Finnst mönnum þetta í alvörunni vera frétt???

Fyrirgefðu kæri blaðamaður en mér finnst m.a.s. áhugaleysið gagnvart viðkomandi atburði skína í gegn í fyrirsögninni. Fréttin sjálf snubbótt og stuttaraleg. Kemur hvergi fram hvað drengirnir eru gamlir, t.d. sem hlýtur vissulega að skipta máli. Ég meina voru þeir sjö ára eða fimmtán. Hverjir voru með þeim og hver fann þá. Hvergi minnst á neitt. Hefði nú bara sleppt því að birta þetta  ef ég hefði ekki nennt að vinna þetta almennilega. Skil ekki tilganginn með svona fréttaflutningi. Uppfylling vegna fréttaleysis eða hvað???


mbl.is 3 strákar villtust í Þórsmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það getur nú verið mjög alvarlegt að týnast á þessu svæði, sérstaklega fyrst þeir hafa farið að vaða yfir ár. Ekki langt síðan erlendur ferðamaður lést þarna þegar það sama gerðist fyrir hann.

Guðmundur Ólafsson (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 23:36

2 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Akkúrat það sem mér finnst. Þess vegna finnst mér þessi fréttaflutningur alls ekki þjóna neinum tilgangi og sýna þessum atburði virðingarleysi. Takk fyrir að commenta.

Bylgja Hafþórsdóttir, 20.5.2008 kl. 23:42

3 identicon

Það sem ég er einn af þessum sem týndist langar mig að svara fyrir mér, ég er alveg sammála þér að það er fréttaleysi þar sem þetta var nú ekkert svaðalegt sem gerðist bara nokkrar skrámur og smá kuldi og bleyta, við vorum fastir og sáum alveg í rútuna okkar sem kom okkur á staðinn og vissum við að hún var beint á móti skálanum. Þannig við reyndum að komast yfir ár en það gekk ekki þannig við þorðum ekki að fara yfir fjallið.

Alex Kári Kristjánsson (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 145546

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband