21.5.2008 | 08:58
Hrefnukjöt á minn disk??? Ja veistu....
Það er bara alveg hugsanlegt. Hef ekki smakkað hrefnukjöt síðan ég var krakki norður á Sigló og man að mamma setti kjötið í mjólk til að ná úr því sjóbragðinu. Ég ætla nú ekki að fara að leita ketið uppi en ef ég rekst á það marinerað á freistandi máta, tilbúið á grillið þá hugsanlega prófa ég smá bita. Hef nefnilega heyrt að það sé lostæti matreitt á þann mátann. En ætli hrefnan sem veiddist í fyrra hafi öll selst. Fylgdist hreinlega ekkert með því. Er alvöru markaður fyrir þetta eða er bara verið að veiða til að veiða og láta ekki neinn segja sér hvað má og hvað má ekki. Umm, best að fara að forvitnast.
Fyrsta hrefnan veidd á Faxafló | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já Bylgja það seldist allt upp og hálfum mánuði eftir að síðasta hrefnan var dregin á land fékkst ekki einn einasti biti á öllu landinu. Ef þú ætlar að grilla hrefnu er gott að útbúa góða "marineríngu", skera kjötið í þunnar sneiðar og láta þær liggja í "marineríngunni" yfir nótt, steikja þær á vel heitu grillinu í hámark eina mínútu á hvorri hlið, láta kjötið standa í nokkrar mínútur eftir steikingu og bera síðan fram með soðnum kartöflum og salati. Gott rauðvín sakar ekki. En í guðanna bænum farðu ekki að sulla kjötinu saman við mjólk,það er pottþétt leið til þess að eyðileggja kjötið.
Jóhann Elíasson, 21.5.2008 kl. 09:36
Grunaði það. Takk fyrir ráðlegginguna með mjólkina. Hvaðan ætli þetta hafi komið upphaflega að setja svona sjókjöt í mjólk. Kíki í Nóatún næst þegar ég á leið í borgina og athuga hvort þeir eigi ekki smakk handa mér.
Bylgja Hafþórsdóttir, 21.5.2008 kl. 10:11
Sæl. Ég er frá Dalvík og bjó lengi á Húsavík. Þar var hrefnukjöt oft á boðstólnum. En kjöt af annari tegund af hval var stundum sett í mjólk til að ná í burtu einhverju vissu bragði en mér hefur aldrei þótt þurfa þess með hrefnuna. Ég fór oft þegar ég var krakki á Húsavík niður á bryggju og horfði á þegar komið var með hval. Það var svo gaman að sjá þegar skorið var með þessum stóru hnífum og þetta eru nú engar smá skepnur. Svo fékk maður stundum bita með sér heim í bandi. Þá varð mamma glöð og slengdi þessu gjarnan í rasp og steikti, gott með kartöflumús og rabbabarasultu. Mér finnst hrefnukjöt með því besta sem ég fæ. Dóttir mín sem er að verða 20 hefur alist upp við þetta og finnst rosalega gott. Ég hlakka til að fá hrefnu í matinn. Svo ætla ég að hamstra kjöt síðar í sumar og eiga fram á vetur. Kveðja, Hafdís.
Hafdís Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 10:29
Svona var þetta líka á Sigló. Það var ævintýri að vera niðrá bryggju og fylgjast með köllunum þegar þeir komu í land með hval. Að ég tali nú ekki um hákarlinn, það fannst manni óhuggulegt dýr með sínar hvössu tennur og beittan skráp.
Bylgja Hafþórsdóttir, 21.5.2008 kl. 10:42
Þetta var eitthvað "gamalt" húsráð og átti að eyða lýsisbragði af hrefnukjötinu. Sömu minningar á ég, frá Þórshöfn, þegar bátarnir komu í land með hrefnu og þá fylgdist maður með köllunum skera hana, oftast fékk maður bita með heim og mamma velti sneiðum upp úr raspi, harðbrasaði og svo var þetta borðað með kartöflum (rosalega held ég að kartöflumúsin hafi vrið góð með þessu) og rabbabarasultan var ekki spöruð.
Jóhann Elíasson, 21.5.2008 kl. 10:49
Ég elska hrefnukjöt, finnst einmitt grátlegt hversu sjaldan er hægt að fá það
Unnur R. H., 21.5.2008 kl. 11:33
Meðhöndlið Hrefnukjötið bara eins og nautasteik og grillið eins, medium-rare og þá eruði með svaka steik... oftast færðu þetta tilbúið með marineringu í t.d. Nóatún og jafnvel Hagkaup líka... mér finnst eins og þetta sé alltaf til... gúrmet!
Þór (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 12:04
Nei, nú verð ég að fara í Nóatún n.k. föstudag og reyna að ná í ketmeti. Kannski best að ná þá í grillið í bílskúrinn á Hagamel í leiðinni. Minn mann er mjög íhaldssamur í mat og finnst þetta örugglega gott. Ket og kartöflur og fiskur í raspi er hans matur, annað er bara drasl. Pasta bara meðlæti og þá helst bara spaghetti, he he. Saltað hrossakjöt, kjötsúpa og þess háttar hnossgæti. Er svo heppin með hvað hann er duglegur að draga í búið. Á alltaf kjöt í kistunni, þá lamba- og folaldakjöt. Nautakjöt hef ég ekki bragðað í mörg ár. Hvernig er verð á hrefnukjöti eiginlega???
Bylgja Hafþórsdóttir, 21.5.2008 kl. 12:12
Ég er ekki alveg viss í sambandi við verðið en í fyrri kostaði það rúmlega 1.100 kr/kg sem að mínu viti er lítið fyrir beinlaus og fitulaust kjöt. Greinilegt að maðurinn þinn er mikill smekkmaður á mat.
Jóhann Elíasson, 21.5.2008 kl. 12:51
1100 kr/kg fyrir úrvalds kjöt. fyrir sömu upphæð gæti ég kannski fengið eina eða tvær kjúklingabringur.
Fannar frá Rifi, 21.5.2008 kl. 12:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.