Það skyldi þó aldrei vera myglusveppur!!!!

Ég get ekki annað en glaðst yfir þessari frétt ef ég á að vera alveg hreinskilin. Fróðlegt þætti mér að vita hvernig sjúkdómseinkenni viðkomandi starfsmanna eru. Ég finn svo innilega til með þeim og fagna því að stjórnendur heilsugæslustöðvarinnar taki veikindi þeirra það alvarlega að þeir vinni markvisst að því að komast að hvað það er sem veldur. Ég ætla bara að vona að vinnueftirlitið standi sig í stykkinu og taki þetta alvarlega. Vonandi standa þeir sig betur en heilbrigðisfulltrúinn sem ég leitaði til á sínum tíma þar sem hann átti að vera fulltrúi Hollustuverndar. En svo er annað mál hvort eitthvað komi út úr rannsóknunum á starfsfólkinu, það eru nefnilega einungis um 50% líkur á að myglusveppur komi fram á t.d. blóðprufum eftir því sem ég kemst næst. Nú er bara að vona að eitthvert tryggingafélagið sjái sóma sinn í að fara að bjóða upp á tryggingar gagnvart þessum vágesti líkt og í nágrannalöndum okkar, Noregi og Svíþjóð.


mbl.is Rannsakað hvort húsnæði heilsugæslu sé heilsuspillandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég gladdist líka, af nákvæmlega sömu ástæðum og þú. 
Þú átt alla mína samúð.... sérstaklega þar sem ég þekki til þessa vágestar líka (bara í minna mæli en þú). 
Langar að vita.... fulltrúi Hollustuverndar.... er það fulltrúi frá Heilbrigðiseftirlitinu ? Er smá forvitin sökum míns máls.

Kristín (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 22:48

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

..það er með eindæmum að það þurfi að rannsaka eitthvað um myglu í húsum á ÍSLANDI árið 2008! Þetta er eitt baneitraðasta fyrirbæri sem er til! bara að panta mann með mælitæki og mæla! Annaðhvort er mygla í húsi eða ekki. þetta er eins og að segja að já, það er að vísu kviknað smávegis í húsinu svo við skulum senda slökkvilisnefndinni bréf og athuga hvort eldurinn sé hættulegur eða ekki..vill einhver hafa slökkvilið sem vinnur svona? ótrúlegt að þetta skuli bara vera til! Mygla í húsi er jafn hættulegt og að það væri kviknað í húsinu. Sama hvort eldurinn er lítill eða ekki, ef hann er ekki slökktur þá hefur eldur tilhneigingu að breiða úr sér. kannski hagar eldur  á íslandi sér eitthvað öðruvísi á Íslandi enn öðrum löndum.  Eru menn að sanna hvort kvinað sé i húsi með því að kanna brunasár á fólki?  Ég vona að þú skiljir samlíkingunna Bylgja! Þetta er nefnilega jafnalvarlegt mál..greinilega allstaðar nema á Íslandi..að það skuli ekki vera til myglutryggingar segir mér allt um þetta mál sem ég vil vita um. Ég ætla aldrei að segja frá þessu í Svíþjóð!  Ég skammast mín alveg nóg fyrir aulagangin og ruglið á  þessu landi þó ég bæti ekki þessu við. Svo myndu þeir hvort eð er ekki trúa mér heldur..vona að hafi ræst eitthvað úr þessu hjá þér Bylgja með húsið og tjónið sem þú varðst fyrir...

kv, 

Óskar Arnórsson, 26.5.2008 kl. 01:40

3 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Já, eftir þeim upplýsingum sem ég fékk eftir ótal símtöl til að finna út hvert ég ætti að leita. Talaði á endanum við Umhverfissvið Reykjavíkurborgar og þeir sögðu mér að heilnbrigðisfulltrúinn væri fulltrúi hollustuverndar þannig að ég hringdi í hann og fékk hann til að koma. Pah, hef sagt frá því fyrr á blogginu mínu en hann fékkst ekki einu sinni til að skoða skriðkjallarann á blankskónum sínum, sagðist ekki ætla að fara að skríða sem þarf ekki einu sinni, er vel manngengur. Hann tók engin sýni ekki neitt. Hnussaði bara vegna dekkja sem voru úti og skipaði mér að hætta að reykja.

Bylgja Hafþórsdóttir, 26.5.2008 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 145544

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband