Verð-bólgin!!!

Farið að fara í pirrurnar á mér að fara út í búð og kaupa í matinn. Það hefur ekki gerst í áratug og segir mér það eitt að það er að kosta meira en ég kæri mig um að eyða í mat. Allt í einu orðið DÝRARA en ég bjóst við í stað ÓDÝRARA. Nú dugar ekkert annað en aðhaldsbeltið og hafa það í þrengsta. Tala nú ekki um þegar orðið er jafn dýrt að sækja sér nauðsynjar og nú er. Ókosturinn við að búa í sveit en samt kostur. Miklu auðveldar að láta hlutina bara vanta í stað þess að skjótast á peningagleypinum mikla, einkabílnum, þegar ekki er búð við hendina. Verslað tvisvar í viku, punktur og pasta, verst að minn mann vill ekki pasta. Dýr í fóðrum.


mbl.is Mesta verðbólga í tæp 18 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annasöm og yndisleg helgi að baki.

Það er allt í einu kominn mánudagur, vindurinn gnauðar hér á glugganum og mig langar norður á Sigló í góða veðrið. Föstudagurinn fór í Reykjavíkurferð og Kringluna, nema hvað, kem þangað svona fimm sinnum á ári. En nú var tilefnið nógu mikilvægt til að réttlæta ferð þangað, nefnilega afmælisdagur litlu Kolbrúnar Köru. Daman er orðin tveggja ára. Vá. Og við þrímæðgurnar, ég, Sigrún og KK fórum og misstum okkur í Next. Úrvalið af fallegum barnafötum þar er ævintýralegt og ekki spillir verðið fyrir. Afmælisdagurinn sjálfur var laugardagurinn en af ákveðnum ástæðum var veislan haldin í gær, sunnudag. Hvað er tilhlýðilegra en að halda barnaafmæli á degi barna. Laugar(Evróvision)-deginum var eytt með nýja ömmubarninu. Hún er 3ja vikna þessi elska og þær mæðgur kíktu í heimsókn til ömmu gömlu í sveitina. Þarna kúrði litla dúllan í rúminu sem ég er með inni í stofu og amma bara varð að fara og kúra aðeins hjá henni þar sem hún svaf værum svefni. Pabbinn kom svo þegar hann var búinn niðrí grunni þar sem hann var að setja járnamottur og einangrun fyrir mömmu gömlu og rétt fyrir sjö var pizza sótt á Skagann og hún mauluð yfir Evróvisjón. Eiginmaðurinn kom óvænt heim þannig að plönin riðluðust aðeins en það var bara skemmtilegra að hann væri líka. Annars vorum við Sæunn búnar að ákveða að við yrðum á Skaganum hjá ömmustelpu en hún var bara hér í staðinn. Gott mál, og Ívar náði loks að sjá dömuna í fyrsta skipti. Á sunnudagsmorgninum bakaði amma svo afmælishring handa tveggja ára prinsessunni og brunaði með hann suður til að reyna að myndast við að hjálpa til við undirbúning veislunnar. Ekki það að hún Sigrún mín, þyrfti svo mikið á hjálp að halda. Hún er algjör töfrakerling og svo elskar hún að gera eitthvað svona fyrir KK þannig að þetta var eins og fermingarveisla. Dagurinn var svo yndislegur og allt svo afslappað í veislunni að við Sæunn nenntum ekki heim fyrr en bara klukkan að verða níu eða eitthvað.

Ég hlustaði á hana Lenu mína messa í útvarpinu, einn besti prestur sem ég hef fyrirhitt og trúir svo innilega að þetta er sko engin rútína hjá henni heldur upplifun. Hin árlega "alnæmis"messa var svo líka í gær í fríkirkjunni og þetta er annað árið í röð sem ég hef ekki komist. Gefur mér mikið að fara þangað, allt svo létt og skemmtilegt en samt hátíðlegt. Tónlistaratriðin hafa verið ógleymanleg og svo er Hjörtur Magni bara skemmtilegur prestur.

En nú tekur hverdagurinn við, verð að vinna smá fyrir Art sérsmíði þar sem ég á að heita launafulltrúi og bókari og  svo koma þrír frá þeim í mat í hádeginu. Hvað á ég að elda, darn, nenni ekki á Skagann þar sem ég verð þá að fara aftur eftir hádegi. Æi, finn eitthvað í kistunni. Fiskréttur verður það heillin. Namm, namm. Og ekki má gleyma að hringja í lögfræðinginn eins og ég ætlaði að gera á föstudaginn en náttúrulega gleymdist í borgarferðinni. Vonandi er eitthvað að gerast í okkar  málum. Langar líka að senda Björgvini viðskiptaráðherra tölvupóst til að benda honum á hvað við erum aftarlega á merinni tryggingalega séð varðandi myglusvepp og athuga hvort hann hefur eitthvað fylgst með Árbæjardæminu. En góðar stundir bloggvinir kærir og takk fyrir að vera til.


Það skyldi þó aldrei vera myglusveppur!!!!

Ég get ekki annað en glaðst yfir þessari frétt ef ég á að vera alveg hreinskilin. Fróðlegt þætti mér að vita hvernig sjúkdómseinkenni viðkomandi starfsmanna eru. Ég finn svo innilega til með þeim og fagna því að stjórnendur heilsugæslustöðvarinnar taki veikindi þeirra það alvarlega að þeir vinni markvisst að því að komast að hvað það er sem veldur. Ég ætla bara að vona að vinnueftirlitið standi sig í stykkinu og taki þetta alvarlega. Vonandi standa þeir sig betur en heilbrigðisfulltrúinn sem ég leitaði til á sínum tíma þar sem hann átti að vera fulltrúi Hollustuverndar. En svo er annað mál hvort eitthvað komi út úr rannsóknunum á starfsfólkinu, það eru nefnilega einungis um 50% líkur á að myglusveppur komi fram á t.d. blóðprufum eftir því sem ég kemst næst. Nú er bara að vona að eitthvert tryggingafélagið sjái sóma sinn í að fara að bjóða upp á tryggingar gagnvart þessum vágesti líkt og í nágrannalöndum okkar, Noregi og Svíþjóð.


mbl.is Rannsakað hvort húsnæði heilsugæslu sé heilsuspillandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er gjörsamlega áttavillt!!!

konaHægri, vinstri, einn, tveir. Áfram gakk í sitthvora áttina. Hversu lengi gengur þetta "samstarf", ég get ekki annað en efast um tilgang þess. Eldur og vatn geta treglega átt samleið. Hvað ætlu séu margir sjálfstæðismenn pirraðir yfir að vera í stjórn með Samfó og öfugt. Hvers lags þrái er þetta að vera samstíga út á við en geta ekki komið sér saman um einföldustu hluti þegar á reynir. Held  ég kjósi Framsókn næst, svona til að leggja mitt af mörkum til að viðhalda stofninum svo hann deyi ekki út. Get hvort eð er ekki séð hvaða andsk. máli  það skiptir hvað maður kýs, hvort sem er til alþingis eða sveitarstjórna. Hrært með þetta fram og aftur.
mbl.is Vinstristefna að tala niður atvinnulífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ÞARF maður að eiga af húsgögnum???

Ég á það sem þarf, rúm handa okkur til að sofa í og var sko alveg tilbúin til að flytja í nýja húsið þegar það verður tilbúið með þau, þvottavélina og þurrkarann, ísskápinn og frystikistuna. Á eldavél, viftu og bakarofn í bílskúrnum sem ég hafði keypt smám saman til að setja í nýja eldhúsið, sem enn er í EGG og átti að fara í gamla húsið. Þannig að ég er ekkert í slæmum málum. Í gærkvöld fékk ég svo símtal þar sem mér var boðið að eiga sjónvarpsskáp og fleira sem frænka mín þarf að losna við þar sem hún er að flytja til Danmerkur, svo þetta er allt að koma. Eldhúsborð og stóla þyrfti ég kannski en get verið án ásamt sófasetti, iss piss, sitjum bara á gólfinu til að byrja með. Rómantískt. Verð nú samt að játa að það er hundfúlt að vera aftur farinn að þurfa að velta fyrir sér hverri krónu og vera skítblönk eins og í gamla daga þegar ég var ein með krakkana. Helv. bensínið, er dýrt að keyra 30 km til að nálgast nauðsynjar svo nú skammta ég mér Akranesferðir. Tvær á viku, ekki meira. Ekki lengur verið að keyra eftir pizzu og videóspólum, ó nei. Tími því ekki. Ágætt núna að kunna ekki á utanlandsferðir, sakna þeirra ekki á meðan.

Eigandi Fellsenda reyndi enn á ný að ræða við nýja sveitarstjórann í sambandi við húsaleiguna en hún stendur föst á sínu. Munnlega samkomulagið við fyrri sveitarstjóra telur hún sig ekki þurfa að standa við svo þau ætla ekki að borga.  Nú segi ég eins og leikkonan sem fékk myglusvepp í húsið sitt: Hundfúlt að þurfa að borga bæði húsaleigu og af húsi en leiguna ætla ég að borga einhvern veginn. Skuldahalinn vex hratt þessa dagana, ég sem skuldaði ekki neitt nema lánið á húsinu gamla en þýðir lítið að vera að velta sér upp úr því. Þetta kemur allt með kalda vatninu eins og maðurinn sagði.


Nei, nú gubba ég!!!!

Gubb gubb, astraltertu gubb. Hvers lags íslenska er þetta sem lögð er á borð fyrir landann???? "Sigurður sagði, að það sé..." Óalgengt og ekki óalgengt, hvar er orðaforðinn.... af hverju endurtekningarnar???? ARghhh
mbl.is Sprengjur óalgengar á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning dagsins hjá Reykjavík síðdegis er????

Svar mitt við spurningunni: Miklu frekar en innflutning á útlensku kjöti. Þetta eru 40 dýr, það er ekki eins og verið sé að gefa veiðileyfi á allan stofninn og útrýma honum. Hafið er viðfeðmt og held það verði ekki mikill vandi fyrir ferðaþjónustuaðila að sveigja úr augsýn ef þeir sjá einn af þessum þremur bátum sem fyrirhuga hrefnuveiðar. Bara sorry, finnst verið að gera úlfalda úr mýflugu. Auðvitað á að veiða hrefnu eins og annað og gera það á skynsamlegan máta þegar og fyrst það er markaður fyrir hana.

Æi, takið ERR-ið í burtu!!!!

Ég meina... hvað er FYRST-R-A. Háæruverðugur MOGGINN á ekki að láta svona frá sér dag eftir dag.

Hrefnukjöt á minn disk??? Ja veistu....

Það er bara alveg hugsanlegt. Hef ekki smakkað hrefnukjöt síðan ég var krakki norður á Sigló og man að mamma setti kjötið í mjólk til að ná úr því sjóbragðinu. Ég ætla nú ekki að fara að leita ketið uppi en ef ég rekst á það marinerað á freistandi máta, tilbúið á grillið þá hugsanlega prófa ég smá bita. Hef nefnilega heyrt að það sé lostæti matreitt á þann mátann. En ætli hrefnan sem veiddist í fyrra hafi öll selst. Fylgdist hreinlega ekkert með því. Er alvöru markaður fyrir þetta eða er bara verið að veiða til að veiða og láta ekki neinn segja sér hvað má og hvað má ekki. Umm, best að fara að forvitnast.
mbl.is Fyrsta hrefnan veidd á Faxafló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimasætan stungin af í þrjá daga

Jæja, þá er ég orðin (næstum ein) í kotinu og verð það fram að helgi. Húsbóndinn er farinn kl. 6 á morgnana og komin heim svona á milli kl. 21 og 24 svo ekki sér maður mikið af honum. Framundan hjá heimasætunni er skólaferðalag í Skagafjörðinn þar sem verður farið í River Rafting og annað sem tilheyrir. Yndislegt hvernig allt fer á ferðina þegar vorar. Þetta er þriðja ferðalagið hennar á 2 vikum. Fyrst var það fermingarveisla norður á Sigló, síðan kíkt á pabba gamla á Akureyri liðna helgi og svo núna skólaferðalagið. Um að gera að þvælast meðan tími gefst til, hún byrjar nefnilega að vinna í ísbúðinni í Álfheimum um leið og skólinn er búinn og því lítið sumarfrí framundan. Fyrsta sumarið af mörgum framundan hjá henni þar sem verður unnið, étið og sofið. Veðrið er svo yndislegt, ég tölti með henni niður afleggjarann til móts við rútuna, með sængurfatapokann og annan farangur og sat við póstkassann og naut góða veðursins.

Mér varð hugsað til þess hversu yndislegt það er nú að búa hérna við lækjarnið og fuglasöng og ekkert stress. Alltaf fundist rómantískt að geta vaknað við hanagal en í reynd er það ekki mjög skemmtilegt. Alla vega ekki kl. 5.30 hvern einasta morgun. Svolítið erfitt á gamals aldri að snúa sér á hina hliðina og sofna aftur við hanagalið en þetta er samt allt í lagi. Hanagreyið mætti nú samt alveg hafa fallegri hljóð, kannski ráð að senda hann í söngkennslu. Hænurnar heillast samt af  þessu. Verst að ég er ekki hæna. Pabbi gamli er farinn að fara heim á laugardagskvöldum þegar hann fer í helgarfrí heim til sín á Sigló í stað þess að fara á sunnudagsmorgnum eins og hann hefur alltaf gert bara til að sleppa við að vakna við hanagalið einn morgun, he he.

Hundarnir eru loks búnir að venjast hænunum og eftir að girt var í kringum þær, þá eru þær ekkert spennandi lengur. Það er frábært að geta leyft þeim að skrattast hérna úti eins og þeim sýnist. Verða viðbrigði fyrir þá að fara niðrá Hagamel aftur og vera bundnir eða lokaðir inni. Eru að verða alvöru sveitahundar sem hlaupa geltandi niðrá veg ef það sést bíll. Er ekki mikil umferð hérna framhjá, aðallega vörubílar en einn og einn fólksbíll villist hér inn á veginn: Mörk-Fannahlíð-Fellsendi. Ég varð að hringja í vegagerðina í vetur og biðja þá um að setja skiltið upp sem þeir höfðu tekið niður í fyrrasumar því ég keyrði alltaf framhjá afleggjaranum í myrkri á leiðinni frá Reykjavík. Vonlaust að sjá hann með góðum fyrirvara og ekki neglir maður niður á þjóðvegi 1 með bíla á eftir sér og á móti. En skjáumst síðar, ætla að fara og gera eitthvað.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Bylgja Hafþórsdóttir

Höfundur

Bylgja Hafþórsdóttir
Bylgja Hafþórsdóttir

Er bara ég sjálf. Eineggja tvíburi og stolt af því. Á einnig 5 yndislega yngri bræður.

Nýjustu myndir

  • thorri
  • thootab2
  • thorrab
  • onnur
  • egoghronn
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Bækur

Bókalisti

Er alæta á bækur nema ástarsögur

  • David Eddings: Belgariad- Sería--Malloreon-Sería--The Elenium
    Er búin að lesa þessar þrjár seríur eftir hann og fannst þær allar skemmtilegar. Svo eru líka til stakar bækur um tvær af aðalhetjunum. Belgarath galdrakarl og Polgöru galdrakvendi.
    ****
  • Tobias S.Buckell: Crystal Rain
    Hrikalega skemmtileg spacefantasía, var smástund að átta mig á að hún gerist á annarri plánetu þar sem heiminum er svo snilldarlega lýst að hann hljómar ofur eðlilega.
    ****
  • James Rollins: M.a. Map of Bones-Black Order-Judas Strain og Sandstorn
    Hef virkilega gaman af bókunum hans um Sigma Force gengið, þar sem viðfangsefnið er ætíð eitthvað á trúarlegum eða sögulegum nótum. Rosa spennandi.
  • Anthony Horowitz: Ravens Gate-Evil Star-Night Rise
    Frábær sería sem ég gat ekki slitið mig frá. 1.bókin var þýdd á íslensku nú fyrir jólin og heitir Gátt hrafnsins.
    *****
  • Michael Baigent-Richard Leigh-Henry Lincoln: Holy Blood-Holy Grail
    Elska svona bækur
    *****
  • Angie Sage: Magyk og Flyte
    Frábærar bækur um galdrastrákinn Septimus Heap. Held að þriðja bókin komi út í sumar
    ****
  • Robert Jordan: Wheel of Time
    Heljarlöng sería, alla vega komnar 12 bækur, ekki búin að lesa þær allar, kaupi þær í slumpum.
    ****
  • Sam Bourne: The Righteous Men
    Önnur söguleg skáldsaga um eitthvað trúarlegt. Spennandi bók.
    ****
  • Dan Burstein og Arne De Keijzer: The secrets of Maria Magdalena
    Ótrúlega fróðleg bók. Les allt sem ég kemst yfir um Maríu Magdalenu.
    *****
  • Scott Lynch: The Lies of Locke Lamora
    Frábærar bækur um meistarþjófinn Locke og kumpána hans. Bók nr. 2 heitir Red Seas under Red Skies.
  • Naomi Novik: His Majestys Dragon
    Sería um drekann Temeraire. Búin að lesa nr 2 og 3 einnig, er að bíða eftir að nr. 4 komi í kilju.
    *****
  • Roderick Gordon & Brian Williams: TUNNELS
    Einnig bók um heim sem ekki er til.
    ****
  • Steve Berry: The Templar Legacy
    Les mikið af svona bókum, skáldsögur sem eiga sér stað í sögulegum raunveruleika.
    ****
  • China Miewille: UNLUNDON
    Frábær um aðra London í samsíða vídd við hina.
    ****
  • Neil Gaiman: Neverwhere
    Allir að lesa þessa bók.
    *****
  • Neil Gaiman: Stardust
    Hafði lesið bókina áður en myndin kom. Elska bækurnar hans.
    ****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband