29.3.2008 | 09:58
Söfnunarreikningurinn okkar : )
Er mér bæði ljúft og skylt að upplýsa ykkur bloggvinir góðir og aðrir þeir frábæru einstaklingar sem hófu söfnun handa okkur og hafa á bloggsíðum sínum um hvernig gengur: OOOGGGG HÉR KOMA NÝJUSTU TÖLUR DADADADAM Inn á reikninginn minn eru komnar 178.000 kr. sem er BAAAARRRA æðislegt. Þetta er alveg ný reynsla fyrir mér að upplifa og erfitt að útskýra hvernig mér líður. Þegar ég sá svo á blogginu hennar Dísu Gests. að sveitungar mínir hér í minni yndislegu Hvalfjarðarsveit hafa einnig staðið fyrir söfnun okkur til handa, ja, þá fór ég bara í flækju og verð að viðurkenna skömm mína. Fyrir allnokkru síðan hringdi í mig góð kona héðan úr sveitinni, held hún kæri sig ekki um að vera nefnd á nafn, og viðraði þessa hugmynd við mig og ég man að ég stamaði út úr mér samþykki. En svona getur maður verið vitlaus, ég heyrði aldrei neitt meira á þetta minnst og tók þessu bara sem hugmynd sem var góðra gjalda verð og ég mat mikils að hún væri að hugsa á þessum nótum. Hefði átt að vita betur, konan sú, er kona framkvæmda ekki orða og ég skammast mín niðrí tær fyrir að hafa ályktað svona bjánalega. M.a.s. bróðir minn sem býr líka hér í sveitinni vissi um þessa söfnun handa okkur en var ekkert að minnast á það. Hógværð og lítillæti eru hugtök sem samsveitungar mínir vita svo sannarlega hvað þýðir og þeim hefur sko ekkert fundist ástæða til að vera að gaspra eitthvað með þetta. En enn og aftur það er gott, þó skrítið sé, að upplifa á eigin skinni hvernig landinn stendur saman þegar á bjátar hjá náunganum og þið eruð mér öll afskaplega mikils virði. Þakklætiskveðja BH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.3.2008 | 13:44
Ótrúlega mikill hlýhugur frá öllum....
... ókunnugu fólki sem þekkir okkur ekki neitt en er allt af vilja gert til að leggja okkur lið. Og að ég tali nú ekki um viðtökurnar og viðbrögðin við þessu bloggi mínu og allan þann stuðning sem ég hef fengið. Það er m.a.s. búið að stofna söfnunarreikning og elskulegt fólk, fullt af náungakærleik, hefur sett eitthvað inn á síðurnar sínur um þetta allt saman. Maðurinn minn er búinn að vera á haus niðrí grunni, keyra úr honum og í hann aftur og í morgun kom valtari frá fyrirtæki neðan af Skaga og valtaði grunninn og getið þið hvað hann tók fyrir það??? Heilar 10.000 krónur sem er náttúrulega ekki neitt. Ég var eins og kleina, kann þetta ekki, og þaðan af síður maðurinn minn sem alltaf reddar öllu. Ef ég væri í sambúð með einhverjum öðrum, þá er sko ekki víst að ég væri svona róleg yfir þessu öllu saman. Trúi honum og treysti, sama hvað hann tekur sér fyrir hendur, þá reddar hann því. Og nú er minn ákveðinn í að koma þaki yfir höfuðið á okkur aftur og ég veit að hann myndi fyrr drepast við að reyna en að gefast upp. Það stappar í mig stálinu og ýtir mér áfram. Var að koma heim, fór á eftir honum áðan þegar hann fór með valtarann á vélavagninum aftur niðrá Skaga. Ástæðan, jú, hann skar sig illa upp úr kl. 10 í morgun og þurfti að sauma saman á honum tvo fingur, en hann gaf sér ekki tíma fyrr en nú, til að fara niðrá Slysó, því að fyrst þurfti sko að koma lyftaranum niðureftir. Þannig að vörubíllinn með vélavagninum var skilinn eftir þar sem valtarinn fór af og ég kom svo og skutlaði honum á mínum gamla Subaru á sjúkrahúsið. En nú verð ég að fara að leggja mig, svaf lítið í nótt af persónulegum ástæðum og er uppgefin. Varð bara aðeins að tjá mig fyrst til að róa hugann. Kærar þakkir elskulegu bloggvinir og aðrir sem nenna að kíkja á síðuna mína fyrir allt og allt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.3.2008 | 16:43
Heyr heyr vörubílstjórar.
Áfram svona. Húrra fyrir ykkur strákar sem stóðuð fyrir fundinum og þessum aðgerðum. Þetta er frábært. Var að reyna að tjá mig um þessi mál á blogginu mínu um daginn en fékk ekki mikil viðbrögð. Stend með ykkur 100%. Er hagsmunamál allrar þjóðarinnar, ekki bara ykkar eins og reynt var að láta skína í á Bylgjunni. Mikið verð ég innilega þakklát ykkur, allavega, ef aðgerðir ykkar verða til þess að lækka olíu- og bensínverð, samt á ég bara Subaru. Finnst að olíufélögin mættu sýna ykkur stuðning með því að hækka afsláttinn sinn sem þeir bjóða með lyklunum sínum og öðru. Tvær krónur er enginn andsk. afsláttur þegar lítrinn er kominn í 150 kall. Finnst bara fáránlegt að hann sé alltaf sá sami þegar verðið hækkar og hækkar. Það mætti halda að þeir hafi fengið formúluna hjá íslenska ríkinu. Ho ho ho, we say hei hei hei.
Vörubílstjórar stöðva umferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.3.2008 | 13:51
Varð að leyfa ykkur að njóta þessa með mér, elsku strákurinn minn?
óður til Mömmu ;)
Myndi gera svona fyrir þig ef ég væri ekki lélegri en þessi strákur að syngja, og hann er sko lélegur að syngja.. Vonandi að þetta lýsi smá upp daginn hjá þér :*
http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=27&id=5792
Kv Binni ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.3.2008 | 10:03
Bréfið mitt í Mogganum - Engin viðbrögð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.3.2008 | 08:32
Hús og heilsa - Þau vita sínu viti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2008 | 10:52
Skoðunarskýrsla löggilts matsmanns vegna Myglusveppahússins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
26.3.2008 | 08:49
Myglumelurinn minn vonandi til þess að ýta eitthvað við stjórnvöldum og öðrum sem hafa með svona mál að gera.
Eins og kannski einhverjir hafa séð þá birtist frétt á Stöð 2 í gærkvöld um hvernig fór fyrir veraldlegum eigum okkar hjóna. Það voru blendnar tilfi.nningar sem bærðust með mér þegar Lára Ómarsdóttir hafði samband við mig í gærmorgun og vildi fá að gera þessa frétt. Aðallega vegna þess að ég er ekki mjög framfærin eftir öll þessi ósköp, dreg mig í hlé við svona áföll. Veit ekkert af hverju, örugglega bara mín leið til að fá tíma til að vinna úr hlutunum. Var rétt að skríða út úr gömlu skelinni, eins og einsetukrabbarnar, eftir síðasta áfall þegar þetta dundi yfir. Var komin af stað í sveitapólitíkina við síðustu sveitarstjórnakosningar, var í umhverfisnefnd sveitarfélagsins og 3ja manna stýrihópi um staðardagskrá og hvað eina. Hætti þessu öllu saman og lagðist í hýði hér uppi á Fellsenda. Get bara ekki hugsað mér að vera byrði á einhverjum og ef ég tek eitthvað að mér þá vil ég geta sinnt því 120%. Hvernig á það að vera hægt þegar maður stendur ekki einu sinni undir sjálfum sér og getur einungis sinnt brotabroti af heimillisstörfunum. En hægt og hægt er ég að skríða úr þessari skel einnig og er það ekki síst blogginu að þakka. Góð viðbrögð ykkar sem lesið bloggið mitt voru líka hvatning til mín í að láta vaða og fara í þetta viðtal. Með því var hluta þess tilgangs náð sem ég hafði upphaflega með stofnun bloggsins sem var að reyna einhvern veginn að vekja athygli á þessum skaðvaldi sem myglusveppurinn er. Og nú er hlaupið kapp í mína. Ég er búin að einsetja mér að trúa því að ég sé fær um að knýja fram viðhorfsbreytingu í samfélaginu gagnvart þessum fjanda. Háleitt markmið.... og ofursjálfstraust, það verður ég næstu vikur og mánuði eða eins lengi og þarf. Skora á alla sem sjá þetta pár mitt að fara inn á heimasíðu Húsa og heilsu og lesa sér til um myglusvepp, skaðsemi hans, sjúkdómseinkenni og annað sem þar er. Frábær upplýsandi síða hjá þeim Sylgju og Pálma: www.husogheilsa.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.3.2008 | 13:45
Á sandi byggði heimskur maður hús......
.... og þá kom steypiregn. Einhverra hluta vegna kom þetta upp í huga mér þegar maðurinn minn sagði mér af samskiptum sínum við starfsmann Vegagerðarinnar sem hann hitti í morgun. Hef áður bloggað um ástand eina vegarins sem ég kemst heim til mín en svona til útskýringar þá er þessi vegur nær eingöngu notaður af vörubílum sem eru að sækja efni í stóra malarnámu sem er hér rétt við hliðinjpa á sveitabænum þar sem ég bý. Þannig að ferðirnar sem vörubílarnar fara eftir aumingjans veginum skipta tugum. Maðurinn minn benti viðkomandi starfsmanni þessa háa embættis á hvernig núverandi ástand vegarins væri og svörin sem hann fékk voru þau að ekki væri hægt að hefla í frosti. -Var nú frostlaust fyrir páska, benti maðurinn minn honum á og hinum varð fátt um svör en svaraði svo hryssingslega að þetta væri nú sá vegur sem hvað mesta þjónustu fengi á landinu. Ha, ha, held hann hafi verið heflaður tvisvar síðan ég flutti hingað fyrir hálfu ári síðan og þar af var hann orðinn ófær vegna drullu og áníðslu þegar þeir létu sjá sig í fyrra skiptið. Minn vildi nú ekki sleppa honum svona létt og minntist á að vegurinn væri líka alltof mjór. Hann er ekkert of mjór, hreytti Veggi út úr sér, hvað er að, ég horfi upp á það oft á dag að þegar vörubílarnir mætast þá verður annar þeirra að stoppa. Og, minn veit nú alveg hvað hann er að tala um, búinn að vinna við að keyra vörubíl alla sína tíð. -Það er bara alltof mikil umferð á veginum, sagði veggi þá. Og ég spyr, er þetta dæmigert viðhorf þessara blessuðu manna sem sjá um íslenskt vegakerfi. Ekki einu sinni var horfst í augu við hvað raunverulega vandamálið var. Burðarlag vega sem vitað er að mikið álag er á verður að vera samkvæmt því, þýðir ekki endalaust að moka saman einhverri drulluhrúgu, kalla það veg og kenna því svo um að vegurinn skemmist að hann er notaður til þess sem hann er ætlaður. Vegur að efnisnámu verður að vera byggður til að þola það að vera vegur að efnisnámu. Árinni kennir illur ræðari. Held ég fari og rukki vegagerðina um demparafestingarnar sem allar eru farnar í bílnum mínum og nokkra þvotta í leiðinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar