Of seint í rassinn gripið!!!

Kristján Möller talaði fjálglega um það í fjölmiðlum á dögunum hversu miklu meira væri nú eytt í vegagerð og samgöngubætur heldur en áður. Það er vissulega góðra gjalda vert og ég tel að við höfum verið heppin að fá hann sem samgönguráðherra í núverandi ríkisstjórn og ekki hægt þar að hengja bakara fyrir smið. Hann tekur við vægast sagt illa reknu búi þar sem metnaðarleysi hefur ráðið för og framtíðarsýn á íslenskt samfélag hefur algerlega skort. Við erum áratugum á eftir í nauðsynlegri framþróun vegakerfisins og erum heldur betur að bíta úr því núna. Fyrrverandi ríkisstjórnir ættu að skammast sín fyrir framtaksleysið og fjársveltið sem þeir leyfðu sér að bjóða okkur upp á þegar til vegagerðar kom. Að vera enn að keyra malarslóða sem þessir blessuðu menn kalla vegi nær náttúrulega ekki nokkurri átt á 21. öldinni. Að vera með vegakerfi sem svipar til vega annarra landa fyrir heilli öld síðan töldu þessir háu herrar fullgott fyrir okkur. Og nú er það svigrúm sem hefði gefist til úrbóta löngu uppurið. Um allt land er orðin alger nauðsyn að bæta vegakerfið en það er dýrt og ekki hægt að gera allt í einu. Að þeir skyldu leyfa þessu að fara svona er ófyrirgefanlegt og ég velti fyrir mér hversu mörgum mannslífum þarf að fórna fyrir slóðahátt þeirra á þeim tíma sem þeir fóru með stjórn þessara mála. Og nú erum við runnin á rassgatið með vegagerð eins og svo margt annað og fólk þarf að gjalda fyrir það með lífi sínu eða heilsu. Að þjóð sem státar af einni mestu bílaeign í heimi eigi ekki til mannsæmandi vegi fyrir alla þessa bíla er fáranlegt. Þetta er staðreynd sem hefur lengi verið vitað um og kristaltært að svona ættu þessi mál eftir að þróast. Svo þessir menn hafa enga afsökun og ég öfunda ekki Kristján að eiga eftir að ráða fram úr þessum málum.
mbl.is Engin tvöföldun í bráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband