7.6.2008 | 22:00
Ömmustelpan var skírð í dag.!!!
Dásamlegur dagur að kveldi kominn, nefnilega dagurinn sem litla sonardóttir mín var borin til skírnar. Athöfnin fór fram í Akranesskirkju og var séra Eðvarð sem skírði. Þetta var allt mjög frjálslegt og yndisleg athöfn. Guðmóðir hennar, Ólöf, hélt litlu dúllu undir skírn og guðfaðir hennar er Brynjar Heimir, föðurbróðir hennar. Svo nú á ég litla ömmustelpu sem heitir, TATATARA....
EMILÍA ÓLÖF ARONSDÓTTIR.
Finnst þetta yndislegt nafn og einhvern veginn svo mikið hún. Síðan var slegið upp veisu í Skrúðgarðinum, yndislegasta kaffihúsi hérna megin Alpafjalla og það var bara æði. Til hamingju með nafnið, elskulegasta stelpan mín og ég hlakka til að fá að passa þig næstu helgi.
Bloggar | Breytt 8.6.2008 kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.6.2008 | 21:41
Sýniþörf??? Eða hvað var það sem mætti mér í dag???
Varð fyrir hálf ankannalegri reynslu í dag er ég var á leið heim frá Akranesi, sem efalaust einhverjir myndu flokka sem perrahátt, sýniþörf eða annað. Svei, mér þá, ég varð hálf klumsa, jafnvel vandræðaleg, veraldarvön kellingin komin hátt á fimmtugsaldur. Ég prísaði mig sæla fyrir að unglingdóttir mín 14 ára hafði farið í bíl með systur sinni í stað þess að fara heim með mér.
En hér kemur ástæðan. Talsvert áður en ég kem að afleggjaranum að Fellsenda sé ég bíl sem lagt er fyrir utan veginn. Ljós sansbrúnan eða einhvern veginn þannig á litinn. Skammt frá stendur maður sem snýr niður að veginum og var bara með allt slátrið úti. Að pissa beint framan í vegfarendur sem leið áttu hjá og var ekkert að sýna neina hæversku með því að annaðhvort míga í skjóli við bílinn eða snúa sér upp að fjallinu. Nei, það mátti sko hver sem er sjá hversu vel hann var búinn þarna niðri. Eina sem hann gerði var að snúa andlitinu þannig að ekki sæist framan í hann.
Kannski er ég bara svona gamaldags en þetta var eitthvað sem ég hefði alveg viljað sleppa við að sjá. Og þaðan af síður að dóttirin ræki augun í eitthvað svona. Virðingarleysi, kæruleysi, hvað gengur að svona köllum til að geta ekki drullast til að sleppa því að sýnan beyglaðan vininn og sitt hland fyrir saklausum vegfarendum. Pah.
Kæri, bílstjóri, næst þegar þér verður brátt í brók, vinsamlegast slepptu því að auglýsa það fyrir alþjóð. Snúðu þér frá veginum, farðu á bak við bílinn þinn eða eitthvað. Það eru ekki allir sem kæra sig um að sjá svona.
Tekið skal fram að ég leit undan um leið og ég áttaði mig á hvað það var sem ég var að horfa á.
Berar sig á msn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.6.2008 | 11:34
Draugar, djöflar og önnur dásemdarfyrirbæri!!!
Bylgja, Get a life. Eitthvað sem hún dóttir mín sýndi mér á hinni dásamlegu uppsprettu "Túbunni" varð til þess að ég fór að slá inn leitarorðum á borð við: "Ghosts", "Demons", "Stigmata" og einhverju álíka gáfulegu. Og hvílíkt ógrynni af myndefni sem er þarna inni. Og það sem vakti einna helst furðu mína var hverjir voru að setja inn svona efni. Mest áberandi var af því sem á einhvern hátt getur talist trúverðugt kom nefnilega frá kristilegum síðum eins og "saintbirgitte.com" og "thebibleword.com". Verandi sannur hjátrúafullur Íslendingur þá verð ég að viðurkenna að ansi margt þarna inni fékk mann til að vilja skoða meira og meira. Hverjir sáu t.a.m. myndina um Emily Rose. Þarna inni eru ljósmyndir og hljóðupptökur af persónunni sem Emily var byggð á og heitir Anneliese Michell eða eitthvað álíka. Óhuggulegar myndir. Einnig ljósmyndir af Theresu Neumann, sem flestir ættu að kannast við. Þarna inni eru líka myndbönd sem allavega fyrir mér voru ansi trúverðug og báru greinilega merki um hræðslu og fát þeirra sem urðu fyrir þeirri reynslu að ná afturgöngum á myndband.
Og til að klykkja endanlega út með hversu biluð ég er að þá viðurkenni ég hér og nú að ÉG HEF SÉÐ GEIMSKIP. Verst að vitnið mitt, sá sem sá þetta með mér nálægt Dalvík, að ég held árið 1978 er nú látinn og ég hef oft bölvað sjálfri mér yfir að hafa ekki fengið hann til að staðfesta frásögn mína. Fyrir því lágu vissar ástæður sem óþarfi er að nefna hér, alla vega tók ég ákvörðun um að tala aldrei við viðkomandi framar og stóð við það. Blessuð sé minning hans. Hef sagt ættingjum frá þessu en held að þeir trúi mér ekki alveg, skyldi engan undra. En GEIMSKIP sá ég og hana nú, jafn greinilega og tölvuskjáinn fyrir framan mig þessa stundina. Geriði bara grín að mér he he. Auglýsi samt hér með eftir einhverjum sem sá þetta sama fagra helgarnótt fyrir norðan við dunandi dansmúsík frá balli á Dalvík.
Set hér með að gamni 3 myndbönd sem náðu að fanga athygli mína á "Túbunni"
http://www.youtube.com/watch?v=DR24ryIiHpw&feature=related
http://youtube.com/watch?v=zUtAmIakL0Q
http://www.youtube.com/watch?v=R0c2Z4H3C1Q
Góða skemmtun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.6.2008 | 14:20
Týpískur íslenskur hálfvitaháttur....
Hefði átt að loka veginum" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.6.2008 | 12:23
Fáránlegur fyrirsláttur!!!
Deyfilyf ekki til í landinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.6.2008 | 12:13
"Vildum ekki missa hann...."
Ísbjörninn felldur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
3.6.2008 | 11:27
Áskorun til Þórunnar!!!!
Þú bara mátt ekki leyfa lögreglunni að skjóta dýrið. Hlýtur að vera hægt að finna sérfróða aðila erlendis til að ráðleggja með björgun á birninum. Reynum nú einu sinni að sýna lífi skepna virðingu. Ekki hefur hann unnið neitt til saka. Hvað með það þó að kosti eitthvað, verðum líka að hugsa um mögulegar afleiðingar þess ef hann er drepinn með köldu blóði. Hvað segja dýraverndunarsamtök þá. Þyrmum lífi hans ef þess er einhver kostur.
Lögregla á slóðum ísbjarnarins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2008 | 10:43
Detti nú af mér dauðar lýs!!!
Ég gat ekki annað en skellt upp úr þegar ég sá þessa frétt. Fer þessa leið alltaf til Siglufjarðar núorðið og gat ekki annað en ímyndað mér hvernig upplitið hefði orðið á mér og mínum ef við hefðum mætt ísbirni. Minn hefði örugglega keyrt út í kant og lagt sig, haldið að hann væri farinn að sjá ofsjónir.
Ætla bara að vona að fyrsta hugsun yfirvalda verði ekki byssan og að aflífa greyið. Vona að þau taki tillit til dýraverndunarsjónarmiða og reyni fyrst að leita annarra leiða. Hafið nú ameríska háttinn á og reynið fyrst að koma honum á haf út eða fórna einhverjum pening og tíma í að koma honum heim. Verðum að hætta þessum fornaldarhugsunarhætti að skjóta blessuð dýrin fyrst og hugsa svo. Sama hvort það eru ísbirnir eða gæludýrin okkar.
Ísbjörn við Þverárfjall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2008 | 10:29
Hvernig skyldi móðurinni líða???
Sé fyrir mér örvæntingarfulla unglingsstúlku eiga þetta óvelkomna barn einhvers staðar í felum og finnast hún ekki eiga neinn að leita til. Að henni finnist hún nauðbeygð að grípa til svona örþrifaráða. Hvar liggur ábyrgðin.
E.t.v. er þetta barn einhvers dópista sem er orðinn svo rugluð og veruleikafirrt að barn er eitthvað sem engu máli skiptir, bara hindrun í veginum sem best er að losa sig við. Aumingja barnið og öll þau börn sem fæðast óvelkomin í þennan nöturlega heim.
Hvernig getur þungun farið framhjá ættingjum, vinum og öðrum sem í kringum móðurina eru, skil það bara ekki en það hefur víst gerst oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Jafnvel að þungunin fari framhjá sjálfri konunni þá sjaldgæfara sé. Megi guð varðveita minningu þessa barns og fyrirgefa móðurinni ódæðið.
Lík af nýfæddu barni fannst í Horsens | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2008 | 11:28
Húsafréttir af Myglumel 7
Í gær kláraði Eyjó, tengdasonur minn að leggja hitalagnirnar í grunn nýja hússins og naut við það dyggrar aðstoðar Sigrúnar minnar sem strappaði og strappaði. Við Sæunn komum svo í humátt á eftir með klippur og klipptum alla enda í burtu, svo nú er bara að setja þrýsting á kerfið(loft) og panta steypuna. Jibbí, platan er að verða klár. Húsið er loks laust úr tollinum og ég reikna með að Ívar sæki gámana nú í vikunni. Ég ætla aftur á móti að fara og panta klæðninguna utan á húsið og byrja að bera á hana svo eitthvað af henni verði nú tilbúið til ásetningar þegar húsið rís. Gátum fengið hús með utanhússklæðningunni á en okkur fannst við verða að hafa eins klæðningu og er á bílskúrnum. Er vön einungis 3 eða 4 ár síðan við höfðum klætt gamla húsið og þar málaði ég stærstan part af klæðningunni. Vil ekki að hún fari upp nema grunnuð og máluð í tvígang, bæði að innan- og utanverðu. Svo málverkur verður það einhverja næstu daga takk fyrir. Heyrumst kæru bloggvinir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Um bloggið
Bylgja Hafþórsdóttir
Nýjustu færslur
- Einstefnuhugsunarháttur!
- Ætli það verði hægt að .......
- Nei, nú er mín kjaftstopp. Eru þetta hálfvitar???
- Þorrablót KKS á Sigló-Bara gaman
- Menn og konur. -KAFFI- Konur og menn.
- Í Noregi er sí-ungur maður sem....
- Jei, einhver með viti!!!
- Í dag er mikilvægur dagur!!!
- Að vera Siglfirðingur og....
- OBEX-LAUSNIR bjóða nú þegar.....
Tenglar
Frábærir bloggarar
- Hertoginn af Gautlandi Gauti frændi á Sigló.
- Leó Óla, sannur Siglfirðingur Fullt af skemmtilegum sögum og æðislegum myndum.
Mínir tenglar
- Litlir englar Yndislegust samtök á Íslandi
- Obex lausnir snilld innandyra sem utan. Held að vegagerðin ætti að kynna sér þetta í stað stórhættulegra víra.
- Vinfastur Heimasíða bátasmiðanna.
- Big Fish Games Skemmtileg leikjasíða við allra hæfi. Frí trial í klst.
- Hvalfjarðarsveit Já, ég á heima hér.
- Siglufjörður Hér er ég fædd og uppalin á besta stað á Íslandi.
- My space síðan mín.
Bækur
Bókalisti
Er alæta á bækur nema ástarsögur
-
Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium -
Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
: Crystal Rain -
Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn -
Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise -
Elska svona bækur
: Holy Blood-Holy Grail -
Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
: Magyk og Flyte -
Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
: Wheel of Time -
Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
: The Righteous Men -
Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
: The secrets of Maria Magdalena -
Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
: The Lies of Locke Lamora -
Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
: His Majestys Dragon -
Einnig bók um heim sem ekki er til.
: TUNNELS -
Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
: The Templar Legacy -
Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
: UNLUNDON -
Allir að lesa þessa bók.
: Neverwhere -
Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
: Stardust
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar