, foreldrar please, ef þið vitið einhvers staðar af rakaskemmdum í húsinu ykkar,  finnið fúkkalykt sem þið losnið ekki við og eigið barn sem er alltaf einhver lumbra í látið þá athuga málið. Því að eyðilegging sveppsins á ónæmiskerfinu getur og verður oft á tíðum varanleg. Börnin þola ekki það sem þau þoldu áður, með ofnæmi fyrir öllum sköpuðum hlutum og verða alla tíð.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

flott hjá þér að láta fólk vita af þessu;) enda eins og þú kanski manst þá að í gamla húsinu var þessi eilýfa fúkkalykt og sjá bara hvað við fengum útúr því.. betra að vera viss;)

Sæunn (IP-tala skráð) 25.3.2008 kl. 21:11

2 identicon

Sæl Bylgja, hræðilegt að heyra þessar fréttir af fjölskyldunni þinni, skelfilegar hrakfarir. Ég vildi benda þér að tala við Sylgju Sigurjónsdóttur, hún óg fjölskylda hennar misstu allt sinn vegna myglusvepps. Nú er hún orðinn sérfræðingur á þessu sviði.  En þau fengu bætur og voru úti með krakkana sína í hálft ár, til að ná sér.  Þú finnur hana í símaskránni, eina Sylgjan á Íslandi held ég.

Ég vona að allt fari á sem bestan veg hjá ykkur. 

Bestu kveðjur að norðan, Alva Ævarsdóttir.

Alva Kristín Ævarsdóttir (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 11:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 145544

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband