Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Olíufurstar-Hækkið ykkar vesæla afslátt!!!

Get ekki hægt að hugsa um %&#"/$$$#$$ vesældarlegan afsláttinn sem bensínstöðvarnar bjóða upp á ef þú ert til að mynda með OB lykil eða Atlansolíu lykil. Heilar 2 krónur, fyrir mér er þetta hreinasta mógðun, þetta nær ekki einu sinni 1 lítra í sparnað ef miðað er við fullan 60 lítra tank. Að voga sér að bjóða upp á afslátt upp á rétt um 1% í staðinn fyrir það sem þeir spara með því að vera með þessar ómönnuðu stöðvar, gróði sem fer hlutfallslega hækkandi hlýtur að vera þar sem ekki hækka launin á mönnuðu stöðvunum í hlutfalli við bensín og olíuhækkanir, þeir ættu hreinlega að sjá sóma sinn í að afnema þennan tíkarlega afslátt ef þeir geta ekki fundið hjá sér hvatningu til að hækka hann í hlutfalli við verðhækkanirnar.

Myglukellingin komin á kreik.

Ég vildi að ég væri þannig gerð að ég gæti haft sambank við fjölmiðlana, sjónvarpið blöðin og útvarpið til að vekja athygli á minum málum. Finnst þetta hreinlega mannréttindabrot gagnvart dóttur minni að geta ekki boðið henni upp á það öryggið sem eigið heimili býður. Mér finnst ég hafa fórnað alltof miklu en dýrunum mínum ætla ég ekki að fórna sem ég þyrfti sennilegast að gera ef ég hefði ekki fengið inni á Fellsenda. Ég á 2 hunda, kött, naggrís og 2 froska og eftir því sem ég hef heyrt þá finnst leigusölum það ekki aufúsugestir. Dóttir mín er 14 ára, unglingur sem sagt og auðveld í samskiptum sem betur fer. Henni finnst jafn leiðinlegt að eiga ekkert heimili og mér en sættir sig við hlutina eins og þeir eru, þó hún hafi þurft að flytja lengra í burtu frá vinum og vinkonum. Hefur einangrað sig að vísu en hér er sem betur fer frábær skóli og frábærir krakkar og það er orðið hennar aðal tilhlökkunarefni að komast í skólann á morgnana. Mér gremst alveg gríðarlega að finna hvergi neina stofnun innan íslenska sjtórnkerfisins sem eitthvað veit um myglusveppi og viðbrögð við honum. Samskipti mín við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands  hjá voru bara fyndin. Aðalmálið hjá blessuðum heilbrigðisfulltrúanum var að ég er reykingamanneskja. Hann vildi ekki einu sinni skoða skriðkjallarann þar sem hann mætti á blankskónum sínum. Það sem varð til þess að myglusveppurinn fékk að grassera svona lengi án þess að uppgötvast var staðsetning hans. Skriðkjallari sem ekki nokkur maður fór niður í. Motta yfir lúgunni og eina fólkið sem nokkru sinni fór niður voru þeir sem komu að lesa af hitanum sem var 1-2 á ári. Einskis varð vart í íbúðinni sjálfri, hvorki lykt né annað þar sem ég var mikið með opið út af hundunum og þarf að hafa ferskt loft í kringum mig. En í aðeins einu sýni, átti ekki pening fyrir fleirum, sem tekið var þarna niðri og sent í rannsókn voru 4 teg. myglusveppa og því alls ekki hægt að útiloka að fleiri tegundir væru til staðar.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

2ja krónu afsláttur olíufélaganna-Er grútmóðguð

Átti leið í Borgarnes í morgun og rak augun í flennistóra auglýsingu eins olíufélaganna um 2ja króna afsláttinn sem eflaust flestir þekkja og miðast við eitt og annað eftir því hjá hvaða olíufélagi það er. Og ég hreinlega ræð ekki við það lengur að í hvert sinn sem sem ég annað hvort heyri eða sé þessar auglýsingar þeirra orðið finnst mér virðingu minni misboðið. Hver olíuverðshækkunin á fætur annarri dynur á manni en aldrei hækka þeir afsláttinn og komast upp með það. Það munar talvert um það hvort þessar 2 krónur eru veittar af 100 kr. eða 150 kr. svo einhver dæmi séu tekin. Og þessi sparnaður sem þessir háu herrar hjá Olíufélögunum þykjast veira að veita kúnnannum er bara orðið grín og lítillækkandi fyrir þá finnst mér fyrst þeir virðast enn ekki farnir að  sjá sóma sinn í að hækka þennan afslátt að neinu leyti til samræmis við verðhækkanirnar sem þeir dúndra yfir okkur látlaust. Eitt félaganna hefur til að mynda auglýst sinn 2ja króna afslátt grimmt í sjónvarpinu og ég get ekki annað en velt fyrir mér hvað hefur orðið af samvisku þessarra háu herra. Tökum eitt lítið dæmi: Þegar bensínlítirinn var í ca 100 kr., þá þýddi þessi 2ja krónu afsláttur 2% afslátt, var jafnvel minni þá en venjulegur staðgreiðsluafsláttur sem tíðkast í dag og er frá 5%-10%. 2% afsláttur finnst mér í það minnsta og ef maður fer að velta fyrir sér allan það sparnað á launakostnaði og öðrum útgjaldaliðum hjá olíufélögunum með því að setja á stofn allar þessar sjálfsafgreiðslustöðvar þá hljóta þeir að hafa einhver tök með að hækka þennan afslátt í að minnsta 5 krónur. 2 króna afsláttur af bensínlitra sem í dag kostar 150 krónur 2 krónur afsláttur af því er 1.3 %. Er þetta ekki orðið svolítið lélegt, allavega særir þetta mína siðferðiskennd. Ég fer og tek 60 lítra af bensíni sem miðað við áðurnefndar 150 kr. kostar þá: 9000 kr Jeij ég fæ 2ja króna afslátt af hverjum 150 kr. lítra borga þar af leiðandi 148 kr. fyrir þessa 60 lítra sem gera þá kr. 8880. Heilar 120 kr. er sparnaðurinn á áfyllinguna á tankinn.  1.3%. Er engum öðrum en mér misboðið þessi niðurlægjandi boð olíufélaganna. ARgh.


Alein og yfirgefin????

Augllýsi hér með eftir fólki sem hefur lent í svipuðum aðstæðum og ég og fjölskylda mín og hefur áhuga á að gera eitthvað til að reyna að breyta viðhorfi yfirvalda og almennings til hins að því er baráttu við myglusvepp varðar. Hljóta að vera einhverjir þarna úti sem hafa annaðhvort misst heilsuna eða eigur sínar af hans völdum. Er ekki orðið tímabært að stofna samtök til hjálpar fólki í svona tilvikum og til að pressa á stjórnvöld til að þau fari loks að taka þessi mál alvarlega. Tryggingafélögin mega líka fara að endurskoða sína stefnu og skilmála, finnst mér, og allt í lagi að ýta aðeins við þeim. Set hér með að gamni grein sem ég skrifaði í Morgunblaðið á sínum tíma þegar ljóst var að þeir hyggðust ekkert gera fyrir okkur við litla hrifningu bossana þar á bæ.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Myglusveppur-Ósýnilegur skaðvaldur

Ég ætla að að þráast við og halda áfram að skrifa um myglusveppinn. Systir mín er bókasafnsfræðingur ogaðstoðaði mig við leit á Internetinu að íslenskum greinum um myglusveppi en okkur til mikillar furðu þá fundum við nær ekkert. Kannski lýsandi fyrir hversu skammt á veg umræða og aðgerðir gagnvart þessum óþverra hérlendis. Eina greinin sem við fundum sem teljast mátti upplýsandi er inni á vef Náttúrufræðistofnunar og er slóðin af henni eftirfarandi: http://www.ni.is/grodur/Flora/Sveppir/sveppatidindi/greinar//nr/458 Fyrirtækið Hús og heilsa er eina fyrirtækið sem ég fann hér á landi sem eitthvað lætur sig þessi mál varða. Það fyrirtæki var stofnað að hjónum sem sjálf lentu í baráttu við myglusveppi og blöskraði úrræðaleysi landans í þessum málum. Hún er líffræðingur og án vafa sú manneskja hér á landi sem mest veit um myglusveppi. Þau eru með heimasíðu og er slóðin á hana: www.husogheilsa.is  Á síðunni þeirra má finna fræðslu og tengingar á góðar heimasíður. Erlendis hefur orðið mikil vakning  og þá vil ég sérstaklega tiltaka Svíþjóð og Bandaríkin, um skaðsemi þessa ósýnilega gests og þar taka stjórnvöld hart á þessum málum. Fjöldinn allur er til af heimasíðum um áhrif sveppanna á heilsu fólks, einkennum lýst, viðbrögðum og ráðum og til gamans má geta þess að síðasti þáttur um Doc. Martin á RÚV gekk einmitt út á veikindi af völdum myglusveppa. Gerðar hafa verið heimildarmyndir og myndir og held það væri heillaráð fyrir sjónvarpsstöðvarnar að taka eitthvað að þeim til sýninga og opna þannig augu almennings fyrir þessari vá. Einnig mættu læknar þessa lands fara að kynna sér þessa hluti betur. Þá kannski þarf maður ekki sjálfur að sjúkdómsgreina sig og tilkynna þeim hvað er að manni. Það er erfitt að finna þetta í venjulegum rannsóknum, kemur einungis fram í blóðprufum í 50% tilfella segir á netinu. En ég held að flestir viti hvað það er lýjandi að ganga á milli lækna til að reyna að fá bót meina sinna og fá engin svör.


Myglusveppur-Algjört úrræðaleysi???

husid 026Þar til fyrir þremur dögum síðan áttum ég og fjölskylda mín þetta hús. Heimili okkar sl. 7 ár og þar sem ég hafði hugsað mér að vera um ókomna tíð. En þá fékk ég gesti, gesti sem fór svo lítið fyrir að enginn varð var við neitt. Þeir hreiðruðu um sig í skriðkjallara sem var undir öllu húsinu og enginn vissi af þeim. Veikindum mínum sem höfðu staðið í á annað ár fannst engin skýring á þrátt fyrir allan þann fjölda lækna sem var leitað til. Ég var farin að halda að ég væri móðursjúk, og hve þreytandi þetta var orðið fyrir aðra fjölskyldumeðlimi.. Húsmóðirin alltaf lasin og varð veikari og veikari. En loks fannst skýringin, gríðarlegur myglusveppur hafði myndast í skriðkjallaranum og við eftirgrennslan og skoðun á teikningum hússins kom í ljós að hann var alls ekki byggður rétt. Ég fann á netinu fyrirtæki sem heitir Hús og heilsa, sem stofnað var af hugsjónafólki sem hafði sjálft lent í þessum vágesti með slæmum afleiðingum og blöskraði að ekkert væri til á landinu sem aðstoðaði fólk við þessar aðstæður. Niðurstaðan var skýr, húsið mitt var gegnsýrt og ekkert fyrir mig að gera nema flytja út með það sama. Ég fékk inni, ásamt dóttur minni, hjá bróður mínum og innan tíðar fór heilsan að lagast. En sveppurinn hafði þegar haft þau áhrif að ég sá mig tilneydda til að segja upp góðu starfi þar sem ég fékk tækifæri á að mennta mig við Viðskiptaháskólann á Bifröst, námi sem ég neyddist einnig til að hætta er ég átti einungis eina önn eftir, vegna sífelldra veikinda. Gat hreinlega ekki boðið vinnuveitendum mínum upp á að sitja uppi með starfskraft sem var sífellt fjarverandi vegna veikinda. Við vorum, að við töldum, vel tryggð og treystum á að fá tjón okkar bætt en sú var ekki raunin. Tryggingfélagið okkar sá sér ekki skylt að bæta tjón af þessu tagi. Var ekki í skilmálunum. Ég verð enn reið þegar ég sé auglýsinguna þeirra sem dynur á manni á hverjum degi: "Ef þú ert tryggður, þá færðu það bætt." Og nú eru þeir líka farnir að bjóða upp á áfallahjálp hjá sálfræðing. Held ég verði að þiggja hana, er í áfalli yfir að fá ekki tjón mitt bætt að neinu leyti hjá þeim. Ég er allslaus, húsið mitt farið, húsgögnin og annað sem ég hafði eignast í gegnum árin. Ég hef ekki einu sinni færi á að byrja upp á nýtt, þar sem ég sit uppi með lán með veði í húsi sem ekki er til lengur. Hvernig á bankinn minn að gæta sinna hagsmuna ef við hættum að borga af láninu með veð í sama húsi. En að sjálfsögðu getum við ekki bara hætt að borga ef við ætlum að eiga einhverja möguleika á að fjármagna annað hús, sem við höfum  hugsað okkur að reisa á grunni þess gamla. En við erum venjuleg fjölskylda með meðaltekjur og hvernig eigum við að fá greiðslumat með lánið af ónýta húsinu á bakinu. Elskulegur eigandi sveitabæjar hér í sveitinni minni sá aumur á okkur og nú búum við þar með húsgögnin sem þar voru fyrir en það er ekki endanleg lausn. Það eiga allir rétt á að eiga sitt heimili og þar með talin dóttir mín. Ég vil geta tekið á móti eldri börnunum mínum þremur ef þau vilja koma og gista með fjölskyldur sínar á mínu heimili. Ekki þar sem ég þarf að vera með rúm í stofunni, rúm sem einhver annar á. Ég skrifaði umhverfisráðherra til að reyna að vekja athygli á þeim skaðvaldi sem myglusveppurinn er en hún hefur enn ekki séð ástæðu til að svara bréfinu mínu. Ég talaði við lögfræðinga, húseigendafélagið og alla sem mér mögulega datt í hug en fékk engar lausnir. Leyndur galli, vissulega, en húsið er byggt árið 1986 og því allar kröfur sem mögulega væri hægt að gera á húsbyggjandann löngu fyrndar. Það er líka bara hrikalegt að neyðast til að leita að einhverjum sökudólgi til að taka á sig tjónið. Sá sem seldi okkur húsið, jú, er mögulega bótaskyldur en þegar maður veit að málsókn honum á hendur hefði ekkert upp á sig sökum bágrar fjárhagsstöðu hans, þá væri það bara að henda peningunum út um gluggann. Íslenskt samfélag virðist  mér bara ekki vera tilbúið til að takast á við þennan vanda. Hagsmunir fólks eru varðir með skyldutryggingu ef það kviknar í húseign þeirra, húsið mitt er jafn ónýtt og ef það hefði brunnið til grunna en það sit ég uppi með ein. Erlendis er fólk orðið mun meðvitaðra um hversu hættulegur myglusveppurinn er og í Morgunblaðinu sá ég að í Bandaríkjunum grípa stjórnvöld inní og rífa hús sem ekki hefur verið sinnt um eftir Katarínu til að koma í veg fyrir myglusveppamyndun í þeim. Það kemur í öllum fréttatímum ef fólk missir eignir sínar í bruna en fjölmiðlar hér hafa engan áhuga á að fjalla um tjón af þessu tagi. Það er ömurleg tilfinning að horfa upp á heimili sitt rifið til grunna og sjá ekkert framundan. Samt gat ég ekki farið, sat bara í bílnum og horfði og horfði. Þarna fór sófasettið, stofuhúsgögnin, allt kurlað niður í ekki neitt og keyrt á tipp. Að hreinsa upp eftir niðurrifið er eitthvað sem ég hef enn ekki treyst mér í. Verð að fara og sópa upp af götunni og hreinsa upp það sem fauk þegar húsið mitt fór í kurlarann. Get ekki farið þarna niðureftir. Myglusveppur er stór alvarlegt mál og löngu orðið tímabært að stjórnvöld, tryggingafélögin og samfélagið allt fari að líta á hann sem þann skaðvald sem hann er.

« Fyrri síða

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 145586

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband