Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Áskorun til féþúfufyrirtækja sem kalla sig tryggingafélög.

Kæru stjórnendur gróðamaskínanna miklu. Það er hverju fyrirtæki mikilvægt að vera með sterka eiginfjárstöðu og enn mikilvægara að sýna fram á hagnað af rekstrinum. En er ekki tilgangurinn tryggingafélaga ekki kominn út fyrir sitt svið þegar einungis eru til peningar til að búa til meiri peninga en ekki til að bjóða fólki upp á tryggingar fyrir ófyrirsjáanlegum skaða, skaða sem getur verið svo mikill að það stendur uppi allslaust. Hvar eru takmörkin fyrir því hversu sterk eiginfjárstaðan á að vera, hvar eru takmörkin fyrir því að sama fé sé tekið út úr fyrirtækinu til að fjármagna önnur gæluverkefni eigenda tryggingafélaganna. Einungis nægilega mikið fé skilið eftir til að halda eiginfjárstöðunni viðunandi en restin notuð í fjárhættuspil fjárfestinganna. Nefni engin nöfn.

Af hverju í ósköpunum er ekki til neitt tryggingafélag hér á Ísalandinu sem býður fólki upp á að geta tryggt sig fyrir myglusvepp og þeirri eyðileggingu sem hann veldur eins og er t.d. í Noregi. Hvernig er hægt að réttlæta það að ekki sé hægt að tryggja sig fyrir þessari vá eins og öðrum. Að geta leyft sér að segja að skemmdir af völdum myglusvepps í húsi megi rekja til utanaðkomandi vatns finnst mér virkilega lélegt. Er ekki allt vatn utanaðkomandi, hvort sem það kemur úr leiðslu eða hripar í gegnum jarðveginn.

 Sýnið nú framsýni og manndóm og bjóðið upp á tryggingar sem taka á tjónum. Hættið að nota okkur sem féþúfu og peningana okkar í  misgáfulegar fjárfestingar. Verum ekki síðust eins og í svo mörgu öðru að taka á málunum. Ég vil fá tryggingu sem bætir myglusvepp því svoleiðis málum á eftir að fjölga gríðarlega á næstu árum, hér á landi eins og annars staðar vegna hlýnandi veðráttu.


Nú er mín óþægur ljár í þúfu í sveitinni sinni!!!

Lítil saga af bréfi sem er lent á vergangi að því er virðist vegna þess að stjórnendur sveitarfélagsins míns vita ekki hvað þeir eiga að gera með það. Þetta bréf skrifaði ég samkvæmt beiðni frá oddvita sveitarfélagsins, sem þá var starfandi sveitarstjóri eftir að fyrrum sveitarstjóri sagði upp störfum. Viðkomandi bréf var tekið fyrir á sveitarstjórnarfundi og þar var sá póllinn tekinn í hæðina að senda það áfram á félagsmálanefnd og láta þá fjalla um málið. En þar kom babb í bátinn. ´Félagsmálanefnd stóð nefnilega uppi ráðalaus, hún var engu nær, frekar en ég, um af hverju bréfið var sent til þeirra. Formaður nefndarinnar er góð kona, sem hefur látið sig félagsmálin varða í fjöldamörg ár og sinnt þeim af heilum hug. Hún hefur hlúð að eldri borgurum sveitarinnar og hjálpað efnalitlum tekjulágum fjölskyldum að haldast á floti í þrengingum. En svona mál hefur hún aldrei fengið á sitt borð og fátt sem henni finnst hún geta gert í stöðunni. Nefndin vinnur eftir ákveðnum reglum um fjárhagsaðstoð, reglur sem okkar mál fellur á engan hátt undir og á að ég tel ekkert heima hjá þeim. "Gætum við ekki bara flutt aftur til Siglufjarðar" var ein uppástungan sem hún kom með. Einhverju stamaði ég út úr mér um að þar væri enga vinnu að hafa eða eitthvað ámóta, þetta kom mér svo í opna skjöldu að ég vissi hreinlega ekkert hvernig ég átti að svara þessu. Vafalaust hefur hún meint vel en... á manneskja í opinberu starfi að segja svona. Hefði alveg eins getað sagt: "Getið þið ekki bara flutt úr sveitinni okkar svo við þurfum ekki að horfast í augu við þessi vandamál sem fylgja ykkur". "Gátuð þið ekki beðið með að rífa húsið" var annað. Ég meina hvað getur maður sagt. Ég var farin að dauðvorkenna konunni að þurfa að vera að reyna að ræðá þessi mál við mig. Við áttum alla hennar samúð en maður fer nú ekki langt á henni. En nú á að taka okkar mál fyrir á næsta sveitarstjórnarfundi og vonandi kemur eitthvað út úr því. Einnig er nýi sveitarstjórinn kominn til starfa og á ég fund með henni n.k. fimmtudag og ég hef fulla trú á henni. Held að hún sé með bein í nefinu og geri eitthvað áþreifanlegt í okkar málum. Við stöndum ekki undir þessu öllu lengur.

 


Að leyfa utanaðkomandi aðstæðum að taka völdin!!!

Held að það komi fyrir flesta að stundum geti þeir ekki meir, leggja allt frá sér og skríða í holu sína í veikri von um að ná aftur upp því þreki og þeim vilja sem þarf til að halda áfram að takast á við hinar ýmsu hremmingar sem daglegu lífi fylgja. Ég sprakk á limminu og er að reyna að púsla mér saman aftur og þá verð ég að blogga. Sjálfsvorkunn, finnst efalaust mörgum, en það verður þá bara að vera svo. Ég er bara þreytt, þreytt á hvað allt tekur langan tíma, þreytt að fá hvergi svör og þreytt á að sjá engan árangur af allri þeirri vinnu sem ég hef lagt í að fá einhverja lausn okkar mála. Undirbúningur fyrir re isningu nýja hússins er eini ljósi punkturinn. Þar hafa góðir menn komið okkur til hjálpar og lagt fram ómælda vinnu við gerð sökkuls, lagningu lagna og annað. Tengdasonur minn er pípari og hann hefur keyrt úr Reykjavík eftir vinnu á kvöldin og um helgar til að hjálpa okkur. Hann er frábær, bróðir minn, Steinar, kunningi okkar og fleiri hafa einnig lagt hönd á plóginn og nú líður að því að hægt verði að einangra plötuna, leggja hitann í gólfið og steypa plötuna. Byggingafulltrúi sveitarinnar hefur líka reynst betri en enginn. Hann hefur allt viljað fyrir okkur gera og lagt á sig gríðarlega vinnu við að reyna að hafa uppi á þeim pappírum sem við höfum þurft á að halda og hafa rykfallið í kössum hjá fyrrum byggingafulltrúm gamla Skilmannahreppsins. Getum hringt í hann hvenær sem er og höfum aldrei þurft að bíða eftir úttektum. Þar er maður sem sýnir metnað í starfi og veit upp á hár hvað hann er að gera. Við værum sko ekki allslaus í dag ef hann hefði verið byggingafulltrúi þegar húsið var byggt. Hann hefði ekki leyft húsbyggjandum að komast upp með svona fúsk.

En hvað svo tekur við, þar stendur hnífurinn í kúnni. Það eru alla vega tvær vikur síðan við sendum sparisjóðnum bréf þar sem við báðum þá um aðstoð og hvort þeir gætu e.t.v. fellt niður yfirdráttarvextina af heimildinni sem við fengum til að borga inn á húsið þegar við pöntuðum það. Um síðustu mánaðamót höfðum við greitt rétt um 1.000.000 í yfirdráttarvexti frá því í nóvember og það segir sig sjálft að það stendur enginn undir því til lengdar ofan á allt hitt. Ég get ekki lýst því hversu fegin ég er að við vorum ekki með neinar aðrar skuldir á bakinu, að hafa ekki dottið ofan í hina djúpu hít neyslulána þegar boðið var upp á það. Aldrei svo mikið sem tekið bílalán og kaupi helst ekkert nema gegn staðgreiðslu.

Húsið er komið, en við höfum enn ekki fengið nein svör frá sparisjóðnum hvort þeir ætli að lána okkur þessar 4-5 milljónir sem uppá vantar til að geta leyst húsið út. Þá er ótalið reisningin á húsinu og öll önnur vinna innanhúss, lóðin og bara það sem fylgir. Og ég er vondauf, þessa dagana. Aðstæður hafa breyst svo gríðarlega í þjóðfélaginu síðan þetta með myglusveppinn kom upp að ég veit ekkert hvað er framundan.

Við höfum leitað á náðir sveitarfélagsins, einnig, en þar er sama sagan. Það er eins og fólk viti ekki hvað eigi að gera í þessari stöðu. Erindi okkar var tekið fyrir á sveitarstjórnarfundi og sá póllinn tekinn í hæðina að senda erindið áfram á félagsmálanefnd. Skil ekki af hverju, miðað við þær reglur sem sú nefnd vinnur eftir og miðað að aðstoð við framfærslu tekjulítilla einstaklinga eftir því sem ég gat best séð. Dóttir mín virðist ekki vera barn á þeim bænum, fjórtán ára, miðað við það sem formaður félagsmálanefndar sagði við mig. Við erum ekki að biðja um einhverja ölmusu, heldur að sveitarfélagið taki okkar mál til skoðunar af fullri alvöru til að fyrirbyggja álíka slys í framtíðinni. Að bygginga-og skipulagsnefnd fari yfir okkar mál með það að leiðarljósi að í sveitarfélaginu mínu verði fólki ekki lengur leyft að komast upp með þessa úreltu sveitabæjarmenningu að geta byggt yfir sig húskofa án þess að þurfa að framfylgja lögum og reglum. Að þeir fari að átta sig á að þeir eru ekki lengur bóndakallar á traktor úti á túni með Lappa sinn hlaupandi á eftir og nefndarstörf séu bara óumflýjanlegur aukapakki sem enginn metnaður er settur í.

Ég sá í blaði að í Noregi getur fólk tryggt sig fyrir skemmdum af völdum myglusvepps og ég velti því fyrir mér hvort ekki sé kominn tími til að íslensk tryggingafélög fari að skoða þann möguleika af fullri alvöru. Þetta er ömurleg að vera í þeirri stöðu að vera hvergi til í kerfinu, vita ekkert hvað maður getur gert og hvert maður á að leita. Nú er eina vonin að lögfræðingurinn okkar finni einhverja lausn á okkar málum, hvernig sem svo við eigum að fara að því að borga honum. Úff, voðalega er ég svartsýn núna en svona líður mér bara.

Það klykkti endanlega út þegar við svo urðum vatnslaus hér á Fellsenda. Hér er augljóslega engin hitaveita, svo hitakútur er það heillin sem er allt í kei. En vatnið fáum við úr brunni hér uppi í hlíðinni og að sjálfsögðu þornaði hann upp. Getið ímyndað ykkur hvað það var gaman. Ekkert vatn, hvorki heitt eða kalt. Mín brunaði með nokkrar 2ja lítra flöskur heim til bró og fyllti á þær. Hitaði vatn í potti til að geta vaskað upp og sturtað niður úr klósettinu. Er nú vön að vera án ýmislegs en þetta fyllti mælinn. Maðurinn minn varð sér úti um tugi metra af svörtum rörum og nú liggja þau upp í læk hér fyrir ofan og inn á kerfið. Það er kalda vatnið mitt núna. En það dugar, get alla vega þvegið þvott og farið í sturtu. Mér er sama þótt hér náist bara RÚV og rás 1, þarf ekki sjónvarp og útvarp en vatn verð ég að hafa, það er algjört lágmark.

 

 


« Fyrri síða

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband