Er gjörsamlega áttavillt!!!

konaHægri, vinstri, einn, tveir. Áfram gakk í sitthvora áttina. Hversu lengi gengur þetta "samstarf", ég get ekki annað en efast um tilgang þess. Eldur og vatn geta treglega átt samleið. Hvað ætlu séu margir sjálfstæðismenn pirraðir yfir að vera í stjórn með Samfó og öfugt. Hvers lags þrái er þetta að vera samstíga út á við en geta ekki komið sér saman um einföldustu hluti þegar á reynir. Held  ég kjósi Framsókn næst, svona til að leggja mitt af mörkum til að viðhalda stofninum svo hann deyi ekki út. Get hvort eð er ekki séð hvaða andsk. máli  það skiptir hvað maður kýs, hvort sem er til alþingis eða sveitarstjórna. Hrært með þetta fram og aftur.
mbl.is Vinstristefna að tala niður atvinnulífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Ef þér finnst mismunandi skoðanir óþægindi, vil ég benda þér á að einveldi er auðvitað stefna sem hefur vissa kosti.

Frelsi og lýðræði er bara vont.

Jón Halldór Guðmundsson, 22.5.2008 kl. 11:59

2 Smámynd: Snæþór Sigurbjörn Halldórsson

Mikið er ég sammála þér og vil nýta tækifærið að bjóða þig velkomna í Framsókn. Hvergi betra að vera ;-)

Snæþór Sigurbjörn Halldórsson, 22.5.2008 kl. 12:10

3 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Kannski ég ætti að bjóða Ingibjörgu og Geir í mat. Marinerað hrefnukjöt. Friðarpípa í eftirrétt.

Bylgja Hafþórsdóttir, 22.5.2008 kl. 12:16

4 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Kæri Jón, Elsku Jón tatatatata. Gleymdirðu ekki að opna augun í morgun þegar þú fórst á fætur. Verð að fara að finna þennan sand sem þú hefur til að stinga höfðinu ofan í til að þurfa ekki að horfast í augu við staðreyndir.  Lýðræði, hvað. Hvað kaust þú annars. Bara forvitin he he. Ekki illa meint.

Bylgja Hafþórsdóttir, 22.5.2008 kl. 12:40

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

enilega drífðu þig í Framsókn. Þar voru allir sammála síðasta ræðumanni og voru hækja íhaldsins...það er líklega betra en lýðræði og frjáls skoðanaskipti

Jón Ingi Cæsarsson, 22.5.2008 kl. 12:46

6 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

ÍSLAND!!! BEST Í HEIMI !!

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons

Kjartan Pálmarsson, 22.5.2008 kl. 17:01

7 Smámynd: Unnur R. H.

Viltu bjóða mér í mat með þeim, en áfraam framsókn  jebb

Unnur R. H., 22.5.2008 kl. 17:47

8 identicon

 Sæl Bylgja min.

Láttu thad vera ad hugsa um Framsókn, thu getur alveg eins slept thvi ad kjosa, vonlausir sukkarar og ekkert annad, eg myndi t,d radleggja ther ad skoda Steingrim og hann bordar hrefnukjöt lika.

 Bestu kvedjur 

Baluo (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 16:25

9 Smámynd: Lovísa

Innlitskvitt

Góða helgi

Lovísa , 24.5.2008 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 145544

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband